Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2006, Blaðsíða 33

Víkurfréttir - 23.03.2006, Blaðsíða 33
Þorgerður og Ehsa sigra á innanfélagsmóti Innanfélagsmót fimleika- deildar Keflavikur fór fram s.l. laugardag. Allir hópar deildarinnar nema 5 ára hópar tóku þátt. Mótið skiptist í 4 hluta. í 1. hluta kepptu D hópar sem eru yngstu hópar deildarinnar, ekki var keppt til verðlauna heldur fengu allir keppendur verðlaunapening. f 2. hluta kepptu A hópar og C hópar og kepptu A hópar til verð- launa en C hópar fengu allir verðlaunapening, auk þess sem 3 hæstu fengu auka verð- launapening. í 3. hluta kepptu B hópar og fengu allir keppendur verðlaunapening, auk þess sem 3 hæstu í hverjum hóp fengu aukapening. í 4. hluta kepptu H hópar (tromphópar) og var keppt til verðlauna þar. I öllum hlutunum voru veitt verðlaun fyrir bestu framfarir yfir veturinn, bestu mætinguna og fyrir prúðmennsku. Innanfé- lagsmeistarar í ár eru þær Þor- gerður Magnúsdóttir (11 ára) í hóp A1 í áhalda fimleikum og Elísa Sveinsdóttir (14 ára) í hóp H1 í almennum fimleikum. EinaNBirgir á leiðfsjnm [uppjað körfunnpje?ji| qeqnlEoflEorlák'sliöfn^ Sigur hja Reyni í síðasta leik Reynir frá Sandgerði lauk keppni í 1. deild karla í körfuknattleik með reisn þegar þeir lögðu Drang í lokaleik deildarinnar, 98-106, um helgina. Drangur var með frumkvæði í fyrstu og leiddi í hálfleik, 59-50, en Reynismenn voru mun sterk- ari í seinni hálfleik. Einar Birgir Bjarkason var stigahæstur í leiknum með 20 stig en hann var líka með 5 stolna bolta og hitti úr 6 af 7 3ja stiga skotum sínum. Hlynur Jónsson kom honum næstur með 17 stig og 9 fráköst. ESBÆR Tjarnargötu 12 • Póstfang 230 • S:421 6700 • Fax:421 4667 • reykjanesbaer@rcykjancsbaer.is SUNDMIÐSTÖÐ STARFSFÓLK ÓSKAST Vegna opnunar innilaugar og vatnagarðs í Sundmiðstöðinni við Sunnubraut auglýsir Reykjanesbær lausar til umsóknar tvær 100% stöður við bað- og laugavörslu karla annars vegar og kvenna hins vegar. Einnig eru laus til umsóknar sumarstörf sem henta bæði körlum og konum. Umsækjendur skulu búa yfir ríkri þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og vera heilsuhraustir. Umsækjendur þurfa að gangast undir sundpróf samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum. Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og víðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Jón Jóhannsson forstöðumaður í síma 421 1500 og Helga Jóhanna Oddsdóttir starfsþróunarstjóri í síma 421 6700. Umsóknir merktar „Sundmiðstöð" berist starfsmannaþjónustu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, fyrir 6. apríl nk. og verður þeim öllum svarað þegar gengið hefur verið frá ráðningu í störfin. Starfsþróunarstjóri. 28 samningar undirritaðir Menningar-, íþrótta- og tómstundarráð Reykjanesbæjar und- irritaði fyrir siðustu helgi alls 28 samninga við jafnmörg íþrótta- og tómstundarfélög að upphæð 25 milljónir króna. Stærsti samningurinn er við Iþróttabandalag Reykjanes- bæjar vegna niðurgreiðslu þjálfaralauna barna og ung- menna á aldrinum 12 - 14 ára, samtals kr. 9.350.000. Samningarnir eru flestir gerðir til eins árs og eru m.a. vegna kynningar á starfsemi félaga, reksturs tómstundasvæða og framkvæmda vegna viðburða og hátíðarhalda 1 Reykjanesbæ. Einnig taka nokkrir samningar til gjaldfærða afnota af íþrótta- mannvirkjum bæjarins eða nið- urgreiðslu á húsaleigu. Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið reykjatiesbaer.is ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU í BOOILANDSBANKÁNS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASlÐUR 33

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.