Ægir - 01.04.2016, Síða 50
50
Í Húsi sjávarklasans við Vesturhöfnina í Reykjavík eru yfir 60 fyrir-
tæki og frumkvöðlar í hafsæknum greinum á Íslandi. Alls starfa
um 140 manns í húsinu í fyrirtækjum sem fást við fiskeldi, fisksölu,
hugbúnaðargerð, hönnun, líftækni, ráðgjöf, rannsóknum, sjávar-
útvegstækni, snyrtivörur og sitthvað fleira. Eitt þessara fyrirtækja
er verkfræði-og ráðgjafafyrirtækið NAVIS sem hefur tekið þátt í
starfi sjávarklasans á þriðja ár. „Þessi samstarfsvettvangur hefur
opnað okkur nýjar víddir þar sem við njótum nálægðar og sam-
starfs við önnur fyrirtæki í greinum sem tengjast sjávarútvegin-
um,“ segir Hjörtur Emilsson framkvæmdastjóri NAVIS. Hann segir
dagleg samskipti og návígi við fólk í ólíkum greinum stuðla að sam-
starfi og miðlun hugmynda á milli manna og fyrirtækja. Hjörtur
nefnir sem dæmi samstarfið um Green Marine Technology sem hef-
ur það yfirlýsta markmið að þróa umhverfisvænar lausnir sem
byggja á grænni orku og minni olíunotkun aukinni framleiðslu og
framlegð.
Þróa tvinn línubát
Meðal verkefna NAVIS er að
þróa fyrsta hybrid línubátinn á
Íslandi. NAVIS hefur ásamt
Naust Marine og Nýorku sótt
um styrk til Rannís til þessa
verkefnis og er hugmyndin að
hanna nýjan 15 metra línubát
með hybrid framdrift sem
gengur bæði fyrir rafmagni og
dieselolíu og síðar jafnvel fyrir
rafmagni og metanoli en þá
væri hægt að gera hann alfarið
út með íslenskri orku.
„Í stað þess að breyta eldri
bát viljum við hanna nýjan bát
frá grunni þannig að hægt sé
að nýta til fulls þá möguleika
sem þessi tækni býður upp á,“
segir Hjörtur. Hann segir verk-
efnið framhald af meistaraverk-
efni sem Alexander Andersson
skipaverkfræðingur hjá NAVIS
vann ásamt samnemanda sín-
um og fólst í að kanna hag-
kvæmni þess að setja tvinnkerfi
í 56 metra línuskip.
30% eldsneytissparnaður
„Það bendir allt til að með hy-
brid framdrift megi spara allt að
30% af eldsneytiskostnaði í
svona útgerð miðað við diesel-
olíu og ennþá meira ef farið er
yfir í metanol,“ segir Hjörtur.
Hann segir að til þessa hafi ekki
verið mikið hugað að orkunýt-
ingu minni báta sem margir séu
mjög afkastamiklir og með stór-
ar vélar. Margir séu upphaflega
hannaðir til að ganga allt að 25
til 30 mílur en rannsóknir bendi
til að þeir fari sjaldnast yfir 10
mílur og 60% tímans séu þeir á
0 til 3ja mílna ferð. Með breyttri
hönnun og minni vélum megi
ná fram miklum sparnaði. „Við
teljum tímabært að staldra við
og velta fyrir sér aukinni hag-
kvæmni í þessari útgerð.“
Hjörtur segist verða var við
talsverðan áhuga bæði meðal
sjómanna og útvegsmanna á
þessum hugmyndum.
Áhersla á umhverfisþætti
„Í hönnun okkar leggjum við sí-
fellt meiri áherslu á orkusparn-
Tilraunaverkefnið um fyrsta hybrid línubátinn er framhald á meistaraverkefni Alexanders Andersson skipaverkfræðings hjá NAVIS sem hér er
ásamt Hirti Emilssyni framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Aukin áhersla á orkusparn-
að og umhverfi í hönnun
Þ
lón
u
sta