Morgunblaðið - 09.01.2017, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2017
Jóhannes Felixson bakarameistari er 50 ára í dag og hélt upp á af-mælið sitt í gær í Turninum og mættu rúmlega 100 manns.Fyrirtæki hans, Jói Fel, fagnar einnig 20 ára stórafmæli á
árinu, en það var stofnað árið 1997.
„Við erum komin með fimm útibú og um 80 manns í vinnu og ég
ætla að halda upp á afmæli mitt og fyrirtækisins allt árið.
Ég var búinn að ákveða að hætta að skrifa allar þessar bækur og
gera þessa sjónvarpsþætti og taka þátt í félagsmálum áður en ég yrði
fimmtugur því ég hélt ég yrði svo rosalega gamall þá. En ég hafði
m.a. verið formaður Landssamtaka bakarameistara og var prófdóm-
ari til margra ára í Menntaskólanum í Kópavogi. Ég sagði skilið við
þetta allt fyrir tveimur til þremur árum, en nú finnst mér ég ekki vera
neitt gamall svo hver veit nema ég komi aftur með eitthvað nýtt og
spennandi.
Ég fór að hugsa meira um sjálfan mig og fyrirtækið og er stundum
líka að teikna og mála. Ég hef líka mikla ánægju af skot- og laxveiði
og reyni að sinna því eftir bestu getu.“
Jói hefur frá 2001 verið giftur Unni Helgu Gunnarsdóttur sem hef-
ur staðið við hlið hans í fyrirtækinu alla tíð. Börn þeirra eru Ágúst
Atli, Tómas Atli, Rebekka Rún og yngstur er Jóhannes Felix. – Á
hann síðan að taka við fyrirtækinu? „Hver veit? Hann er þegar byrj-
aður í námi í matreiðslu í Menntaskólanum í Kópavogi.“
Morgunblaðið/Eggert
Bakarameistarinn Bakaríið hjá Jóa Fel á einnig stórafmæli á árinu.
Farinn að hugsa sér
til hreyfings á ný
Jói Fel er fimmtugur í dag
Ó
Ólafur J. Proppé fædd-
ist í Reykjavík 9.1. 1942
og ólst þar upp til 12
ára aldurs en síðan í
Garðahreppi (nú
Garðabæ). Hann lauk kennaraprófi
frá KÍ 1964, stundaði nám við fram-
haldsdeild KHÍ 1972-73, lauk MS-
prófi í uppeldissálarfræði frá Uni-
versity of Illinois 1976, doktorsprófi
(PhD) í uppeldis- og mennt-
unarfræði frá sama háskóla 1983 og
hefur sótt fjölda námskeiða í uppeld-
is-, menntunar- og kennslufræðum.
Ólafur var kennari við Hlíðaskóla í
Reykjavík 1964-65, Heimavist-
arskólann á Jaðri 1964-65, Öldutúns-
skóla í Hafnarfirði 1965-74, var
barnaverndarfulltrúi Hafnarfjarðar
1964-66, sérfræðingur hjá mennta-
málaráðuneytinu 1975-83, stunda-
kennari við KHÍ 1975-83 og við HÍ
1977-84 og sérfræðingur í mati á
skólastarfi fyrir menntamálaráðu-
neytið á Möltu, á vegum UNESCO,
haustið 1983, og við mat á þróun-
arstarfi Þróunarsamvinnustofnunar
Íslands í Malaví sumarið 1996.
Ólafur var lektor við KHÍ 1983-90,
dósent 1990-92, prófessor frá 1992,
kennslustjóri 1987-89, aðstoðar-
rektor 1991-99, starfandi rektor á
haustmisseri 1997 og rektor KHÍ
2000-2008, en hann baðst lausnar
eftir að sameiningu KHÍ og HÍ var
formlega lokið 2008. Hann hefur síð-
an unnið ýmis verkefni fyrir mennta-
málaráðuneytið, Alþingi og HÍ.
Ólafur hefur tekið þátt í og verið
formaður fjölmargra starfshópa og
opinberra nefnda um uppeldis- og
menntamál.
Ólafur gekk ungur í Skátafélagið
Hraunbúa í Hafnarfirði, sinnti þar
ýmsum trúnaðarstörfum og fyrir
Bandlag íslenskra skáta, lauk leið-
togaþjálfun fyrir fullorðna skáta,
m.a. frá Gilwell Park í London, hefur
verið stjórnandi fjölmargra nám-
Ólafur J. Proppé, prófessor emeritus og fyrrv. rektor KHÍ – 75 ára
Þrjár kynslóðir Hér er jólamaturinn undirbúinn. Frá vinstri: Jón Proppé, Ævar Uggason Proppé og Ólafur Proppé.
Menntun kennara og
störf björgunarsveita
Afmælisbarnið Ólafur Proppé.
Hann hefur menntað kennara, sinnt
skátastarfi og björgunarsveitum.
Anthony Gia Bao Nguyen safnaði
peningum með því að hjálpa
mömmu sinni við ýmsa hluti heima
fyrir og með því að stunda hreyf-
ingu, m.a. með því að hlaupa hratt.
Hann ákvað fljótlega að pening-
urinn sem hann fékk fyrir dugn-
aðinn, 5.739 kr., skyldi renna til
fátækra barna.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Fenix PD35Tactical Edition
vasaljósið fer vel í hendi og vasa.
Tilvalið fyrir veiðimenn, útivistarfólk
og þá sem sinna öryggisvörslu.
Endursöluaðili: Iðnaðarlausnir ehf. | Hlíðasmári 9 | 201 Kópavogur | Sími 577 22 33
Ljósstyrkur: 1000 lumens
Drægni: 200 m
Lengd: 137 mm
Þvermál: 25,4 mm
Þyngd: 89 g (fyrir utan rafhlöðu)
Vatnshelt: IPX-8