Morgunblaðið - 09.01.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.01.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Skákþing Reykjavíkur hófst í gær í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Skákþing- ið er níu umferðir og verður teflt alla sunnudaga og miðvikudaga í janúar, auk miðvikudagsins 1. febrúar og föstudagsins 3. febrúar. Teflt er eftir svissnesku kerfi. Sigurvegarinn hlýtur peningaverðlaun, 120 þúsund krónur, sá sem lendir í öðru sæti fær 60 þúsund krónur og fyrir þriðja sætið eru í verð- laun þrjátíu þúsund krónur. Skákþing Akureyr- ar hófst einnig í gær. Þar verða tefldar sjö eða níu umferðir, fer allt eftir þátttöku. Árlegt Skákþing Reykjavíkur hófst í gær í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur Morgunblaðið/Árni Sæberg Skákmenn brjóta heilann í janúar SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Varaformaður Sjómannasambands Íslands ætlast til þess að fá umræðu á samningafundi með útvegsmönn- um í dag um öll þau atriði sem al- mennir sjómenn telja vanta inn í kjarasamninga og að hægt verði að ljúka samningum á þeim nótum. Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir samtökin mótfallin lögum á deiluna. Samninganefndir sjómanna á fiskiskipum og útvegsmanna hittist á fundi hjá ríkissáttasemjara klukkan 13 í dag. „Ég hef góðar væntingar um það,“ sagði Konráð Þ. Alfreðs- son, formaður Sjómannafélags Eyja- fjarðar og varaformaður Sjómanna- sambands Íslands, þegar hann var spurður hvort hann teldi að líkur væru á árangri. „Ég er bjartsýnn að eðlisfari og tel að menn ætli sér að leysa þetta verkfall. Við erum að fara að ræða saman og það er mikilvæg- ast,“ segir Konráð. Í ljós kom þegar sjómannafélögin funduðu með félagsmönnum milli jóla og nýárs að sjómenn vilja fá bætur fyrir sjómannaafsláttinn. Konráð segir mjög ósanngjarnt að hann skyldi tekinn af. Þeir telja rök fyrir því að breyta olíuverðstengingu en samkvæmt henni gefa sjómenn eftir hlut til að standa undir olíu- kostnaði. Þá leggja þeir áherslu á að fá frítt fæði og að útgerðirnar leggi til vinnufatnað í stað fæðis- og fata- peninga sem duga misjafnlega fyrir kostnaði. Þá vilja þeir að útgerðin taki þátt í fjarskiptakostnaði svo sjó- menn geti haft samband heim. Verðum að semja Jens Garðar segir að samninga- nefnd SFS sé að fara yfir kröfur sjó- manna. Hann segir best að svara fulltrúum sjómanna beint, hjá ríkis- sáttasemjara, en ekki í fjölmiðlum. „Staðan er alvarleg þegar mörg þúsund sjómenn auk landverkafólks sitja heima. Það hefur mikil áhrif á samfélögin, starfsfólk fyrirtækjanna og þjóðarbúið í heild. Það er hins- vegar alveg skýrt af okkar hálfu að við erum mótfallnir því að sett verði lög á sjómenn. Við verðum að semja og standa undir þeirri ábyrgð að gera það,“ segir Jens Garðar um þann möguleika að sett verði lög á deiluna. Konráð segir að ekki hafi verið rætt við samninganefnd sjómanna að til greina kæmi að setja lög á deil- una. „Það yrði vitlausasta aðgerð sem hægt væri að grípa til. Ég tel að þeir sem stjórna landinu í dag átti sig á því að það borgar sig ekki.“ Báðir aðilar mótfallnir lögum  Sjómenn krefjast bóta fyrir sjómannaafslátt, lækkun á olíuverðstengingu og frís fæðis, vinnufatnaðar og lækkunar á fjarskiptakostnaði  „Tel að menn ætli sér að leysa þetta verkfall,“ segir varaformaður SSÍ Konráð Alfreðsson Jens Garðar Helgason Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Takmarka verður námsval nemenda Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands vegna fjárskorts að sögn Hilmars Braga Janussonar, forseta fræðasviðsins. Dæmi eru um að nemendur í meistaranámi þurfi að skrá