Morgunblaðið - 09.01.2017, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.01.2017, Qupperneq 23
ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2017 skeiða fyrir skátaforingja, félaga í hjálparsveitum skáta og annað björgunarsveitafólk frá 1960, var fyrsti formaður Gilwell-hringsins, 1963, situr í stjórn Bandalags ís- lenskra skáta frá 2011, formaður fræðsluráðs Bandalags íslenskra skáta frá 2011, var formaður Hjálp- arsveitar skáta í Hafnarfirði í 11 ár, formaður Landssambands hjálp- arsveita skáta (LHS) 1971-73 og 1989-91, formaður Landsbjargar, landssambands björgunarsveita, 1991-99 (eftir sameiningu Lands- sambands hjálparsveita skáta og Landssambands flugbjörgunar- sveita), formaður Slysavarnafélags- ins Landsbjargar (eftir sameiningu Landsbjargar og Slysavarnafélags Íslands) 1999-2000, stjórnaði að- gerðum björgunarsveita í Vest- mannaeyjum fyrstu 10 daga gossins 1973, starfaði í starfshópum og op- inberum nefndum um almanna- varna- og björgunarmál og sat í Al- mannavarnaráði ríkisins 1996-2000. Ólafur var formaður Samtaka ís- lenskra kennaranema 1963-65, sat í stjórn Samtaka norrænna kennara- nema 1963-65 og Félags barnakenn- ara á Reykjanesi 1972-74, var rit- stjóri Foringjans 1961-63, Fjarðarfrétta 1969-73 og Mennta- mála 1974-75, formaður Samtaka áhugafólks um uppeldis- og mennta- mál (SÁUM) 1982-83, sat í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar 1986-90, var formaður skólanefndar Álftaness 2006-2010, var einn af stofnendum Hraunavina og sat í stjórn félagsins í sex ár, formaður Almannaheilla – samtaka þriðja geirans 2013-2015, hefur setið í nefnd um málefni aldr- aðra í Garðabæ frá 2014 og í stjórn Félags áhugafólks um sögu Bessa- staðaskóla frá 2015. Ólafur hefur verið sæmdur fjölda heiðursmerkja af skátahreyfing- unni, var sæmdur riddarakrossi ís- lensku fálkaorðunnar 1995 fyrir störf að björgunarmálum, Gullmerki Slysavarnafélags Íslands 1999, heið- ursskildi Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2008 og Skátakveðj- unni úr gulli 2014. Fjölskylda Eiginkona Ólafs er Pétrún Pét- ursdóttir, f. 26.8. 1942, fyrrv. for- stöðumaður Hafnarborgar. For- eldrar hennar voru Pétur Árnason, f. 18.6. 1905, d. 8.6. 1942, skipstjóri í Reykjavík, og Maríanna Elíasdóttir, f. 13.6. 1916, d. 10.8. 1991, húsfreyja í Hafnarfirði. Fósturfaðir Pétrúnar var Jón Björnsson, f. 16.10. 1909, d. 22.3. 1996, vélstjóri í Hafnarfirði. Börn Ólafs og Pétrúnar eru Jón Sverrir Proppé, f. 20.2. 1962, heim- spekingur og listfræðingur í Reykja- vík, en kona hans er Guðrún Björk Kristjánsdóttir íslenskufræðingur; Óttarr Ólafur Proppé, f. 7.11. 1968, alþingismaður í Reykjavík, en kona hans er Svanborg Þórdís Sigurðar- dóttir bóksali, og Ragnheiður Hulda Proppé, f. 23.1. 1971, mannfræð- ingur í Reykjavík. Ólafur og Pétrún eiga þrjú barna- börn, Ólöfu Öndru (dóttir Jóns), og Ævar og Krumma (synir Huldu). Systkini Ólafs: Óttar Proppé, f. 25.3. 1944, d. 11.9. 1993, m.a. ritstjóri Þjóðviljans, bæjarstjóri á Siglufirði og síðast fjármálastjóri Hafnarfjarð- arhafnar; Friðbjörg Proppé, f. 5.2. 1950, starfar á Hrafnistu í Hafn- arfirði; Hrafnhildur Proppé, f. 20.6. 1952, flugfreyja í Garðabæ. Foreldrar Ólafs voru Óttarr Proppé, f. 19.2. 