Morgunblaðið - 09.01.2017, Side 1

Morgunblaðið - 09.01.2017, Side 1
M Á N U D A G U R 9. J A N Ú A R 2 0 1 7 Stofnað 1913  7. tölublað  105. árgangur  ER ALLTAF AÐ LÆRA EITTHVAÐ NÝTT Í LEIT AÐ FÁRÁNLEGRI FULLKOMNUN STORKAR BÍLA- VERKSMIÐJUM A GUIDE TO THE PERFECT HUMAN 26 DONALD TRUMP 16LOGI Í BLOOMBERG 12 Titringur í Japan vegna tísts verðandi Bandaríkjaforseta  „Við höfum aldrei selt jafnmikið af gjafabréfum og í ár. Það er gam- an hvað landinn er áhugasamur um þyrluferðir,“ sagði Birgir Ómar Haraldsson, eigandi þyrluflug- félagsins Norðurflugs. Norðurflug verður tíu ára á þessu ári og er elsta þyrluflug- félagið á Íslandi. Birgir sagði að söluaukningin hjá fyrirtækinu staf- aði ekki einungis af ferðamanna- straumnum heldur sæktu Íslend- ingar í auknum mæli í háloftin. „Mér finnst aukin meðvitund um verðið og skemmtanagildið í þessu. Fólk hefur áttað sig á því að það geti farið í þyrlu og fengið freyði- vín fyrir 30 þúsund kall.“ Þá er einnig orðið vinsælt að bera upp bónorðið á fjallstindi, að sögn Birgis Ómars. tfh@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Þyrluferð Flogið er frá Reykjavíkurborg upp á fjallstinda á suðvesturhorninu. Aldrei verið selt jafn mikið af gjafabréf- um í þyrluferðir  Fjórir eru látnir og minnst 15 manns eru særðir eftir hryðju- verkaárás í Jerúsalem í gær. Árás- armaðurinn ók flutningabíl inn í hóp hermanna sem voru að koma út úr rútu við götuna Armon HaNat- ziv í gamla hluta borgarinnar. Með- al látinna eru þrjár konur og einn karlmaður. Þá er einn lífshættu- lega særður. Talsmaður Hamas-samtakanna hefur fagnað árásinni og hvetur Palestínumenn til að halda áfram andstöðu sinni gegn Ísrael. Hermenn skutu árásamanninn á vettvangi. »15 Hamas hvetur til frekari andstöðu Mannanafnanefnd hefur hafnað umsókn um að nafnið Hel verði fært á mannanafnaskrá, á grund- velli ákvæðis mannanafnalaga um að eiginnafn megi ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í norrænni goðafræði er Hel gyðja dauðraheimsins Heljar og eitt þriggja barna ássins Loka, en hin tvö eru Miðgarðsormurinn og Fenrisúlfur. Helgi Áss Grétarsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, situr í nefndinni, en hann segir að ákvæð- ið komi sjaldan til álita og því sé beitt af mikilli varkárni. Hann segir að fjögur atriði hafi komið fram í rökstuðningi nefnd- arinnar fyrir höfnun, en fyrsta at- riðið varðar merkingu nafnsins, þ.e. vísun þess til dauðans og dauðaríkis Heljar. „Í öðru lagi er ákvæðið útskýrt í greinargerð með frumvarpi sem varð að mannanafnalögum og þar er sérstaklega tiltekið að nafnið Hel eigi að vera bannað ásamt fleiri nöfnum,“ segir Helgi. Í þriðja lagi var vísað til nefndar- álits allsherjar- og menntamála- nefndar Alþingis frá árinu 2015 um frumvarp Óttars Proppé, þing- manns Bjartrar framtíðar, um að mannanafnalög skyldu felld úr gildi, en frumvarpið var ekki sam- þykkt á Alþingi. Í álitinu komu fram sjónarmið um að nauðsynlegt væri að ríkis- valdið gæti gripið inn í ef nafn gæti haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd og sjálfsvitund einstaklinga. Fjórða atriðið laut að fordæmis- áhrifum annarra úrskurða nefnd- arinnar og var t.d. vísað til þess að nafninu Satanía hefur áður verið hafnað og var það talið vísa til sömu hughrifa og nafnið Hel, þ.e. til dauða og undirheima. jbe@mbl.is Óheimilt að lögum að heita Hel Teikning/Ásgeir Jón Ásgeirsson Hel Systkinin þrjú prýða plötu- umslag Skálmaldar frá árinu 2012.  