Fréttablaðið - 15.07.2017, Blaðsíða 24
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Það hjálpast allir að
og allir eru með
sama markmið, að gera
allt fyrir stelpurnar. Þær
gefa svo mikið af sér og
þá vilja allir gera enn
meira.
Liðið hefur æft stíft fyrir keppnina og ætlar sér alla leið.
Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í haust þegar liðið tryggði sig í keppnina.
Þá fór allt á fullt. En við höfðum
auðvitað haft þetta bak við eyrað
lengur, stefnan var alltaf að fara
til Hollands,“ segir Guðrún Inga
Sívertsen, varaformaður KSÍ og
formaður landsliðsnefndar, en hún
er fararstjóri íslenska landsliðs-
hópsins á EM í Hollandi.
Þetta er í þriðja sinn sem Guð-
rún Inga heldur utan um íslenska
hópinn í lokakeppni EM og segist
hún reynslunni ríkari. Handtökin
séu mörg og margt þurfi að ganga
upp. Hún finni þó ekki fyrir stressi.
„Ég vil frekar kalla þetta tilhlökk-
un. Loksins er komið að þessu og
við erum öll með fiðring í magan-
um,“ segir Guðrún Inga. „Markmið
okkar er að hafa aðbúnaðinn eins
góðan og mögulegt er fyrir stelp-
urnar. Þær eiga ekki að þurfa að
bíða eftir neinu neins staðar. Við
viljum hafa umgjörðina eins flotta
og hægt er og þetta er heilmikið
umstang. Liðsstjórar fóru út á
undan liðinu með allan búnaðinn,
meira en hundrað kassa af ýmiss
konar dóti. Það fer einnig stór
hópur af starfsfólki með liðinu út
eða hátt í tuttugu manns. Það eru
þjálfarar, sjúkraþjálfarar, læknir,
fjölmiðlafulltrúi, liðsstjórar og
„scouterar“ sem hafa það hlutverk
að fara á milli og skoða hin liðin.
Öryggisstjóri er einnig í hópnum
og þá verður kokkur með okkur í
nokkra daga til að brjóta upp mat-
seðilinn og elda íslenskan fisk ofan
í hópinn,“ segir Guðrún Inga.
Starfsliðið kalli sig „Dökkbláa
liðið“ þar sem það klæðist
dökkbláum fötum en leikmenn-
irnir ljósbláum. Það sé ekki síðri
liðsandi hjá starfsliðinu og allir
leggist á eitt.
„Það er valinn maður í hverri
stöðu og hrein unun að vinna með
þessu fólki. Það hjálpast allir að og
allir eru með sama markmið, að
gera allt fyrir stelpurnar. Þær gefa
svo mikið af sér og þá vilja allir
gera enn meira. Það er mikil og
jákvæð stemming í kringum liðið
Heimferð ekki á dagskránni
Guðrún Inga Sívertsen er fararstjóri íslenska liðsins á EM í Hollandi. Hún
segir ótal hluti þurfa að ganga upp en finnur ekki fyrir stressi. Mikill hugur
er í íslenska hópnum og á liðið ekki bókaða heimferð eftir riðilinn.
og mikill stuðningur frá þjóðinni
við stelpurnar. Þær finna það vel
og eru þakklátar fyrir það,“ segir
Guðrún Inga.
Hvað má alls ekki klikka?
„Æfingavöllurinn þarf að vera í lagi
og hótelin, maturinn verður einnig
að vera í lagi og allar ferðir milli
staða. Við erum með hollenskan
aðstoðarmann sem UEFA útvegar
okkur og höfum verið í samskipt-
um við hann síðustu vikur. Allir
þurfa að vera á sömu blaðsíðunni
og vita hvað hver er að gera og
hvernig við viljum hafa hlutina. Í
síðustu viku fór ég til Hollands og
kíkti á öll hótelin sem við verðum
á. Við verðum með „base camp“
eða heimastöð á hóteli í bænum
Ermelo en degi fyrir leik förum við
á hótel í þeim bæ þar sem leikirnir
fara fram hverju sinni, það er í
Tilburg, Doetinchem og Rotter-
dam. Eftir leiki fer hópurinn aftur
á heimastöðina. Ástæðan er sú að
í reglum UEFA segir að það megi
ekki vera meira en 60 kílómetrar
frá dvalarstað á leikvöllinn,“ segir
Guðrún Inga.
Á hótelinu er gert ráð fyrir
afþreyingu fyrir liðið, hægt verður
að grípa í spil og bækur, spila
billjard og pílu. Þá getur hópurinn
farið út að hjóla um nágrennið
sem er mjög fallegt. Dagskráin sé
reyndar stíf, æfingar á hverjum
degi, fundir og meðferðir hjá
sjúkraþjálfara.
„Það verður þó einhver frítími.
Fjölskyldur leikmanna verða
margar hverjar úti að styðja liðið
og hægt að verja smá tíma með
þeim. Það verður enginn lokaður
inni á hóteli. Við spiluðum æfinga-
leik við Holland í apríl og þá gisti
allt liðið á hótelinu sem verður
heimastöðin okkar. Við erum því
aðeins búin að máta okkur við það
og undirbúa okkur eins vel og við
getum,“ segir Guðrún Inga og bætir
við að liðið stefni á að komast
áfram í keppni.
„Auðvitað ætlum við áfram. Það
er ekki gert ráð fyrir heimferð eftir
riðilinn í dagskránni. Ef við dettum
út þá verður það leyst þá og þegar.“
heida@365.is
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið: Mán. - fimmt. kl. 09-18 / Föst. 09-17.
Lokað á laugardögum í sumar.
INNRÉTTINGAR
DANSKAR
Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM,
FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM,
GEFA ÞÉR ENDALAUSA MÖGULEIKA Á
AÐ SETJA SAMAN ÞITT EIGIÐ RÝMI.
STERKAR OG GLÆSILEGAR
365.is Sími 1817
333 krá dag*
Tryggðu
þér áskrift
*9.990.- á mánuði.
Guðrún Inga Sívertsen, varaformaður KSÍ og formaður landsliðsnefndar, er fararstjóri íslenska landsliðshópsins á EM í
Hollandi. Hún segir einvalalið standa að öllum undirbúningi. Mynd/VILHELM
2 ÁfraM ÍSLand 1 5 . j ú l í 2 0 1 7 L aU G a r daG U r
1
5
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
2
-F
5
2
8
1
D
5
2
-F
3
E
C
1
D
5
2
-F
2
B
0
1
D
5
2
-F
1
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K