Morgunblaðið - 09.01.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.01.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2017 Vertu upplýstur! blattafram.is FELST AÐGERÐALEYSI ÞITT Í AÐ SAMÞYKKJA KYNFERÐISOFBELDI? Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek í 60 ár Mangójógúrt Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt: Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í fyrsta tölublaði Læknablaðsins á nýju ári veltir Björn Gunnarsson, barna-, svæfinga- og gjörgæslu- læknir, því fyrir sér hvort nota megi þyrlur í auknum mæli við sjúkra- flutninga. Segir Björn í grein sinni að sjúkraflug sé mikilvægur hlekkur í bráðaþjónustu utan spítala og komi fyrst og fremst að gagni þegar það styttir tímann þangað til alvarlega veikir og slasaðir fá sérhæfða lækn- ishjálp. „Oft skiptir þar mestu að við- bragðstími og flutningstími sé sem stystur, til dæmis þegar sjúklingur er með heilaslag vegna blóðþurrð- ar,“ segir í grein Björns. Hann veltir því svo fyrir sér hvort þyrlur geti komið í stað sjúkrabíla við ákveðnar aðstæður. „Því til stuðnings nefni ég dæmi úr nýlegri rannsókn, þar sem fram kom að einungis tveir af 56 sjúklingum á suðursvæði með brátt hjartadrep með ST-hækkunum voru fluttir með þyrlu, þrátt fyrir að tími (miðgildi) frá frystu samskiptum að kransæða- víkkun væri 157 mínútur og í ein- ungis 12% tilfella skemmri en 120 mínútur. Æskilegt er að þessi tími sé ekki lengri en 90-120 mínútur,“ segir Björn ennfremur í grein sinni. Þá bendir hann á að lítil notkun á þyrlum við sjúkraflutninga kunni að skýrast af löngum viðbragðstíma og viðtekinni venju að kalla eingöngu út þyrlu þegar þörf er brýn. „Kannski er kominn tími til breyt- inga, til dæmis að hafa bundna þyrluvakt og sérstaka sjúkraþyrlu á Suðurlandi, eins og hugmyndir eru uppi um!“ Kemur ekki stað flugvéla Sigurður E. Sigurðsson læknir, framkvæmdastjóri lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir að þyrlur komi ekki í stað sjúkraflug- véla en geti leyst sjúkrabíla af hólmi við ákveðnar aðstæður. „Við verðum að gæta okkar í þess- ari umræðu að rugla ekki saman sjúkraflugi milli landshluta og sjúkraflutningum á staðbundnu svæði. Þyrlur geta verið góð viðbót við sjúkraflutninga, t.d. á stöðum eins og Suðurlandi þar sem byggð er dreifð og mikill fjöldi býr og ferðast um,“ segir Sigurður en hann hefur bæði starfað sem læknir í sjúkraflugi og á þyrlum Landhelgisgæslunnar. „Þegar sjúklingur er sendur t.d. héðan frá Akureyri til Reykjavíkur er oftast betra að hann fara með sjúkraflugvél. Bæði er flugvélin búin búnaði sem þyrlur hafa ekki, t.d. jafnþrýstibúnaði, auk þess sem hún flýgur hraðar og kemst yfir hálendið í nærri því öllum veðrum sem þyrlan gerir ekki.“ Sigurður segir flugvélina og þyrl- una bæta hvor aðra upp enda þyrlan gott björgunartæki og almennt betri í styttri sjúkraflutningum. „Mér finnst vert að skoða frekari notkun á þyrlum við styttra sjúkra- flug, t.d. innan Suðurlandsins, og þá sem viðbót við þau tæki sem við höf- um í dag.“ Þyrlur henta vel í styttra sjúkraflug  Koma ekki í stað sjúkraflugvéla en nýta má þær líkt og sjúkrabíl á takmörkuðu svæði  Kanna mætti að hafa bundna þyrluvakt og sérstaka sjúkraþyrlu á Suðurlandi til að stytta viðbragðstíma Morgunblaðið/Árni Sæberg Þyrluflug Landhelgisgæslan hefur á að skipa þremur þyrlum, sem oft eru notaðar í neyðartilvikum. Sjúklingar þurfa oft að komast með hraði undir hendur sér- fræðinga þar sem sérhæfð að- staða er fyrir hendi. Oft er þá um mínútuspursmál að ræða líkt og segir í grein Björns Gunnarssonar læknis. Ferða- mönnum hefur fjölgað gífurlega en þeir voru tæplega 1,8 millj- ónir á liðnu ári og fara flestir um Suðurland. Rekstur sjúkra- þyrlu á Suðurlandi gæti því ver- ið óhjákvæmilegur á næstu ár- um. Þyrla fyrir Suðurlandið FERÐAMÖNNUM FJÖLGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.