Fréttablaðið - 22.06.2017, Side 23
Í lok síðustu aldar bar svo við að viðtalsþættirnir Maður er nefndur voru til sýninga í sjón-
varpi allra landsmanna. Sitt sýndist
hverjum um gæði þáttanna, hverra
stjórn var í höndum Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar prófess-
ors. Framleiðslan var í höndum
félags sem bar heitið Alvís, hvers
hagsmuna gætti Jón Steinar Gunn-
laugsson lögmaður og fyrrv. hæsta-
réttardómari.
Þeir sem hér hafa verið nefndir
til sögunnar, eru þekktir af öðru
en að leggjast í veg fyrir erindis-
menn Sjálfstæðisflokksins, og hafa
jafnvel tekið að sér slíkan erindis-
rekstur sjálfir af einhvers konar
sjálfsprottinni skyldu, þó að það
sé ekki til umræðu hér. Slíkt kann
að viðgangast í stjórnmálaflokkum
almennt. En hafa ber hugfast í þessu
sambandi að æ sér gjöf til gjalda –
og hvort kom á undan, hænan eða
eggið.
Greinarhöfundur veltir fyrir sér
í þessu samhengi hvort nýskipaður
dómsmálaráðherra, Sigríður Ander-
sen, nú fremst meðal jafningja sem
fánaberi fyrrgreindra erindisrek-
enda, hafi lagt sig fram um að kynna
sér efni umræddra sjónvarpsþátta,
og jafnvel ekki fundist neitt sér-
staklega mikið til þeirra koma. Það
skyldi þó ekki vera að ráðherra hafi
ákveðna andúð á því þegar menn
eru nefndir eða valdir af nefndum.
En fleira kemur til. Dómnefnd um
umsækjendur um embætti dómara
við Landsrétt hefur nýlokið störfum
og lagt fram ítarlega skýrslu ásamt
rökstuðningi til grundvallar ákvörð-
un sinni. Skýrslan er býsna góð.
Greinarhöfundur leyfir sér að halda
því fram að margir hæfir menn hafi
verið nefndir, þegar fyrrgreind hæf-
isnefnd komst að niðurstöðu sinni.
Það hvarflar ekki að greinarhöfundi
að halda að lögmenn séu annarrar
skoðunar en þeirrar, að ítarlegri og
vel rökstuddri niðurstöðu hæfis-
nefndar verði ekki breytt eða hún
felld úr gildi, nema með því að
hrekja rökin sem lögð eru til grund-
vallar niðurstöðunni hverju sinni –
eins og í tilfelli úrskurðar eða dóms
hjá dómstóli.
Dómsmálaráðherra er lögmaður
og starfaði sem slíkur um árabil
ásamt kollegum sínum á lögmanns-
stofunni Lex, m.a. við málarekstur
fyrir dómstólum. Ganga verður út
frá því sem vísu að ráðherrann sé
öllum hnútum kunnugur, hafandi
starfað sem lögmaður um árabil og
rekið mál fyrir dómstólum.
Hvað vakti fyrir þeim?
Það verður ekki hjá því komist að
velta fyrir sér hvað ráðherrann og
hans fólk voru að myndast við að
gera með umdeildum ráðstöfunum
sem nú hafa litið dagsins ljós og
gengist hefur verið við. Hvað vakti
eða vakir fyrir þeim? Við því hafa
ekki fengist viðhlítandi skýringar og
hefur háttsemin vakið spurningar
fremur en að veita svör. Útskýringar
sem hafa verið færðar fram verða að
teljast afar óljósar eða jafnvel ófull-
nægjandi. Er um að ræða einhvers-
konar Alvísan félagsskap, líkt og
forðum í sjónvarpsþáttaframleiðsl-
unni, sem fer fram eins og hentar
þó það kunni að líta undarlega út í
ljósi þess að um er að ræða ráðherra
í ríkisstjórn Íslands, ekki síst gagn-
vart þeim sem þurfa að gjalda fyrir
gjörðirnar.
Hins vegar verður ekki fram hjá
því litið þegar ákvörðun sérstakrar
hæfisnefndar, sem ekki er haldin
neinum formgöllum svo vitað sé,
liggur skýr fyrir ásamt rökstuðn-
ingi þá er eðlilegt að færð séu fram
viðhlítandi rök af hálfu ráðherra í
ríkisstjórn Íslands sem vill breyta
ákvörðun hæfisnefndar í veigamikl-
um atriðum. Er það eitthvert vafa-
mál? Hvers vegna kýs ráðherrann
að færa ekki fram viðhlítandi rök,
eins og ráðherra hefur praktíserað
undanfarin mörg ár sem starfandi
lögmaður?
Umrætt starfstímabil sem lög-
maður er ráðherra ofarlega í huga
eftir því sem best verður séð þegar
tekið er mið af breytingum sem
ráðherra gerði á niðurstöðu hæfis-
nefndarinnar. Ekki er ástæða til að
slá af kröfunum og gæðum vinn-
unnar þegar komið er í stól ráð-
herra, þvert á móti – bæta ætti í, og
það myndi um leið slá á efasemdar-
raddir í garð ráðherra og ekki síður
gagnvart nýjum dómstól. Það er
ákaflega mikilvægt og eðlilegt að
leitað sé skýringa á fyrrgreindri
framvindu mála.
Maður er nefndur, ráðherra
Gunnar
Árnason
starfar við
arkitektúr og
hönnun
Hvers vegna kýs ráðherrann
að færa ekki fram viðhlít-
andi rök, eins og ráðherra
hefur praktíserað undan-
farin mörg ár sem starfandi
lögmaður?
„Þig langar að halda partí
og bjóða öllum sem þú þekkir og
faðma þá, líka þessum í vinnunni
sem öllum finnst skrítinn.“
T H E G U A R D I A N
„Óbærilega spennandi.“
J O S E P H F I N D I
SUMAR-
SMELLURINN
Í ÁR!
Fullkomnar í fríið
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsin s | F i sk i slóð 39
Save the Children á Íslandi
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 23F i M M T u D A G u R 2 2 . j ú n í 2 0 1 7
2
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
2
6
-F
E
2
0
1
D
2
6
-F
C
E
4
1
D
2
6
-F
B
A
8
1
D
2
6
-F
A
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K