Ægir - 01.04.2016, Blaðsíða 14
14
„Við vorum að fá það sem við
köllum eina í net á nóttu. Það
eru sjö og hálfur kílómetri af
netum sem má vera með á bát í
dag. Við fengum rúmlega 400
grásleppur í þetta þegar við
drógum tveggja nátta og hlut-
fallslega svipað þegar við dróg-
um þriggja nátta. Við erum
búnir að fá um 2,9 tonn af grá-
sleppu úr tveimur ferðum. Við
erum með netin heimavið, eins
og við köllum það hér í Stykkis-
hólmi; vestan við Hólminn og
út að Höskuldsey í sunnanverð-
um firðinum. Þetta er svona
miðlungs veiði,“ sagði Páll Að-
alsteinsson grásleppukarl í
samtali við Ægi.
Ægir heyrði í Páli þann 28.
maí en hann gerir út bátinn
Önnu Karín frá Stykkishólmi við
annan mann. Þeir lögðu netin
20. maí og drógu þau svo 22.
og síðan 25. Síðan var búið að
vera sunnan rok á norðanverðu
Snæfellsnesi og ekki hægt að
koma nálægt netunum. Reynd-
ar hafði verið leiðinlegt veður
frá 22. maí. Á laugardagsmorg-
uninn, þann 28. maí, var vind-
hraðinn í Stykkishólmi 18 metr-
ar en Páll vonaðist til að komast
á sjó daginn eftir.
Markaðurinn heimtar vottun
„Fyrirtækið Agustsson hér í
Stykkishólmi kaupir gráslepp-
una heila af okkur. Eftir að MSC
vottunin kom á grásleppuveið-
arnar landa menn helst heilum
fiski í fyrirtæki sem hefur vottun
á vinnsluna. Þá er komin vottun
bæði á veiðar og vinnslu. Þeir
sem eru að salta sjálfir og eru
ekki með vottun eiga í erfiðleik-
um með að selja hrognin nema
á lægra verði. Markaðurinn
heimtar vottun,“ sagði Páll.
Páll er ekki sáttur við verðið
fyrir grásleppuna og hrognin.
„Það er eins og allt hjálpist að til
að eyðileggja þessar veiðar sem
atvinnugrein. Við erum búnir
að vera í þessu í 20 ár og aldrei
sleppt úr vertíð. Þegar við byrj-
uðum mátti vera með 300 net í
þrjá mánuði, en í dag er þetta
komið niður í 200 net í 32 daga
í staðinn fyrir 90. Þetta er því
ekki hægt að stunda nema sem
hobbý í einn mánuð með ann-
arri vinnu. Þegar dögunum var
fækkað niður í 50 á sínum tíma
Páll Aðalsteinsson við bát sinn, Önnu Karín SH, í höfninni í Stykkishólmi.
S
jóm
en
n
sk
a
n