Víkurfréttir - 23.03.2006, Side 2
^Wjbmiíir
freMir
Starfsmenn Vartiarliðsins:
72%afSuð-
urnesjum
Af þeim tæplega 600
starfs mönn um
sem starfa hjá
Varnarliðinu, eru 72%
af Suðurnesjum. Flestir
þeirra búa í Reykjanesbæ
eða alls 378 sem eru 64%
af heildarfjölda íslenskra
starfsmanna VL. Frá Sand-
gerði eru 21, Garðinum 18,
Grindavík 6 og Vogum 6.
Alls eru 77 starfsmenn varn-
arliðsins af Suðurnesjum á
aldrinum 60-69 ára.
Af heildarfjölda íslenskra
starfsmanna eru 108 í Versl-
unarmannafélagi Suðurnesja
(18,2%), 92 (15,5%) í Verka-
lýðs- og sjómannafélagi
Keflavíkur og 66,3% eru í
öðrum stéttarfélögum.
Störfum I’slendinga hjá Varn-
arliðinu hefur fækkað úr
1.620 árið 1997 í um 800-
900. Tæplega 600 eru nú að
störfum hjá Varnarliðinu en
um 250 hjá öðrum svo sem
Kögun/Ratsjárstofnun, B.
Árnasyni, ÍAV þjónustu o.fl.
Hjá Varnarliðinu tengjast
127 starfsmenn iðnaðar-
störfum. Þar af eru 23 mat-
sveinar, 27 rafiðnaðarmenn,
15 járniðnaðarmenn/bifvéla-
virkjar, 9 rafeindavirkjar, 46
trésmiðir og pípulagninga-
menn og 7 útiverkamenn.
Landsbankinn
AAUNDI
Nií verður Tollurinn að
passa að kaninn smygli
ekki þotunum úr landi...
Aukin tollgæsla í aðalhliði Keflavíkurflugvallar - Urgur í starfsmönnum Varnarliðsins:
Uggur í starfsmönnum Flugmálastjórnar a
Keflavíku rfI ugvel I i eftir ræðu forsætisráðherra
Ræða Halldórs Ásgrímssonar, for-
sætisráðherra, á borgarafundi í
Stapa á mánudagskvöld skapaði
óvissu og ugg meðal starfsmanna Flug-
málastjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Hjá Flugmálastjórninni á Keflavíkurflug-
velli starfa í dag um 60 manns. í ræðunni
talaði Halldór um samstarfshóp fjögurra
ráðuneyta sem hafi verið skipaður. Það
vakti því athygli starfsmanna Flugmála-
stjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli að
þeirra vinnuveitandi var ekki nefndur til
Ieiks þegar rætt var um framtíðarskipan
mála á Keflavíkurflugvelli.
Samstarfshópurinn myndi kalla til sérfræð-
inga og hagsmunaaðila en í sambandi við
yfirtöku á Keflavíkurflugvelli skiptu þrjár
stofnanir meginmáli; Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, Landhelgisgæslan og sýslumanns-
embættið á Keflavíkurflugvelli. Flugstöðin
gæti komið að rekstri flugbrauta og hugsan-
lega slökkviliðinu.
Halldór sagði að kaupa yrði þyrlu fyrir Land-
helgisgæsluna og að hún yrði að að verulegu
leyti, hugsanlega öllu leyti starfrækt á þessu
svæði. Þá yrði sýslumannsembættið hugsan-
lega sameinað Landhelgisgæslunni.
I dag annast Flugmálastjórnin á Keflavíkur-
flugvelli rekstur flugbrauta í samstarfi við
Varnarliðið og alla flugumferðarþjónustu á
Keflavíkurflugvelli. Þá sér Flugmálastjórnin
á Keflavíkurflugvelli um alla stjórnsýslu
vegna flugumferðar um Keflavíkurflugvöll.
Steingrímur S. Ólafsson, upplýsingafulltrúi
forsætisráðherra, sagði í samtali við Víkur-
fréttir að ekki væri vitað með hvaða hætti
Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli kæmi
að framtíðarrekstri á svæðinu. Umræður
um þau mál væru ekki kornnar það langt í
ráðuneytinu.
Jón Egill Egilsson, skrifstofustjóri hjá Varnar-
málaskrifstofu Utanríkisráðuneytisins, lagði
áherslu á í samtali við Víkurfréttir að engar
ákvarðanir hafi verið teknar um framtíðar-
skipan rnála á Keflavíkurflugvelli. Beðið sé
eftir upplýsingum frá bandarískum stjórn-
völdum og því ekki tímabært að ákveða
nokkuð um rekstrarfyrirkomulag. Það sé
hins vegar ljóst að tekið verði tillit til allrar
þeirrar starfsemi sem í dag sé á Keflavík-
urflugvelli og breytingar verði í góðu sam-
ráði við flugvallarstjóra, sem og aðra aðila á
Keflavíkurflugvelli.
Samgönguráðherra sagði í gærdag að
Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli
yrði sameinuð Flugmálastjórn Islands.
Yfirstjórn Keflavíkurflugvaliar lýtur
undir Utanríkisráðuneytið og samkvæmt
heimildum Víkurfrétta hefur engin
tilkynning komið frá þeim um að sameina
eigi hana Flugmálastjórn íslands.
Tollgæslan hefur eflt eft-
irlit sitt á umferð um
aðalhlið Varnarstöðv-
arinnar og leitar nú ítarlega í
mun fleiri bílum en áður.
Kári Gunnlaugsson, aðaldeild-
arstjóri Tollgæslunnar, sagði í
samtali við Víkurfréttir að þeir
hafi tekið til þessara ráða í síð-
ustu viku eftir fréttirnar urn
samdrátt og væntanlegar upp-
sagnir á varnarstöðinni.
„Við erurn að reyna að vera
frekar vakandi en áður. Það fer
allt í viðbragðsstöðu í svona að-
stæðum. Þetta er ekkert svaka-
legt en við reynum að vera með
meiri viðbúnað eins og kostur
er.”
Kári segir að aðgerðir Tollgæsl-
unnar hafi að mestu mætt skiln-
ingi þeirra sem fyrir ónæði
verða. Nokkur smávægileg
atvik hafa komið upp þar sem
ólöglegur varningur hafi verið
gerður upptækur en það skýrist
mögulega af hertara eftirliti.
Starfmenn Varnarliðsins sem
hafa haft samband við Víku-
fréttir segja, þvert á það sem
Kári segir, að hiti sé í starfs-
mönnum sem finnst að sér
vegið. „Það er komið fram við
okkur eins og glæpamenn,”
sagði starfsmaður, sem vidi ekki
láta nafns síns getið, í samtali
við Víkurfréttir.
Aðgerðirnar munu standa um
óákveðinn tíma og munu starfs-
menn Varnarliðsins því þurfa
að sætta sig við þær þar til Toll-
gæslan ákveður annað. Á fundi
utanríkisráðherra með starfs-
mönnum Varnarliðsins sagð-
ist ráðherra ekki hafa vitað af
þessum aðgerðum.
Framtíð Keflavíkurflugvallar eftir brotthvarf Varnarliðsins:
„KOMIÐ FRAM VIÐ OKKUR
EINS OG GLÆPAMENN"
2 IVIKURFRÉTTIR i 12. TÖLUBLAÐ i 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!