Fréttablaðið - 03.03.2017, Page 38

Fréttablaðið - 03.03.2017, Page 38
Hönnun lítilla baðherberja er eitt- hvað sem Rolf Heide´32 þekkir vel. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir ýmsa framleiðendur. Má þar nefna Bulthaup, Gaggenau og Dura- vit. Síðustu þrjátíu ár hefur Heide séð um hönnun á baðherbergjalín- um fyrir Duravit með það að leið- arljósi að gera lausnir og tækjaval auðvaldara í ákvörðunarferlinu og vinnslu frá upphafi. Hönnun á góðu baðherbergi krefst ekki mikils rýmis, heldur hug- mynda og víðsýni. Meðalstórt bað- herbergi er einungis tæpir 5 fm. Oft virðist það verulegt vandamál að hanna í litlu rými en svo þarf ekki að vera, svo fremi sem leitað er til þeirra sem hugsa lausnamiðað. Baðherbergi er í raun eins og eld- hús sem getur verið undir talsverðu álagi vissa tíma dagsins. Hafa ber í huga að þetta rými má aldrei klikka. Varan þarf að vera traust – gæðin þurfa að standast allar kröfur, alveg eins og í eldhúsinu Í raun þarf einungis að hafa þrjú atriði í huga við hönnun í litlu rými. Spurningin sem þarf að spyrja sig er: „Hvernig er á einfaldan hátt hægt að koma fyrir vaski, salerni og sturtu/baði." Umrædd atriði eru: 1Hönnun og útlit. Í því sam-bandi er gott að leita til leiðandi framleiðanda sem tryggir að útlit og notagildi fullnægi kröfum notenda. Í dag eru blöndunartæki orðin hönn- unarlistaverk og sum hafa unnið til verðlauna sem gerir notkunina ánægjulegri og eykur á vellíðan. 2 Val á skápum og skúffum. Ilm-vötn, blásarar, sjampó, burst- ar o.s.frv. þurfa að vera í góðum hirslum og skoða þarf vel hversu mikið hver og einn notar af slíkum hlutum. Stærð og gerð hirslnanna fer því eftir einstaklingum. Einn- ig vill gleymast að hreinsiefni og hreinlætistæki þurfa líka sitt pláss. 3 Speglar og uppsetning. Það þarf til dæmis að taka mið af stað- setningu sturtu þegar uppsetning á innréttingum og speglum er ann- ars vegar. Rétt staðsetning spegla getur stundum skipt sköpum. Þeir stækka rými og háir speglar geta til að mynda verið sniðug  lausn. Þá getur verið gott að hafa það í huga að hægt sé að skoða hárgreiðslu og fatnað frá fleiri sjónarhornum en eingöngu að framanverðu. Hugsað stórt í litlu rými Rolf Heide. Reynslan skilaR séR Ísleifur Jónsson ehf. hefur boðið gæðavörur í tæpa öld. Á þeim tíma hefur Ísland breyst gífurlega og reynslan sem félagið býr að hefur skilað viðskiptavinum þess gæðum og vöruúrvali sem hentar íslenskum aðstæðum. Reynslan skilar viðskiptavinum öryggi. Ísleifur Jónsson ehf. er umboðsaðili fyrir leiðandi merki sem reynslan hefur sýnt að henta íslenskum aðstæðum vel. Þar fást vörur frá framleiðendum á borð við Hansgrohe og Dura- vit sem framleiða öll sín tæki í Þýskalandi. Sömuleiðis frá Ideal Standard og Burlington í baðvörum. Eins frá fyrirtækjum á borð við TECE og frá ofnaframleiðandanum Radson frá Finnlandi og fittings frá Eurotubi. Lokar, síur og ofnlokar frá IMI og dælur frá Askoll eiga svo að tryggja það að ekki þurfi að kalla til pípara yfir jólasteikinni. Klassískur stíll og fíngerð form gera þessa gamaldags hönnun baðinnréttinga gullfallega og nútímalega. Burlington baðherbergin eru gott dæmi um hin hefðbundnu baðherbergi sem fyrir löngu eru orðin klassísk og bera frábærri hönnun og fegurð baðherbergja fyrri tíma gott vitni. Burlington leggur mikið upp úr samræmdri hönnun á öllum sínum vörum til að auðvelda þér að velja hið klassíska baðherbergi. Draghálsi 14 - 16 · S ími 4 12 12 00 www.isleifur.is fyRSta Heimilið Kynningarblað BaðHeRBeRgi 3. mars 201712 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 4 -0 7 5 4 1 D 1 4 -0 6 1 8 1 D 1 4 -0 4 D C 1 D 1 4 -0 3 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 2 3 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.