1916, d. 6.12. 2007, forstjóri í Reykjavík, og Guðrún Hulda Proppé, f. 28.8. 1917, d. 27.12. 1980. Úr frændgarði Ólafs J. Proppé Ólafur J. Proppé Þorbjörg Snæbjörnsdóttir húsfreyja á Efri-Sýrlæk, flutti til Kanada Friðleifur Jónsson b. á Efri-Sýrlæk, Árn., flutti til Kanada Friðbjörg Friðleifsdóttir húsfreyja í Rvík Gísli Jóhannesson trésmiður í Rvík Guðrún Hulda Proppé húsfr. í Rvík og í Garðabæ Valgerður Andrésdóttir húsfreyja á Jaðri á Akranesi og víðar Jóhannes Jónsson b. á Jaðri á Akranesi og víðar Hrafnhildur Proppé húsfr. í Garðabæ Carl Proppé verslunarstj. á Þingeyri Ólafía Gísladóttir húsfr. í Kópavogi Óskar Gíslason gullsmiður í Rvík Andrea Gísladóttir húsfr. og sauma- kona í Rvík Óttar Proppé ritstjóri Þjóðviljans og bæjarstj. á Siglufirði Hulda Dögg Proppé kennari og söngkona Carla Hanna Proppé húsfr. í Rvík Björg Atla myndlistarmaður Edda Óskarsdóttir myndlistarmaður Jóhanna Sigríður Guðmundsdóttir húsfr. í Noregi Ólafur Guðmundsson kennari í Rvík Hugo Lárus Þórisson sálfræðingur Andrea Gylfadóttir söngkona Hróar Hugosson mannauðsfulltrúi hjá Matís Kolbeinn Óttarsson Proppé blaðamaður og alþm. Jóna Ingibjörg Örnólfsdóttir húsfr. á Flateyri og Þingeyri Jónas Thorsteinsson Hall verslunarstj. á Flateyri Áslaug Hall Proppé húsfr. á Þingeyri og í Rvík Ólafur J. Proppé forstj. á Þingeyri og í Rvík og alþm. Óttarr Proppé forstjóri í Rvík Helga Jónsdóttir Proppé húsfreyja í Hafnarfirði Claus Eggert Dietrich Proppé bakarameistari í Hafnarfirði Hjörtur Hjartar fæddist 9.janúar 1917 á Þingeyri viðDýrafjörð. Foreldrar hans voru Ólafur R. Hjartar járnsmiður þar, f. 1892, d. 1974, og k.h. Sigríður Egilsdóttir, f. 1893, d. 1980. Hjörtur brautskráðist frá Sam- vinnuskólanum árið 1937 en áður hafði hann stundað verslunarstörf hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga á ár- unum 1931 til 1936. Hann varð kaup- félagsstjóri Kaupfélags Önfirðinga á Flateyri á árunum 1937 til 1945 og kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Siglfírðinga á árunum 1945 til 1952, er hann tók við stöðu fram- kvæmdastjóra Skipadeildar Sam- bands íslenska samvinnufélaga. Því starfi gegndi hann til ársloka 1976. Hjörtur átti sæti í stjórn Sam- vinnusparisjóðsins og síðar í banka- ráði Samvinnubankans frá stofnun árið 1963. Hann sat í stjórn Áburð- arverksmiðjunnar hf. og síðar í stjórn Áburðarverksmiðju ríkisins frá árinu 1964. Einnig var hann í stjórn Olíufélagsins hf. frá 1967 og var stjórnarformaður í mörg ár. Hann átti sæti í stjórn Vinnumála- sambands Samvinnufélaga og samn- inganefndum fyrir það um margra ára skeið. Hann sat auk þess í stjórnum fjölmargra fyrirtækja á vegum samvinnuhreyfmgarinnar. Hjörtur var í stjórn Framsókn- arfélaga í V.-Ísafjarðarsýslu, á Siglufirði og í Reykjavík í allmörg ár. Hann sat auk þess í ýmsum nefndum og ráðum, svo sem í hafn- arnefnd á Siglufirði og sat eitt kjör- tímabil í stjórn Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Greinasafn Hjartar, Á líðandi stund – nokkur rök samvinnumanna, kom út 1984. Eiginkona Hjartar var Guðrún Jónsdóttir Hjartar kennari, f. 23.11. 1915, d. 14.12. 