Fréttablaðið - 03.03.2017, Síða 56
Þrír spennandi mánuðir
Elsku hjartans hrúturinn minn, ég verð að segja
að þú hefur dýpri skilning á lífinu en svo margir.
Þú vilt öllum vel, þó það komi stundum fyrir að
þú sért of hvatvís og segir það sem þú meinar
án þess að hugsa þig tvisvar um. Ef þú hefur
ekkert gott að segja, þá skaltu bara þegja, það er
mitt aðalmottó og á eftir að hjálpa þér í gegnum
næsta mánuð ef þú hefur það að leiðarljósi.
Það er mikil spenna búin að vera yfir orkunni
þessa daga í febrúar og þú átt eftir að nota þessa
spennu og breyta henni í kraft eða bensín sem
að þú átt eftir að nýta til að komast miklu hraðar
og áfallalaust í gegnum þessa tíma sem þú ert að
fara í. Það er í orkunni þinni sá einlægi ásetningur
að redda og bjarga öðrum og þú átt það til að
týna parti af sjálfum þér, þegar þú ert í þessum
björgunarherferðum. Það sem á eftir að efla
þig fram á vorið er að þú átt eftir að takast á við
hlutina af einlægni og brjóta þér leið í gegnum allt
sem þú hefur haft áhyggjur af. Þessir þrír mánuðir
sem eru fram undan, eru afdrifaríkustu mánuðir
ársins hjá þér. Mjög margt mun koma þér á óvart
og það birtast þér nýir möguleikar.
Spáin gildir fyrir mars
Lengri útgáfa af stjörnuspá á visir.is/SiggaKlingMarsspá Siggu Kling
21. mars–19. apríl
Hrúturinn
20. apríl–20. maí
Nautið
21. maí–20. júní
Tvíburinn Krabbinn
23. júlí–22. ágúst
Ljónið
23. ágúst–22. september
Meyjan
23. september–22. október
Vogin
23. október–21. nóvember
Sporðdrekinn
22. nóvember–21. desember
Bogmaðurinn
22. desember–19. janúar
Steingeitin
20. janúar–18. febrúar
Vatnsberinn
21. júní–22. júlí
19. febrúar–20. mars
Fiskarnir
Hér eftir birtist spáin
fyrsta föstudag hvers mánaðar
Miklir töfrar í kringum þig
Elsku nautið mitt, þú hefur þann hæfileika að
geta breytt hvaða greni sem er í dásamlega
paradís. Það er eins og þú sért í hreiðurgerð þetta
vorið og það þýðir alls ekki að það séu að koma
ungar, heldur ert þú að laga allt til í kringum þig.
Þú átt eftir að finna út hvaða karakter þú vilt
skapa því að það er náttúrulega þú sem skapar
sjálft þig í þeirri mynd sem þú vilt sjá sjálft þig.
Og þessi kraftur er að opnast fyrir þér, þú munt
sjá fegurðina í kringum þig með skýrari augum.
Þú verður ánægðara með sjálft þig og þar af
leiðandi með aðra, því að ánægjan byrjar hjá
þér. Það er ekki neitt sem getur stoppað þig á
næstu mánuðum. Því að það eru svo miklir töfrar
í kringum þig næstu 120 daga að minnsta kosti.
Nú er kannski eitthvert naut að lesa þetta og það
hugsar: „Það er ekkert að gerast hjá mér og engin
hreyfing búin að vera í lífi mínu.“ En þá verður þú,
elskan mín, að kalla með orðum og hugsunum
á það sem þú vilt fá í lífið þitt. Því að eina sem
getur stoppað þig er ótti við breytingar og þá
verður þessi stöðnun að veruleika, af því að þú
ert að kalla á það.
Lærðu að aftengja þig
Elsku tvíburinn minn, þú ert svo mikið tengdur
himintunglunum í tilfinningaorku þinni. Og þar
sem það er búið að vera mikil spenna í kringum
jörðina okkar þá drekkur þú það inn í líkama
þinn og huga. Þú þarft núna að læra að aftengja
þig, setja skýr mörk á það hvað skiptir máli og
hvað skiptir ekki máli. Með hverjum þú ætlar að
„chill-a“ og hverjir eiga það ekki skilið að vera í lífi
þínu. Þér getur fundist eins og það sé verið að
ráðast á þig á einhvern hátt sem þú átt ekki skilið.
