Víkurfréttir - 24.11.2005, Blaðsíða 14
Arsól í Garði:
SAGA
F A S T E I G N
► Guðmundur Þórðarsson hdl & löggiltur fasteignasali SífTlÍ 414 8800 ► www.sagafasteignir.is
gajk>ur
Byggðasafn Garðskaga
SGOR-fyrirlestur í 88-húsinu
Svava Björnsdóttir mun
halda íyrirlestur á vegum
SGOR, Samtaka gegn of-
beldi í Reykjanesbæ, í 88 hús-
inu á mánudag.
Svava er verkefnisstjóri Blátt
áfram, forvavarnarverkefnis
vegna kynferðislegar misnotk-
unar á börnum, og mun hún
fjalla um eflingu forvarna til að
fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi
áður en það á sér stað.
Blátt áfram vill vekja athygli á
málaflokknum til þess að breyta
samfélagsvitund Islendinga svo
hægt sé að leggja fram leiðir til
að bæta úr.
Þar að auki vilja aðstandendur
verkefnisins Blátt áfram efla
samstöðu þeirra sem vinna að
þessum málum og hvetja aðra
sem þurfa að sinna þessum
málum, og um leið auðvelda
þeim vinnunna með því að sýna
þeim hugsanlegar leiðir.
Fyrirlesturinn, sem hefst kl. 20
verður án efa mjög forvitnilegur
og eru allir hvattir til að láta sjá
sig.
Heiðarbakki 9, Keflavík
Glæsilegt 184m2 einbýii meö
bílskúr innst í botnlanga
í friðsælu hverfi. Fjögur
svefnherbergi. Tvöfaidur bílskúr
sem er skipt í tvö herb. og
skúr. Fallegur garður og góð
sólbaðsaðstaða með heitum
potti. Sól og skjól frá morgni
tii kvölds.
FRÁBÆR EIGN Á GÓÐUM
STAÐ SEM VERT ER AÐ
SKOÐA.
Klapparbraut? Garði
Skemmtilegt 123nr einbýli
ásamt tilbúnum grunni
undir 40m2 bflskúr. Fjögur
svefnherbergi með skápum.
Glæsilegt baðherbergi. Smart
eldhús. Nýr sólpallur og stór
afgirtur garður. Eikarparket og
flísar á gólfum.
Falleg eign á vinsælum stað.
Nánari upplýsingar gefur Valdimar
í símum 414 8800 og 868 8888
Systurnar Ingibjörg og
Sigurborg Sólmund-
ardætur reka Keramik
og glergallerí í gömlu
Kothúsunum í Garði. Síðan
um verslunarmannahelgi
hafa þær systur, ásamt móður
sinni Sigríði, staðið í ströngu
í framreiðslunni en þær
sjá mest öllu landinu fyrir
keramikstyttum.
„Hér eru jólin allt árið um
kring,“ sagði Ingibjörg við
blaðamann um leið og hún
benti á jóladeildina hjá þeim
en þar er að finna fallega muni
til að skreyta heimilið með
yfir hátíðarnar. „Við steypum
keramik fyrir nánast allt iandið
og eigum ein 4000 þúsund
mót, fyrst eru stytturnar steyp-
tar, síðan gataðar og þá þurfa
þær að þorna í tvo daga. Að því
loknu þarf að pússa allt niður
og þrífa og að lokum eru þær
brenndar og gerðar tilbúnar
fyrir sölu,“ sagði Ingibjörg.
Móðir Ingibjargar og Sigur-
borgar, Sigríður Stephensen,
flutti nýverið ofan af Akranesi
til Suðurnesja með það að aug-
namiði að slappa af. Raunin
varð reyndar önnur en Sigríður
er komin á fullt í vinnu með
stelpunum sínum og segist bara
hafa gaman af. „Ég vil nú bara
hafa auga með þeim,“ sagði
Sigríður kímin.
Á fimmtudögum er starfrækt
keramikmálun fyrir fólk á al-
drinum 60 ára og eldri þar
sem Sigríður er leiðbeinandi,
keramikmálunin er alla
fimmtudaga frá 13-16 og er að-
gangur ókeypis.
„Hér er unnið langt fram eftir
öllum kvöldum en við gefum
okkur nú tíma til þess að halda
glerbrennslunámskeið og margt
fleira,“ sagði Ingibjörg. Einnig
er starfrækt gjafvöruverslun
í Keramik og glergalleríinu
að Kothúsum þar sem marga
fallega muni er að finna. Þær
mæðgur gera ráð fyrir að fá smá
hvíld um og eftir 15. desember
því þá séu flestir búnir að kaupa
skrautið sitt og gjafir og farnir
að huga að öðru í jólastússinu.
26. nóvembernk. eru liðin 10 ár síðan Byggðasafn var opnað
á Garðskaga. Af því tilefni verður safnið opið fyrir alla
laugardaginn 26. nóv. frá kl. 13:00 til 17:00.
Safnið er til húsa í nýju glæsilegu húsi sem er viðbygging við
eldra húsnæði og var tekið í notkun í júlí sl.
í nýja húsinu ermeðal annars glæsilegt vélasafn sem í eru sextíu vélar.
Á afmælisdaginn verða vélar gangsettar.
Sýndar verða myndir af því þegar vélar voru gangsettar í fyrsta sinn eftir
að hafa verið gerðar upp, og af GMC trukk Guðna Ingimundarsonar
við ýmsa vinnu sem hann aðhafðist á bílnum, en Guðni gerði allar
vélarnar upp sem eru á safninu. Ýmislegt annað myndefni verðursýnt.
Sveitarfélagið Garðurbíður öllum upp á kaffi ogmeðlæti á
Flösinni sem er á efri hæð í safnahúsinu.
Allir velkomnir, Byggðasafnsnefnd
Lindartún, Garði
Smart 105m24ra herbergja
parhús. Þrjú rúmgóð
svefnherbergi m/skápum. Góð
stofa, hátt til lofts. Baðherbergi
flísalagt í hólf og gólf. Rúmgott
eldhús. Stór afgirtur garður.
Opin og björt eign á góðum stað.
Heiðarvegur - Keflavík
Góð 77m2 3ja herb. neðri sérhæð
ásamt 32m2 bflskúr, samtals
109m2. Tvö góð svefnherbergi.
Hátt til lofts. Stór afgirt lóð.
Virkilega smart og góð eign.
Samtök gegn ofbeldi í Reykjanesbæ:
ALLT Á FULLU
SfÐAN í ÁGÚST
14
VIKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!