Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 6
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
72
18
4
Rekstrarland er hluti af Olís
Nilfisk fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís um land allt.
NILFISK HÁÞRÝSTIDÆLUR
VINNA VERKIÐ Á METHRAÐA
Nilfisk háþrýstidælur eru til í ýmsum
stærðum og styrkleikum jafnt fyrir heimili
sem til iðnaðar- og fyrirtækjanota. Með
öflugri háþrýstidælu vinnur þú verk á svip-
stundu sem annars tæki mun lengri tíma.
Thomas Möller Olsen er einnig
gefið að sök að hafa ætlað að
smygla fíkniefnum frá Danmörku
til Grænlands, með viðkomu á
Íslandi. Hann var mikið í burtu á
nóttunni þá daga sem togarinn
Polar Nanoq var við bryggju í
Kaupmannahöfn. Hann varð
jafnframt æstur og ósáttur þegar
skipverjum var tilkynnt að þeir
ættu að skipta um káetur áður
en lagt var af stað frá Kaup-
mannahöfn.
Þetta kom fram í máli nokkurra
skipverja sem báru vitni í gær.
Thomas er einnig ákærður fyrir
stórfellt fíkniefnalagabrot. Sam-
tals 23,4 kíló af kannabisefnum
fundust í káetu sem hann hafði
til umráða. Thomasi er gefið að
sök að hafa ætlað að flytja efnin
til Grænlands í ágóðaskyni.
Skipverjar sögðu Thomas hafa
átt erfitt með að vinna sökum
þreytu, en sumir hverjir höfðu
séð hann fara út á nóttunni.
Þeir sögðust hins vegar ekki vita
hversu lengi hann var frá hverju
sinni og sögðust sömuleiðis
aldrei hafa séð hann koma með
neitt um borð. Það hefði þó ekki
átt að reynast honum erfitt enda
voru allir sofandi.
Þá sagði skipstjórinn, sem og
fyrsti stýrimaður, að Thomas
hefði orðið afar ósáttur þegar
skipta átti um káetur. Það sé
stundum gert og að fólk taki
almennt ekki illa í það, en að
Thomas hefði í þetta skipti orðið
mjög æstur og krafist þess að fá
að vera áfram í káetu sinni.
Thomas var ekki viðstaddur
réttarhöldin í gær en tekin verður
af honum skýrsla við aðalmeð-
ferð málsins í ágúst. Hann
neitaði hins vegar að hafa
flutt fíkniefnin til landsins
við þingfestingu málsins í
apríl síðastliðnum,
þrátt fyrir að hafa
játað sök í skýrslu-
töku lögreglu
nokkrum
vikum áður.
Mikið í burtu
á nóttunni
Sakamál Viðbrögð Thomasar
Möller Olsen, sem grunaður er um
morðið á Birnu Brjánsdóttur, við
smáskilaboðum sem hann fékk
send þegar hann var um borð í togar
anum Polar Nanoq, var það sem bar
hæst í máli skipverjanna sem báru
vitni í máli ákæruvaldsins á
hendur Thomasi í Héraðsdómi
Reykjaness í gær. Teknar voru
skýrslur af sjö skipverjum í
gær.
Skilaboðin sem Thom
as fékk voru tvenns
konar. Annars vegar
fékk Thomas skilaboð
frá blaðamanni sem
vildi vita hvort hann
hefði tekið á leigu rauða Kia Rio bif
reið þá um helgina, og hins vegar
skilaboð frá kærustu hans sem hafði
lesið fréttir um málið og sagði að
mögulega væri hann á meðal grun
aðra.
Skipverjar sögðu Thomas þá hafa
fengið taugaáfall. Hann hafi orðið
grá og fölleitur í framan, orðið
taugaóstyrkur, neitað að borða og
helst ekki viljað tala við neinn. Þeir
sögðu Thomas sjálfan hafa sýnt skip
stjóra og fyrsta stýrimanni skilaboð
in, en á þeim tíma vissu þeir báðir
að hann væri grunaður um eitthvað
misjafnt, enda höfðu þeir verið
beðnir um að snúa skipinu við.