Og þar sem þú ert svo mikill magnari og magnar
upp huga þinn, þá skalt þú vita að þetta er eitt-
hvað sem þú ræður við. Það eru ýmsar breytingar
yfirvofandi sem tengjast því að þú færir þig til
eða skipuleggur mikla breytingu í lífi þínu, þetta
gæti samt tekið dálítinn tíma. En hugsunin er
byrjuð og allt byrjar nefnilega í hugsun. Það er
í eðli þínu að opna of marga möguleika, og ef
eitthvað klikkar þá getur þú farið eitthvað annað.
Í ástinni er svo mikilvægt að þú skoðir fyrir þig að
húmorinn er lykillinn að ástinni og hamingjunni
hjá þér. Leitaðu að einhverjum sem kemur þér til
að hlæja.
Besta spáin hingað til
Elsku hjartans krabbinn minn, það er hægt að
segja með sanni að þetta er þinn tími. Þín orka
hentar nákvæmlega inn í tímabil vorsins. Og þó
að þér finnist vera læti í kringum þig þá er eins
og þú látir þér fátt um finnast og heldur áfram
að þínu takmarki eins og eldspúandi halastjarna
sem enginn getur stöðvað. Það verður eldmóður
í talanda þínum svo að þú þarft ekki að setja
hugsanir þínar í excel, orðin munu koma frá þér
án þess að þú þurfir að hugsa þau fyrir fram
og skipuleggja, það er eins og þú fáir þennan
X-faktor til þess að verða stórmenni. Þetta er líka
sent til ykkar ef þið hafið haft hindranir í líkama
ykkar, veikindi í líkama eða huga, því góðar fréttir
og mikill kraftur munu hjálpa þér til að setja heil-
brigða stefnu í allt sem tengist sál þinni. Þetta er
besta spá sem ég hef nokkurn tíma sent ykkur,
elsku krabbalabbarnir mínir. Svona raðast þetta
upp hjá þér, svo vert þú þakklátur fyrir gjafirnar
sem alheimurinn gefur þér. Í ástinni skaltu setja
ástarorkuna til þín. Mottóið þitt ætti að vera:
Í upphafi skal ekki endirinn skoða, því að núið
gefur þér allt sem þú þarft.
Þú sérð ljósið í myrkrinu
Elsku dásamlega meyjan mín, þú virðist hafa þá
blessunarlegu hæfileika að geta breytt öllu því
neikvæða í jákvætt og sjá ljósið í myrkrinu. Þér
tekst að halda upp á það sem gerist í lífi þínu þó
að það sé lokastig skilnaðar. Þetta veit ég af því
að nokkrar meyjuvinkonur mínar eru að skilja og
ætla sér bara að halda upp á það, meðan við hin
myndum líklega væla í koddann. Það er ekki út af
neinu sem þú ert oft valin til þess að taka ábyrgð
í skóla eða vinnu og þarft að sýna leiðtogahæfi-
leika. Það eina sem getur orðið að hindrun er að
fá leiða á verkefninu, skólanum og svo framvegis.
Það sést langar leiðir ef persóna í meyjarmerkinu
er ekki á réttri leið í lífi sínu og skín ekki eins skært
og hún vill. Þín dásamlega pláneta Merkúr gerir
þig að snillingi í samskiptum, það er samt mikil-
vægt að þú hafir ekki þá tilhneigingu að þurfa að
láta aðra vita að þú hefur á réttu að standa, sem
þú yfirleitt hefur. Meyjarmerkið sem eru mér
nálægar og ég sækja oft fyrirmyndir mínar til per-
sóna sem eru í meyjarmerkinu. Það er mikilvægt
að þú skoðir að deyfa þig ekki með vímugjöfum
því að þú átt það til að draga þig svo langt niður.
Planaðu fram í tímann
Elsku vog, ég get ekki betur séð en að þú sért að
fara inn í tímabil sem er eins og þín besta versl-
unarmannahelgi. Það er mikið að gerast, margar
áhættur teknar og ótrúlegir sigrar yfir svo mörgu
að það sem miður fer virðist vera svo lítið og
óttalega ómerkilegt að ég nenni ekki einu sinni
að lýsa því. Það er eins og þú elskir spennuna
sem birtist þér í svo mörgum myndum. Þú átt
eftir að hafa góða yfirsýn og ná að gera hlutina
í hárréttri röð þannig að þér verður veitt athygli
fyrir margt. Þú átt svo sannarlega eftir að sjá það
að þú hefur kraft og orku til að standa þig í þeim
verkefnum sem eru yfir þér. Það er eins og þú
leggir þig 200% fram, þú munt vita að þetta er
þinn tími til að sýna þér þitt rétta andlit og vera
einlæg og segja nákvæmlega hvernig þú vilt hafa
hlutina. Ekki láta neinn í kringum þig þurfa að
geta í eyðurnar. Að hika er sama og tapa og þú
þarft að þora til að skora. Þetta er tímabilið sem
hugrekkið verður svo sannarlega vinur þinn. Þú
munt smávegis þurfa að plana fram í tímann, það
er nú alveg gott og blessað á meðan þú hefur
ekki hugann langt á undan þér í tímanum.
