Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 2
Veður Allhvöss austanátt með rigningu um landið suðaustanvert í dag, en hægari vindur og úrkomulítið norðan og norðvestan til. Hiti 8 til 20 stig. sjá síðu 18 HÚH í rigningunni UP!ÍLOFT Við látum framtíðina rætast. he kl a. is /u p Nýr up! frá aðeins 1.790.000 kr. EM2017 „Maður hefur brotið allar siðferðislegar reglur sem maður hefur sett sér. Ég er búinn að hanga með Bjarna Ben og taka húh-ið. Ég veit ekki hvað er eftir,“ segir rapparinn Emmsjé Gauti, einn lista- mannanna sem tróðu upp í Tilburg í Hollandi í gær fyrir viðureign okkar kvenna gegn Frökkum á EM. Amabadama lék einnig fyrir Íslendinga sem voru á þriðja þús- und er mest var. Sara Pétursdóttir, Glowie, naut sín í sólinni í gær. „Ég hef aldrei farið á svona stóran fótboltaleik og er ekki mikil fót- boltamanneskja. En það er rosalega gaman að vera hluti af þessu, sér- staklega þar sem við erum að styðja stelpuliðið,“ segir Glowie. Tónlistarmennirnir voru á vegum menntamálaráðuneytisins. Ráð- herrann, Kristján Þór Júlíusson, segir þau upprennandi listafólk sem ráðu- neytið vilji styðja við í tengslum við jafn stóran viðburð og EM sé. „Við erum hér til að peppa okkur upp, liðið og stuðningsfólkið. Það er frábært að það sé hugsað vel um stelpurnar,“ segir Salka Sól Eyfeld. Hún nefnir að lag sveitarinnar, Hossa hossa, hafi notið óvæntra vinsælda í Hollandi og hlær. Glowie segi mik- inn heiður að hafa verið fengin út. Aðspurð hvort þau eigi von á að verða „uppgötvuð“ á erlendri grundu með því að troða upp á stuðnings- mannatorgi á EM hugsa þau málið. „Ég hef ekki verið að stefna á erlendan markað en endaði til dæmis í Kosice í Slóvakíu út af einni manneskju,“ segir Gauti. Í raun sé það heiður í hvert skipti þegar ein- hver ákveði að taka frá tíma til að hlusta á hann. „Að ein manneskja mæti til að hlusta á þig er geggjað. Að hugsa sér fólk sem mætir til einhvers í vinnuna til að horfa á hann vinna. Þetta eru forréttindi.“ Glowie skrifaði nýlega undir útgáfusamning í Bretlandi og Banda- ríkjunum. „Glowie er allt annað dæmi, það er korter í að það standi tveir lífverðir á milli okkar,“ segir Gauti sem viðurkennir að umgjörðin hafi komið sér á óvart. „Ég hélt að það væru 500 Íslend- ingar hérna, ekki þrjú þúsund manns. Það er yndislegt.“ Ekkert þeirra þriggja fylgist mikið með fótbolta en þau kunna öll að meta stemninguna. „Ég hefði varla gert mér ferð hingað. Það er svo gaman að fá að upplifa svona í gegn- um tónlistina,“ segir Salka. Hún gæti vel hugsað sér að fara með fjölskyld- una á mót erlendis í framtíðinni. „Þetta eru kannski fordómar í mér en ég sé fyrir mér þennan týpíska fót- boltaaðdáanda sem fertugan gaur með bumbu og bjór og öskrandi. Gaman að sjá fólk á öllum aldri og alls konar stemningu.“ Salka Sól á mágkonu sem á son og dóttur sem æfa bæði fótbolta. „Hún fór í fyrra með strákinn sinn sem er að æfa fótbolta. Svo á hún líka stelpu sem er að æfa fótbolta og það var „no brainer“ að fara með stelpuna hingað nú þegar þær eru að spila.