Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 9
Fjölbreytt, fljótleg og spennandi næring til að grípa
með sér í ferðalagið, í útivistina eða á snúningum
í amstri dagsins.
ferskari
kostur
FERSKT 66·····
Þú grípur það með þér á Olís
Fyrir fólk
á ferðinni ···
··
··
··
··
··
·
Utanríkismál „Þetta leggst vel í mig
þetta er spennandi þetta verður ekki
auðvelt, en það er eins og það er,“
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Fastaráð Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu, ÖSE, samþykkti
í gær með formlegum hætti skipan
hennar sem næsta framkvæmda-
stjóra Lýðræðis- og mannréttinda-
stofnunar ÖSE, ODIHR, sem hefur
aðsetur í Varsjá. Skipunin er til
þriggja ára og tekur Ingibjörg Sól-
rún til starfa undir lok vikunnar.
Hún er fyrst Íslendinga til að vera
skipuð í þessa stöðu.
Hún fer í dag til Varsjár og mun
dvelja þar í viku til að taka stöðuna.
„Ég geri svo ekki ráð fyrir því að ég
fari alfarið fyrr en í lok ágúst,“ segir
Ingibjörg Sólrún. Hún hefur verið
í Tyrklandi síðustu tvö og hálft
ár þar sem hún hefur sinnt stöðu
umdæmis stjóra UN Women í Evr-
ópu og Mið-Asíu með aðsetur í
Istanbúl. Þar áður var hún búsett í
Kabúl í Afganistan í tvö ár þar sem
hún sinnti starfi yfirmanns UN
Women í Afganistan.
Ingibjörg Sólrún hélt utan eftir
langan feril í stjórnmálum, hún var
síðast utanríkisráðherra frá 2007 til
ársins 2009 og jafnframt formaður
Samfylkingarinnar frá 2005 til 2009.
„Ég var ekki alveg tilbúin að
stimpla mig út þannig að ég var svo
sem aðeins á útkikki að sjá hvar
væri mögulega hægt að bera niður.
Þessa staða kom þannig til að það
var utanríkisráðuneytið sem hafði
samband við mig og vissi að það
væri verið að leita að fólki í þetta og
taldi að ég hefði þann bakgrunn og
reynslu sem myndi koma sterklega
til álita þegar farið væri að ráða í
stöðuna. Ég ákvað að láta til leiðast,“
segir Ingibjörg Sólrún.
Hún atti kappi við frambjóð-
endur frá Svíþjóð og Serbíu. Skipun
hennar er hluti skipunar í fjórar
æðstu stöður ÖSE, þar með talið í
framkvæmdastjórastöðu stofnun-
arinnar en samkomulag náðist á
óformlegum utanríkisráðherrafundi
ÖSE í síðustu viku. Samstöðu 57
aðildarríkja ÖSE þurfti til að hljóta
stöðuna.
„Þetta er búið að vera langt ferli.
Þetta er búið að vera líklega frá því í
mars. Þetta eru auðvitað 57 aðildar-
ríki sem þurfa að koma sér saman
um fjórar stöður sem voru undir
og það þurfti að horfa til ýmissa
þátta,“ segir Ingibjörg Sólrún.
ODIHR er stærsta undirstofnun
ÖSE með um 150 manna starfslið en
á meðal helstu verkefna hennar er
kosningaeftirlit í aðildarríkjum ÖSE,
úttektir á lagasetningu, verkefni og
þjálfun á sviði mannréttinda, jafn-
réttis, lýðræðislegra stjórnarhátta
og baráttunnar gegn hatursglæpum.
„ODIHR stendur vörð um lýð-
ræði og mannréttindi og er eitt
mikilvægasta tækið sem ríki Evr-
ópu, Mið-Asíu og Norður-Ameríku
eiga til þess. Það sem flestir þekkja
stofnunina fyrir er kosningaeftirlit-
ið. Á síðasta ári fór stofnunin fimm-
tán sinnum í kosningaeftirlit hjá
aðildarríki. Það er verið að aðstoða
aðildarríki við að þróa lýðræðislega
stjórnarhætti almennt,“ segir Ingi-
björg Sólrún.
„Síðan er annað mál sem er sífellt
meira á döfinni sem er hatursorð-
ræða og hatursglæpir gegn ýmsum
hópum sem þessi stofnun er að
vinna gegn með aðildarríkjunum.
Hatursorðræða hefur aukist með
auknum fjölda innflytjenda og
flóttamanna og uppgangi öfga-
hægristefnu. Þetta er málaflokkur
sem mun sjálfsagt vera mikið á mínu
borði,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir. saeunn@frettabladid.is
Var ekki tilbúin að stimpla sig út strax
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tekur í vikunni við starfi framkvæmdastjóra Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, fyrst Íslendinga.
Stofnunin sér meðal annars um kosningaeftirlit og berst gegn hatursglæpum. Ingibjörg Sólrún var ekki tilbúin að setjast í helgan stein.
ODIHR stendur
vörð um lýðræði og
mannréttindi og er eitt
mikilvægasta tækið sem ríki
Evrópu, Mið-Asíu og Norður-
Ameríku eiga til þess.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur búið og starfað í Tyrklandi síðustu tvö og hálft ár en flytur til Varsjár í ágúst. FréTTablaðIð/andrI MarInó
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ða l a 9m i ð V i k U D a G U r 1 9 . j ú l í 2 0 1 7
1
9
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:5
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
5
7
-0
B
E
8
1
D
5
7
-0
A
A
C
1
D
5
7
-0
9
7
0
1
D
5
7
-0
8
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
8
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K