Fréttablaðið - 15.07.2017, Blaðsíða 80
Ólíkt strákunum
verðum við ekki
ríkar af því að spila
fótbolta og því snýst
starfsaldurinn ekki um
að fylla á bankabókina.
Hjá konum snýst fótbolti
um leikgleði.
Eyjameyjan
Margrét Lára
fæddist 25. júlí
1986. „Mamma
fór með mig
vikugamla í
Dalinn og ég hef
varla misst úr
Þjóðhátíð síðan.
Ég reikna með
að fara heim til
Eyja, til mömmu
og pabba með
fjölskylduna,
þegar heim
kemur af EM,
enda hvergi
betra að vera
um verslunar-
mannahelgina.“
MYND/EYÞÓR
Ég held að fyrsti leikurinn gegn Frökkum fari 0-0, sem eru stórkostleg úrslit á móti Frakk-
landi, og ef Ísland vinnur ekki EM,
þá vinnur Frakkland,“ segir Margrét
Lára Viðarsdóttir, full bjartsýni og
trúar á gott gengi íslenska lands-
liðsins.
„Frakkar eru líklega með sterkasta
liðið og því er kostur fyrir okkur að
keppa á móti þeim í fyrsta leiknum;
þegar okkar lið er í toppformi. Það er
nefnilega útilokað að skora hjá okkur
þegar við vinnum varnarvinnuna og
færslurnar upp á tíu og það verður
skellur fyrir Frakkana sem ég hlakka
til að sjá skjálfa á beinunum.“
Margrét Lára var fyrirliði íslenska
kvennalandsliðsins þar til liðbönd
slitnuðu í hné hennar í maí. Fram
að því hafði hún tekið fullan þátt í
undirbúningnum fyrir EM.
„Ég neita því ekki að vonbrigðin
eru mikil og þau mestu á mínum
ferli. Ég hef gengið í gegnum ýmis-
legt, farið í aðgerðir aftan á lærum,
lenti í ofþjálfun á yngri árum og
krónískum meiðslum. Í haust fór ég í
síðustu aðgerðina til að ljúka því ferli
og gekk vel. Því er gríðarlegt áfall að
lenda í þessu nokkrum mánuðum
síðar og gæti ekki verið verra fyrir
mig sem íþróttamann, þótt ég geri
mér grein fyrir að verri hlutir henda
fólk í lífinu.“
Þrátt fyrir mótlætið er Margrét
Lára hin brattasta og tekst á við langt
og strangt endurhæfingarferli eins og
sannur íþróttamaður.
„Ég er vön að leggja mig fram meira
en hundrað prósent og þegar hnéð
verður tilbúið, eftir níu mánuði til
ár, mun ég gera það sem mig langar
að gera. Ég er þegar byrjuð að byggja
mig upp, ætla mér að klára þetta
verkefni með stæl og reikna með að
ná fullum styrk. Þá verður ekkert til
fyrirstöðu að spila fótbolta á ný.“
Fóturinn er tregur í taumi og segir
orkuboltinn Margrét Lára lífsgæða-
skerðinguna mikla.
„Það er ekki bara tekinn af manni
fótboltinn heldur get ég hvorki
hjólað, farið í golf né fjallgöngur eins
og er mitt líf og yndi. Þessu þarf ég
að aðlagast en þegar einar dyr lokast
opnast aðrar og það hugarfar mun
koma mér í gegnum þetta ferli.“
Uppgjöf er ekki til í orðabók Mar-
grétar Láru sem horfir bjartsýn fram
á veginn.
„Þetta er auðvitað áfall á jafn stóru
ári fyrir íslenskar knattspyrnukonur,
en nú er að koma hnénu í stand
og hafa val um hvað gerist í fram-
haldinu. Hingað til hafa stórmót
verið haldin á fjögurra ára fresti en
nú ætlar landsliðið sér á HM 2019 og
lít ég hýru auga til þess.“
Gleðistundir og tregatár
Elísa Viðarsdóttir, landsliðskona í
knattspyrnu og systir Margrétar Láru,
gengur nú í gegn um sama ferli með
slitin krossbönd og var aðeins vika á
milli skurðaðgerða hjá systrunum.