sig í ný námskeið þar sem hætt hefur verið við kennslu í áföng- um sem þeir höfðu þegar valið. Meistaranemi í verkfræði sagði við Morgunblaðið að helmingur áfanga hans hefði verið felldur niður og hann þyrfti því að velja sér nýja áfanga fyrir haustönnina, við það riðlaðist allt skipulag annarinnar. Hilmar Bragi segir þetta óhjá- kvæmilegt enda fjárhagsleg staða sviðsins slæm. „Við erum með dýrt nám þar sem námið er bæði verklegt og bóklegt, margar rannsóknir fara fram á svið- inu og nemendur skiptast niður á margar deildir. Það var því engra annarra kosta völ en að draga saman seglin,“ segir Hilmar og bendir á að reynt hafi verið að raska námsvali nemenda sem minnst. Skortur er á tæknimenntuðu fólki með bakgrunn í raunvísindum á vinnumarkaði að sögn Hilmars. „Undirfjármögnun stjórnvalda til frekari menntunar á þessu sviði kemur sér ekki bara illa fyrir háskól- ann heldur samfélagið allt.“ Dregið verður úr námsvali vegna undirfjármögnunar  Hætta við nám- skeið á raunvís- indasviði HÍ Morgunblaðið/Ómar Vísindi Takmarka á nám nemenda í verkfræði og raunvísindum. Benedikt Jóhann- esson, formaður efnahags- og við- skiptanefndar Al- þingis, segir gott að búið sé að kortleggja af- landseignir Ís- lendinga, eins vel og hægt er, eins og reynt er að gera í skýrslu sem unnin var fyrir fjármálaráð- herra. Þegar komin sé mynd af um- fanginu verði auðveldara að bregð- ast við. Hann reiknar með að boðað verði til fundar í nefndinni í vikunni til að fá kynningu á efni skýrslunnar, eins og Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, hefur óskað eftir. Katrín segir í færslu á sam- skiptavefnum Facebook að margt þurfi að skoða í framhaldinu. Til að mynda hvort þörf sé á að bæta lög- gjöf frekar varðandi skattsvik og notkun skattaskjóla. Benedikt tekur fram að það sé stefna Viðreisnar og verði stefna nýrrar ríkisstjórnar að koma í veg fyrir skattsvik af öllu tagi. Gagnrýnt hefur verið að fjármála- ráðherra birti ekki skýrsluna strax og hún barst ráðuneytinu. Benedikt tekur fram að hann hafi ekki vitað af skýrslunni fyrr en fyrir helgi, þegar hún var birt. Almennt sé best að birta gögn sem allra fyrst. Skýrsla um aflands- eignir verður kynnt á nefndarfundi Benedikt Jóhannesson „Við mótmælum því að hafa ekki sömu réttindi og annað vinnandi fólk og gefum skýr skilaboð um það að við mætum ekki um borð ef það verða sett lög á okkur,“ segir m.a. í til- kynningu á samskiptamiðlinum Facebook þar sem sjómenn eru hvattir til að mæta á fund við Karphúsið klukkan 13 í dag, þegar samningafundur hefst. Mæta ekki um borð SJÓMENN MÓTMÆLA Ákvörðun Póst- og fjarskipta- stofnunar að 365 miðlar ehf. greiði 100 þúsund krón- ur í dagsektir vegna vanefnda á uppbyggingu far- símadreifikerfis á grundvelli útboðs stofnunarinnar verður kærð til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. „Við erum ósammála niðurstöðu stofnunarinnar og teljum ákvörðun hennar hvorki standast lög né þá skilmála sem félagið er bundið af,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, for- stjóri 365. „Það er ótrúlegt að við fáum ekki svigrúm til að ljúka viðræðum við Vodafone en þær hafa sett upp- byggingarplön á dreifikerfum okkar í bið. Þá er rétt að benda á að við uppfyllum uppbyggingarkröfur Póst- og fjarskiptastofnunar með heildsölusamningi við Símann enda útboðið á sínum tíma tæknilega óháð, þ.e. við getum nýtt hvaða tækni sem er eða samninga við önn- ur fyrirtæki til að uppfylla upp- byggingarkröfur útboðsins,“ segir Sævar Freyr. Mál 365 miðla fyrir úrskurðarnefnd  Ósammála Póst- og fjarskiptastofnun Sævar Freyr Þráinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.