Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.02.2006, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 02.02.2006, Blaðsíða 12
Heilsuleikskólinn Krókur í Grindavík 5 ára: krókur & 1 i,k JIKmil INN A . . J j J ip Opið hús í Króki á laugardag Heilsuleikskólinn Krókur Grindavík verður 5 ára 5. febrúar og af því tilefni verður opið hús laugardaginn 4. febr- úar kl. 14:00-16:00. Sýning verður á verkum barnanna, leikefni, námsgögnum og ljós- myndum frá opnun skólans. Markmiðið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun (tónlist og myndlist) í leik og starfi. Kjörorð okkar er heilbrigð sál í hraustum líkama. Auk þessara þriggja áhersluþátta, sem er helsta ein- kenni heilsuleikskóla er lögð rík áhersla á frjálsan leik þar sem ákvörðunarréttur barnsins er virtur. Unnið er með könnunarleikinn sem er námsleið fyrir yngstu börnin í leikskólanum. Einnig er unnið mark\4sst með stærðfræðileiki- og þrautir, málörvun sem undirstaða læsis og jákvæð sam- skipti. Við leggjum áherslu á þróunar- og nýbreytnistarf með það að markmiði að gera gott starf betra. Af- rakstur þessa starfs er t.d. stærðfræði- og málörv- unarverkefni, leikjahefti með íþróttaleikjum, vís- indakassi, hlutverkakassar, víkingabúningar, deild- arstjórahandbók o.f.l. sem verður til sýnis. Formleg athöfn verður kl. 15:00 þegar ný heima- síða leikskólans verður opnuð og eru allir vel- komnir. Ráðgjöf- verktaka ehf Leikskólinn Krókur Föstudaginn 20. janúar buðu nemendur Njarð- víkurskóla afa og ömmu eða einhverjum úr fjölskyldu sinni í heimsókn í skólann. Þetta hefur verið árviss at- burður í skólanum og afar og ömmur ávallt brugðist vel við og flykkst í skólann til að heimsækja börnin á vinnustað þeirra. Gestirnir komu klukkan 10 og var stutt dagskrá á sal skólans fyrir þá. Nokkrir nemendur spiluðu á klarinett Nú er frost á Fróni og gestirnir sungu með. Minni karla og kvennavar einnig sungið og nemandi úr 7. bekk las frásögn um þorrann þar sem sérstaklega var sagt frá siðum og venjum sem tengjast bóndadegi, fyrsta degi þorra, og þorraþræl síðasta degi þorra. Að lokum sungu nemendur í 2. bekk krummasöngva fyrir gestina. Eftir dagskrána á sal fóru gestir í heimsókn í kennslu- stofur til nemenda. Á göngum skólans var boðið upp á þorra- mat sem verslunin Samkaup gaf skólanum í tilefni dagsins og kunnu gestirnir vel að meta kræsingarnar. Það var ánægjulegt að sjá fjöl- skyldur nemenda bregðast svona vel við og sýna starfi skól- ans áhuga. Starfsfólk og nem- endur skólans þakka gestunum komuna og Samkaupum fyrir rausnarlega gjöf. Fjölskyldudagur í Njarðvíkurskóla 12 I VfKURFRÉTTIR : 5. TÖLUBLAÐ I 27.ÁRGANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DÁGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.