„Við Elísa ætlum okkur að fara
í gegn um þetta saman og erum
duglegar að berja hvora aðra áfram.
Það verða gleðistundir á leiðinni en
örugglega falla líka tregatár og þá er
gott að hafa hjá sér þann sem er á
sama stað og maður treystir. Sam-
band okkar systra hefur alltaf verið
gott en aldrei betra en nú. Mér hefur
lærst að þegar eitthvað er frá manni
tekið fær maður annað í staðinn.“
Systurnar ætla að sjálfsögðu til
Hollands til að hvetja íslenska lands-
liðið til dáða.
„Í Hollandi verð ég stuðnings-
maður númer eitt og við systurnar
bláklæddar í stúkunni. Því hlutskipti
munum við sinna vel og verðum
til halds og trausts ef óskað er. Að
mörgu leyti lít ég enn á mig sem
leiðtoga liðsins og er að sjálfsögðu til-
búin til að gera hvað sem ég get til að
hjálpa liðinu. Ferlið hefur verið langt
og strangt og ég finn að ég er ekki til-
búin að klippa á strenginn.“
Á ferli sínum með landsliðinu
hefur Margrét Lára skorað fleiri mörk
en brasilíska goðsögnin Pelé. Hún er
í 7. sæti yfir markahæstu leikmenn
Evrópumóta Evrópska knattspyrnu-
sambandsins (UEFA) en á þeim
lista er hún markahærri en Zlatan
Ibrahimovic sem hefur skorað 82
mörk en Margrét Lára hefur skorað
84 mörk. Í sætinu ofan við Margréti
Láru er Lionel Messi.
„Það eru laun erfiðisins að vera
á slíkum listum og ég er vitaskuld í
skýjunum með það. Svona árangur
kemur ekki af sjálfu sér heldur er
afrakstur margra ára þrotlausrar
vinnu og ástríðu fyrir fótbolta. Ég hef
alltaf sett mér háleit markmið, bæði
með liðum en líka sem einstaklingur.
Það er uppörvandi og hjálpar á
tímum mótlætis að sækja í þessar
tilfinningar; að vera á toppnum,
skora mörk, leiða landsliðið inn á
völlinn og vera leiðtogi Vals; og finna
löngunina til að ná árangri og vera
best. Þegar það gerist gleymir maður
öllu því erfiða.“
Vill hjálpa öðrum
Margrét Lára er menntuð í sálfræði
og íþróttafræði og stefnir á útskrift
sem íþróttasálfræðingur að ári.
„Draumur minn er að hjálpa
öðrum íþróttamönnum, því ég hef
óneitanlega mikla reynslu af mót-
læti, meiðslum og neikvæðum pakka
íþróttanna. Áhugi minn liggur á
andlega sviðinu og það hefur hjálpað
mér að hafa menntun á þessu sviði.
Það er ekki í boði að leggjast í volæði
og gera alla vitlausa í kringum sig.
Fyrir mér er bara ein leið og hún er
áfram. Vissulega er stutt í reiðina,
gremjuna og vonleysið og því er
þetta andlega erfiðara en ætla mætti.
Líkaminn jafnar sig frá náttúrunnar
hendi en það er meiri áskorun að
koma hausnum í lag.“
Móðirin Margrét Lára á þriggja ára
gamlan son sem hún hefur tekið með
sér í æfinga- og landsliðsferðir.
„Syni mínum þykir gaman að
sparka fótbolta með mömmu sinni
og það væri gaman ef hann fengi
áhuga á fótbolta í framtíðinni. Börn
verða þó að fá að vera börn og feta
sinn veg sjálf, en ég mun styðja
hann alla leið, hvað sem verður fyrir
valinu.“
Hún segir vel hugsað um mæður
í landsliðinu þótt eflaust mætti gera
betur.
