Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Þorbjörg Marinósdóttir, Karl Sigurðsson og ljós-myndarinn Íris Ann skipa hlaupahópinn Vinir Stefáns Karls, en hópurinn ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í næsta mánuði og safna fyrir vin sinn, leikarann Stefán Karl, sem greindist með gallgangakrabbamein haustið 2016. „Við erum þrjú í hópnum núna en það eru fleiri að bætast við, Sig- valdi Kaldalóns útvarpsmaður og Þóra Sigurðardóttir fjölmiðlakona ætla til dæmis að vera með,“ segir Tobba. „Og við tökum glöð á móti fleiri hlaupurum. Við höfum bara eina reglu: það þurfa allir að hafa mikinn húmor og hlýtt hjarta, og þá má fólk hlaupa með.“ Stefán er svo lífsglaður og dásam- legur maður, hann segir alltaf: „Ég er ekki með krabbamein í húm- ornum,“ og við ætlum að hlaupa með þetta viðhorf að leiðarljósi. Við ætlum bara að hafa þetta skemmti- legt. Allir geta verið með, jafnvel þó að fólk kunni ekki að hlaupa. Ef það kann að hafa gaman þá er það nóg því það fara bara allir á sínum hraða.“ Upphæðin sem hlaupahópurinn nær að safna mun skiptast jafnt milli Stefáns Karls og Krafts, stuðn- ingsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstand- endur. Tobba segir veikindi Stefáns setja stórt fjárhagslegt strik í reikn- inginn hjá honum og fjölskyldu hans. „Fólk áttar sig kannski ekki endilega á því en þegar fólk veikist svona eins og Stefán þá fara gjarnan allar tekjur heimilisins í veikindin. Og það er ekki gott að vera með áhyggjur af peningum ofan á allt hitt.“ Stefán Karl á afmæli 10. júlí og Tobba segir hugmyndina á bak við hlaupið hafa kviknað þegar afmæl- isdagurinn hans nálgaðist. „Þá fórum við að hugsa hvað við gætum gefið honum. Svo ákvað ég að í stað- inn fyrir að hlussa í afmælis köku þá myndi ég bara hlussa mér áfram í Reykjavíkurmaraþoninu og búa til peninga í leiðinni. Honum finnst það miklu fyndnara.“ Setja engin tímamet Tobba og Kalli eru stödd á Ítalíu þessa stundina og eru byrjuð að æfa sig fyrir hlaupið. „Já, við höfum verið að hlaupa og hjóla hérna úti. Ég hef oft verið í betra hlaupaformi, en það skiptir engu máli. Mark- miðið er bara að klára þetta og gera eitthvað gott í leiðinni. Við erum ekkert að fara að setja nein tímamet, en við höfum alveg hlaupið oft áður og Kalli er fínasti hlaupari,“ útskýrir Tobba. Spurð út í hvort hún sé búin að segja Stefáni Karli frá hlaupagjörn- ingunum segir Tobba: „Já, hann veit af þessu og Steinunn Ólína, konan hans, líka. Steinunn, sem er góð vin- kona mín, var ofboðslega þakklát og hrærð. Og áður en ég fór til Ítalíu þá kvaddi hún mig með þessum orðum: „Mundu að pasta er djöfull- inn,“ þannig að hún vill greinilega ekki að ég hlaupi í spik hérna úti. Hún vill að ég hlaupi áfram fyrir Stefán,“ segir Tobba og hlær. Að lokum hvetur Tobba áhuga- sama til að leggja verkefninu lið með því að styrkja hópinn í gegnum www.hlaupastyrkur.is. „Við erum bara þakklát fyrir allt sem kemur. Og ég veit að Stefán og fjölskylda kunna að meta stuðninginn.“ „Maður vill hjálpa í þessum erf- iðu aðstæðum en það er kannski takmarkað sem maður getur gert. Þannig að við þurfum mikið á því að halda að fólk styrki okkur og líka að fólk hlaupi með okkur. Ég elska þau sjúklega mikið,“ segir Tobba klökk. „Og það skiptir mestu máli að þau finni fyrir stuðningi.“ gudnyhronn@365.is Skilyrði fyrir Tobba og Kalli ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir Stefán Karl. Þau eru stödd á Ítalíu núna en láta það ekki stoppa hlaupaundirbúninginn.  hlaupavinina að vera Ég hef oft verið í betra hlaupaformi, en það Skiptir engu máli. markmiðið er bara að klára þetta og gera eitthvað gott í leiðinni. með góðan húmor Parið Þorbjörg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba, og Karl Sigurðsson ætla að hlaupa 10 kílómetra í Reykja- víkurmaraþoninu í ágúst til styrktar vini sínum, leikaranum Stefáni Karli Stefáns- syni sem glímir við krabbamein. Þau hafa stofnað hlaupahópinn Vinir Stefáns Karls. Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík Sími: 517 0900 / 777 1901 www.kaelivirkni.is VIÐHALD OG VIÐGERÐIR Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM VIÐ SJÁUM UM • Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf. • Hágæða álprófílkerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga idex.is - sími 412 1700 framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi - þegar gæðin skipta máli idex.is - sím 412 1700 framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi - merkt framleiðsla • Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf. • Hágæða álprófílkerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga Álgluggar - þegar gæðin skipta máli www.schueco.is Álgluggar og hurðir Útsölustaðir: Hörpu / Laugavegi R e y k j av i k R a i n c o at s - H V e r f i s g ö t u 8 2 w w w. r e y k j av i k r a i n c o at s . c o m - s í m i : 5 7 1 1 1 7 7 1 9 . j ú l í 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R26 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð 1 9 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :5 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 5 7 -0 6 F 8 1 D 5 7 -0 5 B C 1 D 5 7 -0 4 8 0 1 D 5 7 -0 3 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.