“ kolbeinntumi@365.is Gauti tók húh-ið og hékk með Bjarna Ben Sumar skærustu stjörnur íslenskrar tónlistarsenu, Glowie, Salka Sól og Emmsjé Gauti, fylgja stelpunum okkar á Evrópumeistaramótið. Glowie kveðst ekki vera mikil fótboltamanneskja en segir rosalega gaman að vera hluti af EM-hópnum. Íslensku stuðningsmennirnir voru ánægðir með Glowie. Fréttablaðið/Vilhelm Glowie er allt annað dæmi, það er korter í að það standi tveir lífverðir á milli okkar. Emmsjé Gauti BrEtland  Samkvæmt nýrri skoðana- könnun Opinium vill 41 prósent Breta kjósa aftur um útgöngu þjóðarinnar úr Evrópusambandinu. Frá því að Bretar kusu að yfirgefa ESB í júní 2016, í svo- kölluðum Brexit-kosningum, hefur stuðningur við að kjósa aftur aldrei verið meiri. Meirihlutinn vill þó ekki kjósa á ný eða 48 prósent. Tólf prósent aðspurðra sögðust ekki vita hvort þeir vildu kjósa aftur eða ekki. Af þeim sem kusu að vera áfram í Evrópusam- bandinu í fyrra vildu 69 prósent kjósa á ný en 82 prósent þeirra sem kusu að yfirgefa Evrópusambandið í fyrra vilja ekki nýjar kosningar. Nýverið hófust Brexit-viðræður milli fulltrúa Bretlands og Evrópusam- bandsins. – sg Fleiri vilja kjósa aftur um Brexit Fámennt en góðmennt var í rigningunni á Ingólfstorgi þar sem leik Íslands við Frakkland var varpað á risaskjá. Stemningin var góð þar til undir lokin að seig á ógæfuhliðina og Frakkar náðu að skora sigurmark sitt. Forseta Íslands brá fyrir meðal áhorfenda á skjánum. Fréttablaðið/andri marinó Bandaríkin  Donald Trump Banda- ríkjaforseti hefur sagt að ný stefna Repúblikanaflokksins í heilbrigðis- málum sé að leyfa núverandi lögum að hrynja. BBC greinir frá því að Trump hafi sagt við blaðamenn í gær að Repúbl- ikanar muni ekki eigna sér Obamac- are, heilbrigðis- og tryggingalöggjöf Baracks Obama, fyrrverandi Banda- ríkjaforseta. Í gær var ljóst að Trump hefði mis- tekist að sinni að afnema Obama- care og koma á nýrri löggjöf. Sam- kvæmt nýju frumvarpi Trumps, sem er mjög óvinsælt, á fjöldi Bandaríkja- manna að missa heilbrigðistryggingu sína. Leiðtogi Demókrata í öldunga- deild bandaríska þingsins, Chuck Schumer, hefur sakað Trump um að leika hættulegan leik. – sg Trump vill hrun Obamacare saMfélag  Björgunarsveitarmenn sóttu í gær göngumann sem hafði villst á Fimmvörðuhálsi. Mennirnir fundu manninn upp úr klukkan fimm í gær en þeir komust lang- leiðina að honum á sexhjóli. Um hálf fjögur voru fjórar björg- unarsveitir af Suðurlandi kallaðar út vegna mannsins. Hann náði sam- bandi við ættingja sína og var orð- inn kaldur og hrakinn. Á svæðinu var vont veður, mikil rigning og frekar hvasst. Maðurinn treysti sér ekki til þess að ganga og þurfti því björgunarsveitafólk að aðstoða hann niður. Maðurinn var mjög þrekaður þegar hann fannst en þurfti ekki frekari aðhlynningu samkvæmt til- kynningu frá Landsbjörg. Honum var komið til móts við björgunar- sveitarbíl rétt sunnan við Fimm- vörðuhálsskála og var honum ekið til byggða. – sg Maður sóttur á Fimmvörðuháls donald trump bandaríkjaforseti. 1 9 . j ú l í 2 0 1 7 M i ð V i k u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 9 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :5 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 5 6 -F 8 2 8 1 D 5 6 -F 6 E C 1 D 5 6 -F 5 B 0 1 D 5 6 -F 4 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.