Ægir - 01.04.2016, Blaðsíða 28
28
Allir landsmenn hafa heyrt fréttir af björgunarstarfi Landhelgis-
gæslu Íslands – sem oftast er aðeins kölluð Gæslan – hvort heldur
það er á sjó eða landi. Fréttir um skipverja sem bjargað er úr sjávar-
háska, af veikum sjómönnum sem sóttir eru á haf út, af fjallgöngu-
mönnum sem slasast og kalla eftir þyrluaðstoð og þar fram eftir
götunum. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sefur aldrei og þaðan
er öllum björgunaraðgerðum stýrt, allt frá útkalli til loka aðgerðar.
Stjórnstöðin er samhæfing-
ar- og þjónustuaðili fyrir alla
starfsemi Landhelgisgæslunnar
en undir hana fellur einnig vakt-
stöð siglinga (VSS). Hún hefur
sérstöðu umfram hefðbundnar
stjórn- eða vaktstöðvar þar sem
mikilvæg samræming allrar
starfsemi Landhelgisgæslunnar
fer þar fram.
Samhæfir verkefni og fjarskipti
Stjórnstöðin sinnir allri neyðar-
símsvörun fyrir Landhelgisgæsl-
una og boðar gæslueiningar og
viðbragðsaðila í útköll, samhæf-
ir verkefni þeirra og sér um fjar-
skipti. Sem dæmi um umfang
starfseminnar má nefna að þeg-
ar mest er berst stöðinni um ein
og hálf milljón tilkynninga á sól-
arhring um tölvuvædd fjareftir-
litskerfi ein og sér.
Beiðnir um hjálp eða aðstoð
berast yfirleitt fyrst til stjórn-
stöðvarinnar sem setur í gang
fyrstu aðgerðir eftir eðli máls
hverju sinni. Boð berast oft
gegnum fjarskiptabúnað stöðv-
arinnar eða VSS, frá Neyðarlín-
unni, lögreglu eða öðrum aðil-
um.
Fjórþætt meginstarfsemi
Verkefni stjórnstöðvar LHG eru í
meginatriðum fjórþætt: hún er
fjarskiptastöð fyrir varðskip og
gæsluloftför, björgunarstjórn-
stöð og hlekkur í hinu almenna
öryggiskerfi landsins, fjareftir-
lits- og fiskveiðieftirlitsstöð og
móttökustöð tilkynninga er-
lendra skipa vegna siglinga
þeirra um lögsöguna, komu
Hin sívökulu augu
Gæslunnar
litið inn í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar við Skógarhlíð
þar sem vaktin er staðin allan sólarhringinn, árið um kring
Vaktstöð siglinga er einn af grunnþáttum starfseminnar en undir hana fellur m.a. tilkynningarskylda fiskiskipa.
Ö
ry
g
g
ism
á
l