Slakaðu á og njóttu
Elsku sporðdrekinn minn, þú ert að fara inn á
tímabil þar sem er mjög mikilvægt að slaka á og
njóta. Ekki vera að flýta þér of mikið og reyna að
gera allt fyrir einhvern vissan tíma, gefðu frekar
þína ljúfu sál í það að gera eitt í einu. Þú hefur
óendanlegan næmleika fyrir lífinu, þú hefur
ástríðu til að sætta þig við allar mögulegar hliðar
sem lífið mun bjóða þér. Þú ert að ná svo sterkum
tökum á því að láta ekki gömul vandamál vera
að rjúka upp í kringum þig, því þá sérðu ekkert
nema móðuna sem er innan á gleraugunum sem
er auðvelt að þurrka af. Ég ætla sérstaklega að
ávarpa ykkur konur sem eruð í þessu merki, það
er að koma fram svo mikil kisulóra í ykkur, þið
sýnið svo mikið sex-appeal og útgeislun að það
gæti orðið pínulítil öfundsýki í kringum ykkur. En
öfundsýkin er alltaf tákn um vanmátt og enginn
sparkar í hundshræ svo það er aldrei sparkað í
þann sem ekkert hefur að gefa. Þú ert á mjög
góðu tímabili og eina hindrunin er að þú gefur of
stórt pláss í huga þínum í einskis nýtar hugsanir.
Þetta er tíminn sem þú þarft að efla orkuna þína.
Vertu sjálfum þér trúr
Elsku bogmaður minn, orkan sem verður yfir
þér á næstunni stoppar þig ekki í því sem þú vilt
gera, alveg sama hvað gerist. Þó þér finnist eins
og hlutirnir gerist ekki á þínum hraða þá er það
alveg á hreinu að það eru engin mistök í gangi, þú
ert að gera hárrétta hluti. Það er alveg sama hvað
þú ákveður, þú virðist taka réttu ákvörðunina.
Þú þarft að muna að þú ert eini dómarinn yfir
lífi þínu og að sjálfsögðu þarft þú að dæma þér í
hag. Þessi tími verður svo ótrúlega spennandi og
skemmtilegur ef þú ert sjálfum þér trúr. Það er
hægt að segja að þú hugsir dálítið öðruvísi en hin
stjörnumerkin og þú átt það til að vera aðeins á
undan með hugmyndir og skoðanir. Fólk getur
ekki alltaf haldið í við þig en það er í þínu eðli
að hafa alla í lífspartíi þínu. Þú átt erfitt með að
vera leiðinlegur og skaprauna fólki. Þú þarft að
nota þína snilligáfu til þess að aftengja þig frá
þeim sem spila ekki sömu tegund af músík og
þú. Hægt og rólega þarft þú að taka inn nýja orku
og nýja vini eða breyta áherslum um hvern þú
umgengst ef þér finnst þú vera fastur.
Hóaðu í vini þína
Elsku hjartans frábæra steingeitin mín, þú hefur
svo frjótt og athyglisvert ímyndunarafl svo hugur
þinn á auðvelt með að sveiflast frá einni hug-
mynd í aðra. Þú vilt vera sú persóna sem tekur
áhættu en það skiptir þig samt svo miklu máli
að vera heiðarleg og hafa allt á hreinu. Það getur
hindrað þig eins asnalega og það kann að hljóma.
Því það er í eðli þínu að gera allt fyrst fyrir aðra
og setja svo súrefnisgrímuna á sjálfa þig en þar
sem þú ert svo mikill töffari getur þú sett á þig
þannig grímu að öðrum finnist þeir ekki ná að
hjarta þínu. Og þú verður alltaf jafn hissa af því
þér finnst þú í raun vera með svo opið hjarta og
að öllum sé boðið inn. Í ástinni er í eðli þínu að
stjórna. Þú vilt gera nákvæmlega það sem þú vilt,
þó þú sért kurteis og hlýr við hinn aðilann. Yfir
þetta tímabil sem þú ert að fara í er það sam-
vinna sem stýrir ferðinni. Að vinna í einlægni með
ástinni, gefa nýjan kraft og innspýtingu í vinnuna
þína og ákveða hvar og hvernig þú vilt byggja upp
heimilið þitt. Hóaðu saman vinum þínum og já,
þú átt marga.