„Það er nýtt hjá þjálfurum félags-
og landsliða að hafa margra barna
mæður í liðunum, en það á ekki að
vera endastöð á fótboltaferlinum
fyrir konu að eignast barn. Slíkt væri
bæði fásinna og gamaldags. Þvert
á móti þarf að vera hvetjandi fyrir
konur að koma til baka og finna
stuðninginn því það skiptir sköpum
fyrir mæðurnar þegar börnin eru lítil
og háð okkur, og við háðari þeim.
Sé einhver á móti því eða lítur á það
sem vandamál getur það orðið erfitt.
Sjálf hef ég upplifað mikinn stuðning
og veit að Harpa Þorsteinsdóttir,
sem nú fer út með hvítvoðung, fær
hann líka, sem er mikilvægt því hún
er fyrirmynd í þessu og sýnir öðrum
stelpum að það er allt hægt og að það
standi allir saman í þessu.“
Aðbúnaður og umgjörð kvenna-
landsliðsins fer líka batnandi í
samanburði við karlalandsliðið, að
sögn Margrétar Láru.
„KSÍ gerir sitt besta en við viljum
auðvitað að skrefin upp á við séu
stærri. Við kvörtum þó ekki og ég
finn mikinn mun á því að fara núna á
EM og fyrir fjórum árum. Ekki síst frá
þjóðinni sem hefur tekið heljarstökk
upp á við í stuðningi við liðið. Sjálf fer
ég varla út í búð án þess að einhver
óski mér gæfu og velgengni. Það er
yndisleg upplifun og oft er ég svo
snortin að ég næ ekki að þakka fyrir
mig. Því þegar hjarta manns er sært
hlýjar það ótrúlega að finna stuðning
fólks sem ég þekki ekki neitt. Þjóðin
stendur þétt við bakið á okkur og við
spilum stoltar fyrir Íslands hönd.“
Á meðan á EM stendur verður
Margrét Lára 31 árs, þann 25. júlí.
„Okkar fyrrverandi fyrirliði, Katrín
Jónsdóttir læknir, spilaði landsleiki
þar til hún var orðin 37 ára og braut
blað í þeirri sögu. Það er ekkert því
til fyrirstöðu að vera knattspyrnu-
kona svo lengi sem líkaminn leyfir og
gleðin er til staðar. Ólíkt strákunum
verðum við ekki ríkar af því að spila
fótbolta og því snýst starfsaldurinn
ekki um að fylla á bankabókina. Hjá
konum snýst fótbolti um leikgleði
en það fer mikill tími og fjarvera frá
fjölskyldu í að vera í landsliðinu og
alltaf spurning hversu miklu þær vilja
fórna fyrir boltann.“
Liðsandi meðal íslensku lands-
liðskvennanna er einstakur. „Við
erum nánar og hlæjum og grátum
saman. Eðlilega er innbyrðis sam-
keppni, en hún á að vera til staðar og
við látum hana aldrei brjóta niður
liðsandann. Það er óskrifuð regla
innan hópsins að láta eiginhagsmuni
eða samkeppni aldrei vinna á móti
liðsheildinni. Það er hún sem fleytir
íslenskum liðum langt og um það
erum við meðvitaðar.“ thordisg@365.is
Ísland vinnur EM í Hollandi
Það stingur djúpt í hjartað að vera ekki með á EM, segir Margrét Lára Viðarsdóttir, skærasta stjarna
íslenska kvennalandsliðsins, sem varð frá að hverfa vegna meiðsla á síðustu stundu.
34 áfRaM ÍsLaND 1 5 . j ú L í 2 0 1 7 L aU G a R DaG U R
1
5
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
5
2
-F
5
2
8
1
D
5
2
-F
3
E
C
1
D
5
2
-F
2
B
0
1
D
5
2
-F
1
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K