Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.2016, Side 19

Ægir - 01.04.2016, Side 19
19 Lífríkið breytist hratt Við bíðum með að rekja ferilinn sem er orðinn langur, bæði á kaupskipum og fiskiskipum og ræðum frekar um það sem hef- ur verið að gerast í lífríkinu samfara hlýnun sjávarins. „Manni finnst breytingin allt- af að verða hraðari. Áður veidd- ist skötuselurinn bara hér fyrir sunnan land, frá Hornafirði að Grindavík. Nú veiðist hann alls staðar. Blálanga sem var bara fiskur í djúpköntunum hérna áður er komin upp á grunnslóð með vesturströndinni. Svo er makríllinn kominn, en við erum ekkert búin að sjá fyrir endann á því hvaða áhrif hann hefur til lengri tíma, því hann tekur svo mikið af æti. Með svona breyt- ingum kemur eitthvað nýtt inn og annað færist til. Túnfiskurinn er til dæmis kominn miklu nær landinu en áður var. Núna er ufsaveiði mjög lítil og hefur ver- ið síðasta ár. Hann virðist ganga eitthvað dreifðari en áður. Hvort það er afleiðing af því að makríllinn er búinn að éta frá ufsanum ætið, sem hann er að sækjast í þegar hann þjappar sér saman, veit maður ekki. Það hefur verið mjög erfitt að ná í ufsa síðasta ár þó hann hafi veiðst grunnt með landinu þar sem hann hefur verið í ein- hverju öðru æti, eins og síld,“ segir Hilmar. Býst við niðursveiflu Hilmar segir breytinguna mikla og hver endanleg áhrif verði sé erfitt að átta sig á. Svona hlýn- unarskeið hafi komið áður og gengið til baka. Það sé engu að síður áleitin spurning hvort þessar breytingar leiði til niður- sveiflu í þorskinum. Árin 1970 til 1980 hafi meðalveiðin á tog- ara ekki verið mikil á dag. „Þegar ég var fyrir norðan á Júlíusi Hafstein kringum 1980 var meðalafli á úthaldsdag á togara ekki nema á milli sjö og átta tonn. Núna er þetta 30 til Hilmar í brúnni á Hrafni Sveinbjarnarsyni. „Nú liggur við að þetta sé eins og á hóteli. Ein veigamesta breytingin er þegar áhöfnin fór að geta haft regluleg samskipi við fjölskylduna í landi. Nú eru skipin nettengd og menn nota bara sinn síma og sína tölvu í gegnum gervihnött til að hafa samband í land, til dæmis á Facebook.“

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.