Breytingatímabil fram undan
Elsku hjartans vatnsberinn minn, það er að koma
eitthvað svo friðsöm, jákvæð, uppbyggileg og
himintær orka inn í þetta merki. Smátt og smátt
hefur verið að byggjast upp mikil orka sem
veitir þér styrk. Það er ekki eins og þú sért að
fara inn á mikið breytingatímabil, nema það sé
eitthvað sem þú ert búinn að ákveða og hugsa
um að framkvæma. Andlega verður þú sterkari
og sterkari og á því byggist lífið. Það eina sem
hefur hindrað þig undanfarið, hvort sem það
er í sambandi, vinnu eða lífinu hreinlega, er kvíði
yfir hinum veraldlegu gæðum sem þér finnst þú
þurfa að uppfylla. Ef engar áhyggjur væru tengdar
hinu veraldlega þá er ég sannfærð um að þú gætir
sagt: Ég er hamingjusamur vatnsberi. Þú ert svo
tilfinningamikill og átt það til að vera yfirdrifinn
sem er svo dásamlega skemmtilegt, en líka í senn
svo ofboðslega tilfinningasamur að ungfrú drama
getur átt það til að eiga heima í stofunni hjá þér.
Það er náttúrulega mjög óvanalegt hjá vatnsbera
en svona er þetta. Ef þú ætlar að vera rökréttur
eða reikna allt út þá líður þér illa.
Undir töfrakrafti ástarinnar
Elsku hjartans fiskarnir mínir, það er svo mögnuð
setning fyrir þig út þennan mikilvæga mánuð
sem að þú átt svo sannarlega einkaeign á, að
vandamál er bara hamingjan í vinnufötum. Ef þú
hefur ekki verið það heppinn að þurfa að takast
á við það vandamál þá værir þú ekki þessi dá-
samlega manneskja sem þú ert. Eftir því sem þú
verður eldri þá líður þér betur í eigin skinni. Svo
að þú skalt þakka fyrir hvert ár sem bætist við í
líflínuna þína. Ef allt hristist í þinni tilfinningaveru
þá ert þú að hafa áhyggjur af því sem hefur í raun
og veru ekki átt sér stað. Og það mun alltaf fylgja
þér sá kraftur sem heitir „þetta reddast“ og sú
setning er til bara í íslensku töluðu máli hef ég
heyrt. Þú vilt skipuleggja allt í þaula í kringum þig
og þar af leiðandi þreytir það þína tilveru þegar
fólk í kringum þig skilur ekki þessa skipulagstaktík
þína og fattar ekki þegar það gerir vitleysur. Þessi
mánuður og þetta ár er svo mikið betra en árið
2016, varðandi það hvernig þú tekur á hlutunum.
Þú ert undir töfrakrafti ástarinnar svo að jafnvel
hundarnir elta þig heim.
Hjartað er fullt af eldi
Elsku dásamlega ljón, þú hefur alltaf eitthvað að
segja og eitthvað til málanna að leggja. Það sem
mun gefa þér blessun þennan mánuð er að vera
ekki of einstrengingslegt og samskipti snúast
ekki um það að eiga síðasta orðið. Auðvitað er
það alveg á hreinu að þú ert gáfaðri en flestir
en það gerir ekkert fyrir þig ef þú kannt ekki að
efla tengslanet þitt og hafa virkni í kringum þig í
sambandi við það. Það er svo dásamlegt í ástinni
að þú leggur þig allt fram við að ná í þann sem þú
elskar, en átt það til að hætta og missa áhugann
þegar þér finnst þú hafa náð tökunum. Kraftur
ástarinnar er inni í stjörnumerkinu þínu núna svo
að hún eflir góða ást en sprengir vonda, og það er
eðli ástarinnar. Þú munt svo sannarlega sjá hverjir
eru þínir vinir, þegar þú skoðar það tímabil sem
að þú ert að fara inn í. Þar sem þú ert svo mögnuð
persóna og hjarta þitt fullt af eldi getur þú auð-
veldlega brennt bæði þig og aðra. Núna hefur þú
tækifæri til að fara í frelsið og friðinn með þessu
fágætu og fallegu vinum sem umkringja þig.
3 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r36 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Lífið
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
4
-1
1
3
4
1
D
1
4
-0
F
F
8
1
D
1
4
-0
E
B
C
1
D
1
4
-0
D
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K