2009. Foreldrar henn- ar voru Jón Jónsson, bóndi og al- þingismaður í Stóradal í Austur- Húnavatnssýslu, og k.h. Sveinbjörg Brynjólfsdóttir. Börn Hjartar og Guðrúnar eru Jóna Björg, Sigríður Kristín, Elín og Egill. Hjörtur lést 14.1. 1993. Merkir Íslendingar Hjörtur Hjartar 90 ára Aðalheiður Gunnarsdóttir Andrea Kr. Þorleifsdóttir Ragnheiður E. Guðmunds- dóttir 85 ára Helga Jónsdóttir Ólafur Sigurgeirsson Reynir Þorkelsson 80 ára Guðmundur Hjörtur Ákason Kristinn G. Álfgeirsson Snorri Hannesson Tormod Engebretsen 75 ára Erlingur Viðar Leifsson Eysteinn Björnsson Jónína Bjarnadóttir Leonard George Robert Horne Lillý Jónsdóttir Ólafur J. Proppé Sigrún Löve 70 ára Arnar Guðmundsson Guðleif Sigurðardóttir Stefán Jónsson Vigdís A. Jónsdóttir Þórhallur Aðalsteinsson 60 ára Ari Sævar Michelsen Árni Þorvaldsson Einar Valur Kristjánsson Elías Hákonarson Hróðmar Hafsteinn Haf- steinsson Ingólfur Sigurjónsson Kristín Finnbogadóttir Kristín Ingibjörg Gunnarsd. Líney Soffía Daðadóttir Martin Guðmundsson Mary Anna Campbell Ólafur Örn Þorláksson Runólfur Þór Sigurðsson Salvör Kristín Héðinsdóttir Sigurlína Kristín Magnúsd. Þorgrímur Sverrisson Þorsteinn Óli Sigurðsson Þuríður Una Pétursdóttir 50 ára Ásmar Örn Brynjólfsson Bjarki S. Aðalsteinsson Böðvar Baldursson Einar Þórisson Grigory Ter-Martirosov Guðrún Helga Jónsdóttir Hafdís Viggósdóttir Helga Margrét Sigurðard. Joanna Barszczewska Jóhanna Svavarsdóttir Jóhannes Felixson Kolbrún Garðarsdóttir Signý Eiríksdóttir Sigríður Anna Guðjónsd. Sigurbjörn Á. Ragnarsson Sigurður Halldórsson Teitur Örlygsson 40 ára Bergþór Sigurðsson Inga Fríða Guðbjörnsdóttir Nikola Trbojevic Sturla Guðlaugsson Sævar Örn Hallsson 30 ára Anna Sæunn Ólafsdóttir Ásdís Ósk Elfarsdóttir Heiðrún Ólöf Jónsdóttir Heimir Hallgrímsson Hrafnhildur Elínardóttir Hrafn Þráinsson Marek Behán Sunna Rut Þórisdóttir Tinna Dórey Pétursdóttir Þormar Ellert Jóhannsson Þór Sveinsson Til hamingju með daginn 40 ára Sturla er Akur- nesingur og er eigandi trésmiðjunnar Vegamóta. Maki: Arna Magnúsdóttir, f. 1980, svæfingahjúkr- unarfræðingur. Börn: Stefán Bjarki, f. 1995, Bára Valdís, f. 2002, Magnús Ingi, f. 2007, og Vala María, f. 2008. Foreldrar: Guðlaugur Þór Þórðarson, f. 1948, d. 2005, og Kristín Magnús- dóttir, f. 1948. Sturla Guðlaugsson 30 ára Anna Sæunn er frá Bjarnarstöðum í Bárðar- dal, S-Þing., en býr á Akureyri. Hún er kvik- myndagerðarkona og rek- ur fyrirtækið NyArk Media. Maki: Jóhann Ari Jóhannsson, f. 1986, lög- reglumaður í Reykjavík. Sonur: Huginn Haukur, f. 2012. Foreldrar: Ólafur Ólafs- son, f. 1959, og Friðrika Sigurgeirsdóttir, f. 1959, bændur á Bjarnarstöðum. Anna Sæunn Ólafsdóttir 40 ára Inga Fríða er Kefl- víkingur og er flugfreyja hjá Icelandair. Maki: Anton Már Ólafs- son, f. 1977, viðskipta- fræðingur í Danmörku. Börn: Sara Rún, f. 1996, Bríet Sif, f. 1996, Eygló Nanna, f. 2003, og Davíð Breki, f. 2010. Foreldrar: Guðbjörn Bjarni Bjarnason, f. 1949, og Sigurlaug Nanna Þrá- insdóttir, f. 1951. Þau eru bús. í Keflavík. Inga Fríða Guðbjörnsdóttir Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining áhitabreytist eftir aldri? ThermoScan7eyrnahita- mælirinnminnveit það.“ Braun ThermoScan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.