Morgunblaðið - 09.01.2017, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2017
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Ég hef séð MichaelBloomberg nokkrumsinnum en ég hef ekkihitt hann persónulega.
Ég held hann sé mjög fínn gaur og
mér fannst hann standa sig vel sem
borgarstjóri New York-borgar,“
segir Logi Bragason, sem vinnur í
höfuðstöðvum Bloomberg þar í borg.
„En einu sinni hitti ég Geir H.
Haarde í þessu hringlaga herbergi
hér,“ segir Logi og bendir á biðher-
bergi með sérstökum rúðum sem
gera fólki erfitt að sjá þar inn. „Það
var rétt eftir hrun og Geir var að
koma í sjónvarpsviðtal út af því. Það
var íslenskt fylgdarlið með honum
og vopnaðir verðir biðu fyrir utan
herbergið. Sjálfur var hann frekar
stressaður, skiljanlega.“
325.000 áskrifendur
„Aðalsöluvara Bloomberg er
hin svokallaða áskrift að fjármála-
upplýsingum. Í byrjun voru fjár-
málaforritin í áskriftinni sem voru
keyrð á sérstökum Bloomberg-
vélbúnaði. Núna notast áskrifendur,
sem eru um 325.000 talsins, bara við
sínar eigin tölvur til þess að komast í
Bloomberg-forritin. Þar er fjallað
um allt mögulegt sem er tengt fjár-
málum og fyrir nokkrum árum fór
Bloomberg inn á tvo nýja markaði;
stjórnmálin og lögfræðinga,“ út-
skýrir Logi, sem hefur starfað hjá
fyrirtækinu síðan hann útskrifaðist
með B.Sc. í tölvunarfræði fyrir 15
árum.
„Mestallan tímann hef ég for-
ritað fjármálaforrit notuð af verð-
bréfamiðlurum en er nýkominn í
nýjan vinnuhóp sem er að vinna að
annars konar verkefni.“
Logi útskýrir að starfsfólk
fyrirtækisins skiptist í þrennt; for-
ritara, sölufólk og stjórnendur sem
stýra því að hverju forritararnir
vinna.
„Sölufólkið kemst að þörfum
„Ég er alltaf að læra
eitthvað nýtt“
Logi Bragason hefur unnið hjá fjármálaupplýsingarisanum Bloomberg í New
York í fimmtán ár, en það er einn vinsælasti vinnustaður í heimi fyrir forritara.
Þar viðheldur hann næstmest notaða forriti fyrirtækisins og segir verkefnin enda-
laust krefjandi og skemmtileg.
Í vinnunni Logi lætur ekki framhjá neinum fara að hann er Íslendingur.
Risi Þrjár af 54 hæðum í höfuðstöðvum Bloomberg í New York.
Ný fyrirlestrarröð hefst í Bókasafni
Seltjarnarness í dag mánudag 9.
janúar undir yfirskriftinni Eldhús-
dagar, en á þeim fyrirlestrum ætla
ýmsir sérfræðingar að fjalla um
hagnýt og heilsusamleg ráð innan
veggja heimilisins. Í tilkynningu
kemur fram að súrkálsmeistarinn
Dagný Hermannsdóttir ætli að ríða
á vaðið í dag kl 17.30 og bjóða gest-
um í ferðalag um undraheima súr-
kálsins. Hún ætlar að varpa ljósi á
sannleikann um hollustu og vin-
sældir mjólkursúrs grænmetis, en
sýrt grænmeti er meinhollt og
neysla þess getur hresst upp á
þarmaflóruna.
Margir tengja súrkál við eitthvað
fremur ólystugt en sýrt grænmeti
getur verið mikið sælkerafóður og
býður upp á nýjar víddir í mat-
argerð, sem gestir fá að kynnast af
eigin raun á staðnum. Eldhúsdagar
verða haldnir mánaðarlega í Bóka-
safni Seltjarnarness og eru allir vel-
komnir og aðgangur ókeypis.
Eldhúsdagar á bókasafni Seltjarnarness
Morgunblaðið/Golli
Súrt Dagný Hermannsdóttir er meistari þegar kemur að því að sýra grænmeti.
Má bjóða ykkur í ferðalag um
undraheima súrkálsins?
Að syngja í kór er bæði skemmtilegt
og uppbyggjandi og nú er tækifæri
fyrir stráka á aldrinum 8-14 ára til að
prófa það. Drengjakór Reykjavíkur
hefur opnað fyrir nýja söngvara og
eru nokkur laus pláss. Upplýsingar
fást með því að senda tölvupóst á:
drengjakor.reykjavikur@gmail.com
eða með því að fara á Facebook-síðu
kórsins: Drengjakór Reykjavíkur.
Opið fyrir fleiri söngvara í Drengjakór Reykjavíkur
Strákar prófið að syngja í kór!
Kátir Piltarnir í Drengjakór Reykjavíkur brugðu sér í fjöruna.
Fílsungi sem hefur fengið nafnið
„Clear Sky“, eða Heiður himinn,
skaðaðist á fæti í Taílandi fyrir þrem-
ur mánuðum en hlúð er vel að skepn-
unni af dýralæknum og fílahirðum
sem þjálfa nú dýrið til gangs að nýju
og gera það ofan í vatni. Heiður him-
inn missti framan af fætinum þegar
hann lenti í snöru. Þessi sex mánaða
fílsungi er sá fyrsti til að fá svokall-
aða vatnslæknismeðferð á þessum
ágæta dýraspítala, sem er í nokkurra
tíma fjarlægð frá Bangkok. Vonandi
gengur vel hjá þeim.
Litli fílsunginn Heiður himinn missti framan af fæti
Fíll í göngu-
þjálfun í vatni
AFP
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.com
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT
DEKK UNDIR FLESTAR
GERÐIR JEPPA OG
JEPPLINGA.
STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU.
ÖLL ALMENN
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900