Fréttablaðið - 15.07.2017, Blaðsíða 14
Skoða
úrvalið í nýju hönnunarversluninni
Ypsilon sem var opnuð í vikunni á
annarri hæð í Aðalstræti 2. „Við erum
fimm hönnuðir og einn mynd- og
hljóðlistarmaður sem komum að
versluninni og við erum að selja
okkar eigin hönnun ásamt því að
kaupa inn vörur frá spennandi fólki
um allan heim,“ segir fatahönnuður-
inn Þórey Björk Halldórsdóttir.
Um helgina,
af hverju ekki að …
LeSa
bókina Pínulítil kenopsía. Varúð,
hér leynast krókódílar sem er fyrsta
bók rithöfundarins Jóhönnu Maríu
Einarsdóttur. „Ég held að Pínulítil
kenopsía sé fyrir langflesta sem
hafa gaman af því að lesa og/eða
hlæja,“ segir Jóhanna spurð út í
fyrir hvern bókin sé. „Textarnir
eru mjög ólíkir og ætti því hver
og einn að geta fundið sinn
uppáhaldstexta. Mér hefur líka
verið greint frá því að bókin sé
svolítið eins og ég sjálf; svolítið
skrítin, dálítið spes en mjög
skemmtileg.“
Njóta
ljúfra tóna á sunnudaginn á
stofutónleikum Gljúfra-
steins þar sem Dúó Atlan-
tica spilar. Dúó Atlantica
er skipað mezzósópran-
söngkonunni Guðrúnu
Jóhönnu Ólafsdóttur
og spænska gítarleikar-
anum Francisco Javier
Jáuregui. Á tónleikunum
Hvert örstutt spor munu
þau flytja íslensk þjóðlög og
sönglög eftir Jón Ásgeirsson,
Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns,
Hauk Tómasson og þau sjálf. Þess má
geta að stofutónleikar Gljúfrasteins eru
haldnir hvern sunnudag frá 4. júní til 27. ágúst og hefjast þeir kl.
16.00. Miðaverð er 2.000 krónur.
DaNSa
trylltan dans. Svanhildur Valsdóttir verður plötusnúður kvöldsins á Hressó á
sunnudaginn og spilar dúndrandi gullaldartangótónlist. Hún mun einnig sjá um
leiðsögn í argentínskum tangó fyrir dansþyrsta. Aðgangseyrir er 700 krónur. Dans-
kvöldið hefst klukkan 17.30. Er ekki tilvalið að enda helgina á trylltum dansi?
Myndlistarkonan Auður Ómars-dóttir opnar e i n k a sý n i n g u sína á laugar-daginn í Gallerý
Hvítspóa, Óseyri 2, Akureyri. Auður
er fyrst til að sýna í nýja sýningar-
rýminu sem er rekið af Önnu Gunn-
arsdóttur.
Sýningin ber heitið Man! I Feel
Like a Woman en verkin á sýning-
unni eru unnin út frá innblæstri frá
samnefndu lagi eftir tónlistarkonuna
Shaniu Twain. Á sýningunni eru bæði
teikningar og skúlptúrar.
„Verkin eru að miklu leyti unnin í
samtali við umhverfið, en Hvítspói
stendur í iðnaðarhverfi á Akureyri
sem er uppeldisbær minn. Ég vinn
með fundna hluti sem ég umbreyti
og færi í nýjan búning. Akureyri er
frábær staður fyrir gullgrafara eins og
mig, tala nú ekki um hvað fólkið er
næs. Á sýningunni eru einnig teikn-
ingar sem virka eins og birtingar-
mynd innra lífs skúlptúranna.“
Spurð út í pælinguna á bak við
titil sýningarinnar segir Auður texta
lagsins Man I Feel Like a Woman eftir
Shaniu Twain hafa veitt henni inn-
blástur. „Ég gleymi stundum að ég sé
kona og finnst ég mikið í stíl við karla
og ýmsa karlaheima. Þessi texti vekur
hrifningu mína því ég tengi við hann
en skil hann samt ekki alveg. Texti
Shaniu er frábær og minnir mann á
að hafa gaman,“ segir Auður.
Sýningin Man! I Feel Like a
Woman, sem er sjötta einkasýning
Auðar, stendur yfir til 15. ágúst í Gall-
erýi Hvítspóa. – gha
Akureyri er frábær
staður fyrir gullgrafara
Auður Ómarsdóttir opnar sína sjöttu einkasýningu um helgina.
CINQUE TERRE
Vinsæl gönguferð
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Cinque Terre heitir eftir fimm þorpum sem virðast hanga utan
í bröttum hlíðunum en svæðið er í raun einn þjóðgarður og er
í heild sinni á heimsminjaskrá UNESCO. Þarna mynda fallegar
hafnir, fullar af litskrúðugum fiskibátum og þröngum strætum
mjög sérstaka stemmningu.
Göngurnar er í um 4–6 klst. á dag og flokkast ferðirnar sem léttar til
miðlungserfiðar og henta því flestum sem eru í nokkuð góðu formi.
Frá kr.
215.500
m/morgunmverði
& 3 kvöldverðum
Gönguferðir um ströndina og þorpin í Cinque Terre á
Ítalíu, á svæði sem býr yfir óviðjafnanlegri náttúru-
fegurð, menningu og sögu.
Fararstjóri: Þuríður Jónsdóttir
29. ágúst í 7 nætur
Taktu þátt á
frettabladid.is/sumarleikur
Gunnar Ingólfur Arnarson og dóttir hans Rebekka Bettý eru fyrstu vinningshafar í
Sumarleik Fréttablaðsins. Þau fengu
afhentan glæsilegan Author Racer,
árgerð 2017 að verðmæti 105 þús-
und krónur.
Feðginin sendu inn skemmti-
lega mynd af Gunnari þar sem
hann hefur komið sér vel fyrir með
Fréttablaðið.
„Þetta er minn fasti staður. Þarna
sit ég alltaf og les blaðið á hverjum
degi, oftast með kaffibolla. Ég rak
augun í auglýsinguna í blaðinu og
bað Rebekku í gamni að smella
mynd,“ segir Gunnar.
„Við vorum svo heppin að hann
var uppáklæddur þennan dag og
með bindi,“ bætir Rebekka við.
„Hundurinn kom svo og stillti sér
líka upp.“
Þau voru að vonum ánægð með
hjólið. „Þetta er glæsilegt hjól og
kemur sér afskaplega vel þar sem ég
hef fram að þessu þurft að fá lánað
hjól sonar míns,“ segir Gunnar.
Fyrstu
vinningshafar
Sumarleiks
Fréttablaðsins
Feðginin Gunnar Ingólfur Arnarson
og Rebekka Bettý eru fyrstu vinn-
ingshafar Sumarleiks Fréttablaðsins.
mynd/VIlhelm
1 5 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R14 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
helgin
1
5
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
2
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
2
-B
E
D
8
1
D
5
2
-B
D
9
C
1
D
5
2
-B
C
6
0
1
D
5
2
-B
B
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K