Fréttablaðið - 22.06.2017, Side 46

Fréttablaðið - 22.06.2017, Side 46
Armani hefur löngum lagt línurn- ar í tískuheiminum, hvort sem það er fyrir konur eða karla. Hann hefur líka verið umsvifa- mikill í hönnun fyrir kvikmyndir í Hollywood. Það eru mörg stór nöfn sem sýna þessa dagana í Mílanó og má þar nefna Armani, Versace, Fendi og Prada svo ein­ hverjir séu nefndir. Giorgio Armani vakti athygli fyrir frjálslega en samt glæsilega herralínu fyrir næsta sumar. Ljósir litir og þægileg efni voru allsráðandi. Gráir tónar virðast vera ríkjandi hjá Armani en þó mátti einnig sjá liti á borð við fjólublátt bregða fyrir. Tvíhnepptir jakkar og frakkar þóttu glæsilegir. Þægilegur klæðn­ aður sem fellur vel í kramið hjá yngri herramönnum. Armani er ítalskur tískurisi og einn af rík­ ustu mönnum heims. Fyrir utan að halda utan um þetta vinsæla tískumerki rekur hann lúxushótel. Það var Giorgio Armani sem átti hug­ myndina að því að klæða upp kvikmyndastjörnur áður en þær færu á rauða dregilinn og aðrir tísku­ hönnuðir tóku síðan upp eftir honum. „Af hverju ætti ég að þurfa að láta ein­ hvern klæða mig upp? Ég get gert það sjálf og hver er þessi Giorgio Armani?“ spurði leikkonan Mich­ elle Pfeiffer’s þegar ítalski tísku­ hönnuðurinn bauð henni kjól fyrir Holly­ wood veislu árið 1983. Hún var þá 23 ára og hefur varla klæðst öðru en fötum frá Armani síðan. Sömuleiðis hefur Jodie Fost­ er kosið föt frá Armani en það hafa líka Sophia Loren, Julia Robert, Beyoncé og Lady Gaga gert. „Það var Armani sem gerði kvik­ myndastjörnur að nútíma tísku­ drottningum,“ mun Anna Wintour, ritstjóri Vogue, hafa sagt. Armani hefur lengi hannað föt fyrir kvikmyndaiðnaðinn í Holly­ wood. Í fyrsta skipti fyrir Richard Gere í myndinni American Gigolo. Raunar var það Diane Keaton sem var fyrsta leikkonan til að mæta í Armani fötum á Óskarsverð­ launahátíðina árið 1978. Hún var í gráum Armani jakka við sítt pils og tók við verðlaunum fyrir leik sinn í kvikmyndinni Annie Hall. Armani hefur ávallt haldið sig til hlés þegar kemur að einkalífinu en ljósmyndarar sitja um hann. Arm­ ani er fæddur árið 1934 og hefur átt farsælan feril. Hann er ríkasti, vinsælasti og frægasti hönnuður Ítala. Á myndunum má sjá hvernig herrarnir ættu að klæðast næsta sumar vilji þeir heiðra Armani tískulínuna. Armani kynnir sumar 2018 Undanfarna daga hefur staðið yfir tísku- vika í Mílanó. Að þessu sinni er það vor- og sumartíska herra 2018 sem er á pöllunum. Fa rv i.i s // 0 61 7 KRINGLUNNI | 588 2300 KJÓLL 7.995 Fréttablaðið eykur þjónustu sína við lesendur á landsbyggðinni. Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á eftirfarandi sölustöðum víðsvegar um landið: 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 2 7 -1 6 D 0 1 D 2 7 -1 5 9 4 1 D 2 7 -1 4 5 8 1 D 2 7 -1 3 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 8 0 s _ 2 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.