Talið geta valdið nafnbera ama  Vísar til sömu hughrifa og nafnið Satanía  Mótmælendur skutu að lög- reglu úr línu- byssu þegar mót- mælin á Austur- velli árið 2009 stóðu sem hæst. Þetta kemur fram í grein lög- reglumanns í Lögreglublaðinu, en hann stóð sjálfur vörð við Alþingishúsið. Í greininni segir líka að góðkunn- ingjar lögreglu hafi séð tækifæri í mótmælunum og að vísbendingar hafi verið um að ungt fólk hafi haft aðra hvata til þátttöku í mótmæl- unum en aðrir sem kröfðust afsagn- ar ríkisstjórnarinnar. »10 Ógnuðu lögreglu með línubyssu Mótmæli Lög- reglan stóð vörð. Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar mun ekki leggja fram tillögu á Al- þingi varðandi mögulega umsókn Ís- lands um aðild að Evrópusamband- inu á núverandi kjörtímabili. Þetta kemur fram í drögum að stjórnarsáttmála sem formenn flokkanna þriggja hafa kynnt fyrir þingflokkum sínum. Þó er með nokkuð almennu orðalagi opnað fyr- ir þann möguleika að þingmenn stjórnarmeirihlutans geti stutt þing- mál varðandi umsóknarferli að Evr- ópusambandinu, komi slíkt mál fram „undir lok kjörtímabilsins,“ eins og það mun vera orðað í sáttmáladrög- unum. Ekki virðist þó liggja fyrir nákvæm skilgreining á því við hvaða dagsetningu skuli miðað með orða- laginu undir lok kjörtímabilsins. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins munu einnig hafa verið kynntar tillögur að skiptingu ráðu- neyta milli flokkanna. Þar mun Sjálfstæðisflokkur fá forsætisráðu- neyti, innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti og ráðherra iðn- aðar- og viðskiptamála í atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneyti, Við- reisn mun fá ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála í því sama ráðuneyti ásamt fjármálaráðuneyti, og ráðuneyti félags- og húsnæðis- mála í velferðarráðuneyti. Björt framtíð mun hins vegar skipa ráð- herra heilbrigðismála í því ráðuneyti ásamt umhverfis- og auðlindaráðu- neyti. Heimildir Morgunblaðsins herma að það hafi mætt töluverðri and- stöðu meðal þingmanna Sjálfstæð- isflokksins af landsbyggðinni að ráðuneyti sjávarútvegs- og landbún- aðarmála félli Viðreisn í skaut. Evrópumálin sett á ís  Ný ríkisstjórn ekki með aðildarumsókn á dagskrá  Opnað á möguleika að þingmenn styðji ESB-mál  Andstaða við að Viðreisn fái atvinnuvegaráðuneyti Ráðherrastólar » Talið er fullvíst að Bjarni Benediktsson verði forsætis- ráðherra í nýrri ríkisstjórn. » Rætt hefur verið um Bene- dikt Jóhannesson sem fjár- málaráðherra og Óttar Proppé sem heilbrigðisráðherra. Önn- ur skipan liggur ekki fyrir. » Ekki hefur verið gerð tillaga um breytingar á skipan stjórn- arráðsins. MNý ríkisstjórn »… 4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Innganga Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, átti í smá vanda við að komast inn á þingflokksskrifstofur Alþingis í gær en tókst það að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.