Skipstjórinn og stýrimaðurinn
ákváðu að segja Thomasi að um
vélarbilun væri að ræða og slökktu
í kjölfarið á internetinu, en sögðu
í vitnaleiðslum að Thomasi hefði
tekist að leggja saman tvo og tvo.
Ástand hans hafi orðið svo slæmt að
þeir hafi gefið honum róandi lyf og
reynt að hughreysta hann.
Nóttin örlagaríka
Birnu Brjánsdóttur var ráðinn bani
aðfaranótt laugardagsins 14. janúar
síðastliðinn. Thomas Möller Olsen
hafði farið út að skemmta sér með
félaga sínum og kollega, Nikolaj
Olsen. Nikolaj var á meðal hinna
handteknu í málinu en síðar sleppt
úr haldi. Samkvæmt frásögn skip
verjanna kom Nikolaj um borð í
Polar Nanoq klukkan rúmlega sex
laugardagsmorguninn. Þeir sögðu
Thomas hafa ekið honum í bátinn,
en að Thomas sjálfur hafi ekki komið
aftur fyrr en síðar.
Þegar þeir voru beðnir um að rifja
upp morguninn örlagaríka sögðust
þeir ekki hafa tekið eftir neinu
sem vakti grunsemdir. Nikolaj hafi
reyndar verið mjög ölvaður, sem sé
nokkuð óvanalegt, enda illa séð að
yfirmenn verði drukknir.
Skipverjarnir sögðu Thomas hafa
verið eðlilegan framan af. Hann
hafi borðað með þeim hádegismat í
messanum þennan dag og því næst
haldið út í bíl sem hann hafði tekið
á leigu, rauða Kia Rio bifreið. Þar
hafi hann athafnað sig í einhverja
stund, en einn skipverjanna sá hann
í aftursætinu, framsætinu og skott
inu. Tveir skipverjanna sáu hann
svo koma aftur um borð með blautt
handklæði. Töldu þeir hann hafa
verið að þrífa ælu í bílnum.
Bátsverjarnir báru Thomasi vel
söguna. Þeir sögðu hann vingjarn
legan og vinsælan náunga sem væri
almennt samviskusamur í vinnu.
Aðspurðir sögðu þeir ekkert óeðli
legt hafa verið í fari hans frá brottför
úr Hafnarfjarðarhöfn – eða allt þar til
skilaboðin bárust. Hann hafi unnið
sín störf með prýði.
Thomas Möller var handtekinn
þegar sex vopnaðir sérsveitarmenn
komu með þyrlu Landhelgisgæsl
unnar um borð í togarann Polar
Nanoq þann 18. janúar, fjórum
dögum eftir hvarf Birnu. Kokkurinn
á togaranum sagði í vitnaleiðslum
að Thomas hefði heyrt í þyrluspöð
unum og sagt: „Heldurðu að þeir séu
að koma til að sækja mig?“ Hann
hefur haldið fram sakleysi sínu í
málinu, en hann mun gefa skýrslu
við aðalmeðferð málsins 21. ágúst.
Viðbrögðin vöktu grunsemdir
Kolbrún Benediktsdóttir er saksóknari í máli Thomasar Möller Olsen sem grunaður er um morðið á Birnu Brjánsdóttur. Í bakgrunni má sjá skipverja af Polar
Nanoq sem báru vitni í gær. Skipstjóri og stýrimaður greindu frá því að þeir hefðu gefið Thomasi róandi þegar þeir sneru skipinu við. FréTTaBlaðið/Eyþór
Mál ákæruvaldsins á
hendur Thomasi Möller
Olsen var tekið fyrir í
gær. Sjö skipverjar báru
vitni. Aðalmeðferð
verður þann 21. ágúst, en
þá mun Thomas sjálfur
bera vitni í málinu.
Kannabis fannst í káetu Thomasar.
FréTTaBlaðið/aNTONBriNK
Hann hafi orðið grá- og
fölleitur í framan, orðið
taugaóstyrkur og neitað að
borða.
1 9 . j ú l í 2 0 1 7 m I Ð V I k U D a G U R6 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a Ð I Ð
1
9
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:5
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
7
-1
F
A
8
1
D
5
7
-1
E
6
C
1
D
5
7
-1
D
3
0
1
D
5
7
-1
B
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
8
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K