Ægir - 01.04.2016, Page 32
32
Samband íslenskra sjóminjasafna var stofnað 15. október 2006 og
á því 10 ára afmæli á þessu ári. Að sögn Helga Mána Sigurðssonar
formanns er sambandið samstarfs- og samráðsvettvang sjóminja-
safna í landinu og er markmið þess að efla og skipuleggja varð-
veislu sjóminja og koma á samstarfi um skráningu. Einnig að auka
rannsóknir, efna til samstarfs um sýningar og standa sameiginlega
að kynningu á sjóminjum Íslands. Í sambandinu eru liðlega 20
sjóminjasöfn, setur og sýningar og er þetta stærsti flokkur sérsafna
á Íslandi.
Dramatík í kringum
sjávarútveginn
Að sögn Helga Máni má skipta
þróun minjasafna á Íslandi í
þrjá megin þætti. Í fyrsta lagi er
það Þjóðminjasafnið sem var
stofnað 1863. Síðan koma
byggðasöfnin upp úr 1940, sem
lögðu megináherslu á sveita-
menninguna og í þriðja lagi
nefnir hann sérsöfn sem hefur
fjölgað mikið síðustu 20-30 ár-
in. Flest sérsöfnin tengjast
sjóminjum en einnig hafa önn-
ur söfn skotið upp kollinum
eins og til dæmis Smámuna-
safnið í Eyjafirði og Hönnunar-
safnið í Garðabæ. Helgi segir að
áhugi almennings og aðsókn
að sjóminjasöfnum hafi aukist
ár frá ári. Ekki eingöngu vegna
aukins straums erlendra ferða-
manna heldur segir hann
áhuga Íslendinga einnig vax-
andi.
„Það er sífellt stærri hópur
sem hefur áhuga á íslenskri
menningu og sögu. Erlendir
ferðamenn þekkja Ísland sem
sjávarútvegsland og kannanir
sýna að næst á eftir því að
skoða náttúru landsins hafa
þeir áhuga á að kynna sér
menningu og sögu Íslendinga.
Það er mikil fjölbreytni og
dramatík í kringum sjávarút-
veginn sem löngum hefur verið
hættulegasti atvinnuvegur
þjóðarinnar,“ segir Helgi.
Dýrt að varðveita báta
Aðspurður hvort söfnin ráði við
að varðveita allar sjávarút-
vegsminjar sem til eru í landinu
segir Helgi það óljóst. „Í um-
ræðum um stofnun Sjóminja-
safnsins í Reykjavík fyrir 12 ár-
um varð ég var við að menn
óttuðust að það væri of seint af
stað farið. Það er að vissu leyti
rétt en þótt mikið sé horfið er
samt heilmikið enn eftir sem er
þess virði að halda til haga.“
Helgi segist bjartsýnn á
framtíð íslenskra sjóminjasafna
en mörg brýn verkefni séu
Aukinn áhugi almenn-
ings á sjóminjasöfnum
Samband íslenskra sjóminjasafna fagnar 10 ára afmæli
Helgi Máni Sigurðsson formaður Sam-
bands íslenskra sjóminjasafna segir er-
lenda ferðamenn þekkja Ísland sem sjávar-
útvegsland og kannanir sýni að næst á eftir
því að skoða náttúru landsins hafi þeir
áhuga á að kynna sér menningu og sögu Ís-
lendinga.
S
jóm
in
ja
v
a
rsla