Ægir

Volume

Ægir - 01.04.2016, Page 48

Ægir - 01.04.2016, Page 48
48 kerfi dugi ekki til að verja dreifðu byggðirnar og smá- bátaútgerð til framtíðar. „Eftir því sem ég velti þessu meira fyrir mér og sé af reynslunni þá væri besta leiðin að bátar fengju ákveðna lögsögu út frá sínum heimahöfnum, að þeim yrði tryggður réttur til veiða á sínum svæðum. Landhelgi upp á til dæmis tvær til þrjár mílur frá heimahöfn. Á miðunum hér í kringum Vestmannaeyjar sést vel hvernig þróunin hefur orðið því á þá slóð sem við á litlu bát- unum höfum verið á í ár og ára- tugi eru nú komin stór línuskip, sum hver lengra að. Í dag geta allir fylgst með öllum, séð stað- setningar og afla ég hef marg- oft séð að stóru línuskipin fara strax í kjölfarið á okkur og leggja línuna á sömu svæði þegar við erum farnir í land. Ég hef líka upplifað það að þurfa frá að hverfa vegna þess að það var hreinlega ekkert pláss leng- ur á hefðbundnum svæðum okkar hér við Eyjarnar. Þess vegna er ég þeirrar skoðunar að ef menn raunverulega vilja tryggja útgerðir minni bátanna þá þurfi að koma á betri stýr- ingu á þessu,“ segir Georg. Í háska við Ystaklett Georg er borinn og barnfæddur Eyjamaður af sjómannaættum sem hóf sjómennsku fyrir tæp- um þremur áratugum á skut- togurum en segist ekki hafa heillast af þeim veiðiskap. Á fyrsta bátnum sem hann eign- aðist kynntist Georg því vel að veður geta snögglega breyst og sett litla báta í stórhættu. „Þennan bát keypti ég sum- arið 1989 og í desember það ár fór ég í róður í blíðskaparveðri og hélt hér vestur fyrir eyjuna. Þegar ég var að fara fyrir klett- inn tók ég eftir að það var mjög þung undiralda þannig að ég hafði vara á mér. Þegar ég var kominn stutt vestur fyrir klett- inn brast á með yfir 20 metra vindi og ölduskaflarnir voru eft- ir því. Ég sneri því strax í land en þegar ég kom aftur að klett- inum voru öldurnar milli Ysta- kletts og Faxaskers fjallháar. Báturinn var afturbyggður með stuttum hvalbak og þegar ég keyrði upp í fyrstu ölduna fékk ég hana beint ofan í bátinn og þá næstu líka þannig að á auga- bragði var báturinn að fyllast af sjó. Í sortanum sá ég að þriðja aldan og sú stærsta nálgaðist þannig að ég ákvað í skyndingu að setja á fulla ferð upp í hana en um leið og hún skall á bátn- um snerist hann á punktinum undan öldunni. Því var ekkert um annað að ræða en komast norður fyrir í skjól og það tókst en báturinn var orðinn hálffull- ur af sjó og vélin byrjuð að hiksta. Það var því ekkert um annað að ræða en setja út ból og byrja að ausa. Þegar þarna var komið kom kunningi minn aðvífandi og við ákváðum að setja út fleiri ból og stefna svo á að sækja bátinn þegar veðrinu slotaði. Það varð úr og ég fór með í land en svo fór að ekki var hægt að komast út til að vitja um bátinn fyrr en á þriðja degi og þá var hann horfinn. Þannig að einhvers staðar þarna á hafsbotninum liggur hann,“ segir Georg en báturinn bar nafn langafa hans, Siggi Munda. Næsta bát skírði Georg sama nafni en þann bát missti hann síðar á uppboði og sagði móðir hans þá að augljóslega væri langafi Georgs ekkert hrif- inn af því að hann notaði nafnið á báta. „Þetta veður sem þarna brast skyndilega á er dæmigert fyrir það sem oft gerist hér. Ef spáð er ákveðinni austanátt þá má treysta því að ekki er fært á sjó fyrir okkur á litlu bátunum. Sú vindátt er mjög vond hér við Eyjarnar - það hefur maður lært af reynslunni í gegnum árin,“ segir Georg. Ný ríkisstjórn er eina vonin Núverandi bát, Blíðu VE 26 keypti Georg árið 2013 og hefur fiskað vel á hann. Mikilvægur hluti útgerðarinnar hafa verið sumarveiðar á löngu og veiddi hann á annað hundrað tonn af henni á einu sumri þegar best gekk. Kvóti er hins vegar orðinn mjög lítill á löngu, verð á henni lágt og stærri línubátar æ meira á sömu veiðislóð og Georg hef- ur verið vanur að vera á þannig að hann segist hafa séð þann kost vænstan við þessar að- stæður að fara eftir vetrarver- tíðina í mjaðmaaðgerð sem fyrir lá. Síðan ætli hann að sjá hvað setur. „Ég hafði sett mér það mark að ná 30 árum í sjómennskunni en eins og þetta lítur út hjá mér núna er óvíst að svo verði. Ég verð á annarri mjöðminni eitt- hvað fyrst um sinn en eina von- in til breytinga á kerfinu er að ný ríkisstjórn í haust geri ein- hverjar breytingar sem bæta aðstæður fyrir útgerðir eins og mína. Það er eina vonin. Ég er alveg búinn að afskrifa það að þessi ríkisstjórn breyti einhverju til batnaðar.“ Georg landar úr Blíðu VE. Miðhella 4 | 221 Hafnarfjörður | www.naust.is | naust@naust.is | sími 414 8080 Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra okkar bestu kveðjur í tilefni af sjómannadeginum

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.