Fréttablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 58
500 ÁSKRIFENDUR SPORTPAKKANS HAFA NÚ ÞEGAR UNNIÐ MIÐA FYRIR 2 Á VÖLLINN. 365.ISSÍMI 1817 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2017 KL. 17:00 HÁSTEINSVÖLLUR LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 KL. 16:00 AKUREYRARVÖLLUR MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2017 KL. 19:15 KÓPAVOGSVÖLLUR *miðað við 12 mánaða bindingu Tryggðu þér áskrift á aðeins 399 kr. á dag 11.990 kr. á mánuð i * VINNUR ÞÚ MIÐA Á LEIKINN? VERÐUR ÞÚ Í HÓPI ÞEIRRA HEPPNU Í NÆSTU UMFERÐ? Úrvalslið fyrri umferðarinnar Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir Bianca Elissa Sierra Ingibjörg Sigurðardóttir Lillý Rut Hlynsdóttir Guðný Árnadóttir Fanndís Friðriksdóttir Natalia Esteva Katrín Ásbjörnsdóttir Agla María Albertsdóttir Cloe Lacasse Sandra Stephany Mayor Gutierrez Fótbolti Þór/KA trónir heldur óvænt á toppi Pepsi-deildar kvenna með fullt hús stiga, nú þegar fyrri umferð tímabilsins er lokið og mótið því hálfnað. Liðið er með sex stiga forystu á Breiðablik og því langur vegur frá því að annar titill í sögu félagsins sé tryggður. „Ég átti von á Þór/KA í topp- baráttu en ekki í svona afgerandi forystu. Þetta minnir mig á Íslands- mótin þegar ég var að spila,“ segir Helena Ólafsdóttir, þjálfari ÍA og sérfræðingur 365 um Pepsi-deild kvenna. Fréttablaðið gerir nú upp fyrri hluta mótsins og tilnefnir lið umferðarinnar, besta þjálfarann, efnilegasta leikmanninn og þann besta – sem er Sandra Stephany Mayor Gutierrez hjá Þór/KA. „Hún og allir útlendingarnir hjá Þór/KA eru stórkostlegir en þeir gera líka leikmennina í kringum sig betri,“ segir Helena um Söndru Stephany og samherja hennar í Þór/ KA. Bíta litlu liðin frá sér? Þór/KA byrjaði sumarið á því að leggja Val að velli en Valskonum hafði skömmu áður verið spáð titl- inum. Sigur á Breiðabliki, sem er nú í öðru sæti, fylgdi svo í kjölfarið. „Mótið spilaðist vel fyrir þær því með þessum tveimur sigrum þá var komin trú í liðið. Sú trú hefur bara eflst eftir því sem liðið hefur á sum- arið,“ segir Helena og vonar auð- vitað til þess að síðari hluti mótsins verði spennandi. „Þó svo að það sé ljótt að segja það átti ég von á að FH myndi taka fyrstu stigin af Þór/KA í sumar. Það gerðist síðasta sumar að liðin í neðri hlutanum fóru að bíta frá sér og ef það gerist aftur þá gætum við fengið meiri spennu í mótið.“ Missir liðið fótanna? Helena bendir á að öll önnur lið í toppbaráttunni séu nokkurn veginn á pari miðað við það sem reiknað var með. Þór/KA hafi hins vegar farið langt fram úr væntingum. Næstu tveir leikir Akureyringa verða við Val og Breiðablik en að þeim loknum verður hlé gert á deildinni vegna EM í Hollandi. „Þessir leikir hafa mjög mikið að segja og maður veit ekki hvað gerist ef Þór/KA tapar leik. Missir liðið þá fótanna?“ spyr Helena. Valur tekur á móti Þór/KA á þriðjudagskvöld í næstu viku, en þá hefst 10. umferðin með fjórum leikjum. eirikur@frettabladid.is Yfirburðirnir óvæntir Sigurganga Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna hefur komið sparkspekingum að óvör- um en norðanstúlkur eru með fullt hús stiga að loknum fyrri hluta tímabilsins. Sandra Stephany Mayor Gutierrez er besti leikmaður fyrstu níu umferða Pepsi-deildar kvenna að mati Fréttablaðsins. Besti þjálfarinn Halldór Jón Sigurðs- son, þjálfari Þórs/ KA, er besti þjálfari fyrstu níu umferðanna í Pepsi-deild kvenna að mati Fréttablaðs- ins enda lið hans með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. Donni, eins og hann er kallaður, tók við liðinu fyrir þetta tímabil og fer því frábærlega af stað. Hann hefur verið óhræddur við að koma með stórar yfirlýsingar eftir leiki í sumar og stefnir á að vinna alla leiki í sumar. „Hann hleður trú í sína leikmenn. Þær trúa einfaldlega því sem hann segir og þess vegna trúir maður því sjálfur að þær geti unnið alla leiki í sumar,“ segir Helena Ólafsdóttir. Donni kom mörgum á óvart með því að stilla upp í þriggja manna varnarlínu í upphafi móts og hefur hann haldið tryggð við sitt leikkerfi, enda ekki ástæða til annars. Þór/KA hefur aðeins fengið á sig þrjú mörk í níu deildarleikjum í sumar. Besti ungi leikmaðurinn Agla María Albertsdóttir er sautján ára og hefur átt frábært sumar, ekki bara með Stjörnunni heldur einnig íslenska landsliðinu þar sem hún hefur fengið stór tækifæri í ár. „Það er stórkostlegt að fylgjast með henni. Hún átti til dæmis frá- bæran landsleik gegn Brasilíu og reiknaði maður með að eftir slíka frammistöðu myndi jafn ungur leikmaður og hún slaka aðeins á en það er ekki að sjá á henni. Hún heldur bara áfram,“ segir Hel- ena Ólafsdóttir. Freyr Alexand- ersson, landsliðs- þjálfari Íslands, mun í dag tilkynna leikmannahóp sinn fyrir EM í Hollandi og reiknar Helena með því að Agla María verði þar á sínum stað. „Ég held að hún sé að fara til Hollands og að hún verði þar með stórt hlutverk Úrvalslið fyrri umferðar Pepsi- deildar kvenna er skipað fimm leikmönnum frá toppliði Þórs/ KA. Breiðablik og Stjarnan eiga tvo fulltrúa hvort, FH og ÍBV einn. 2 2 . j Ú n í 2 0 1 7 F i M M t U D A G U R34 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð 2 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 2 6 -F E 2 0 1 D 2 6 -F C E 4 1 D 2 6 -F B A 8 1 D 2 6 -F A 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 0 s _ 2 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.