Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2006, Page 35

Víkurfréttir - 23.03.2006, Page 35
nýjustu fréttir alla daga avf.is Jóhann í verðlaunasætum Borðtenniskappinn Jó- hann Rúnar Kristjáns- son er kominn aftur á fulla ferð eftir veikindi og stimplaði sig rækilega inn á móti í Dublin fyrir skemmstu. Þar lenti hann í 3. sæti, bæði í tvíliðaleik þar sem hann lék með breskum spilara og í sínum flokki. Þá fékk Jóhann einnig þær góðu fréttir að hann hefði skotist upp um ein 10 sæti á heimslista og tryggt sér þátttökurétt á heims- meistaramótinu sem fram fer í september. Jóhann er í fantaformi þessa dagana og tók þátt á móti í Liverpool um síðustu helgi en árangurinn þar lét eitthvað á sér standa þrátt fyrir að Jóhann hefði sigrað Stephane Molli- ens, sem er í 2. sæti heimslist- ans í flokki Jóhanns. „Ég fékk flensu úti í Liverpool og varði mestum tímanum uppi á hóteli en ég held í dag til Búdapest til að taka þátt í alþjóðlegu punkta- móti um helgina,” sagði Jóhann í samtali við Víkurfréttir. „Keppn- isformið hefur aldrei verið betra hjá mér og um helgina mæti ég Jan Riapos sem er efstur á heims- listanum.” Heimsmeistaramótið fer fram í september og nái Jó- hann verðlaunasæti þar er hann öruggur inn á Ólympíuleikana 2008. BIRKIR MÁR með glæsilegt íslands- fT. met á IM 50 Sundfólk ÍRB átti góðu gengi að fagna á innan- hússmeistaramótinu í 50m laug síðustu helgi. Sund- menn ÍRB unnu alls til sjö fs- landsmeistaratitla og eitt af þremur fslandsmetum einstak- linga á mótinu kom frá ÍRB- manni, Birki Má Jónssyni. Árangur Birkis Más er einstak- lega glæsilegur og ber hæst afreka ÍRB á mótinu. Á laugar- deginum setti hann glæsilegt fs- landsmet í 200m flugsundi og reið þar með á vaðið fyrir aðra einstaklinga á mótinu. En alls féllu þrjú einstaklingsmet á mót- inu. Með þessum stórkostlega ár- angri tryggði hann sér sæti í afrekslandsliði fslands. Hann staðfesti síðan þann árangur með frábæru sundi í 200m skriðsundi á sunnudeginum þar sem hann kom fyrstur í mark, og aftur undir lágmarki afrekslandsliðs SSÍ. Erla Dögg Haraldsdóttir náði einnig lág- mörkum inní afrekslandslið SSÍ með mjög góðum árangri í 200 og 400m fjórsundi. Einnig náðu þrír ungir sundmenn úr ÍRB lág- mörkum inn í unglingalandslið SSf og munu þeir keppa á móti í Lúxemborg í lok apríl. Það voru þau Helena Ósk ívarsdóttir, Davíð Hildiberg Aðalsteinsson og Kristinn Ásgeir Gylfason. Gunnar Örn Ólafsson sem er nýlega gengin í raðir I'RB bætti á mótinu sitt eigið Islandsmet í 400m fjórsundi um fimm sek- úndur í flokki S14. Gunnar Örn og Jóna Dagbjört Pétursdóttir sem einnig er nýlega komin í hóp ÍRB munu síðan keppa á íslandsmóti fatlaðra um næstu helgi. íslandsmeistarar ÍRB á IM 50 2006 Birkir Már Jónsson: Islandsmeistari í 400m skriðsundi, 200m flugsundi og 200m skrið- sundi. Erla Dögg Haraldsdóttir: fslands- meistari i 200 og 400m fjórsundi. Hilmar Pétur Sigurðsson: íslandsmeistari í 1500m skrið- sundi. Karlasveit IRB í 4 x lOOm fjór- sundi: Davíð Hildiberg Aðalsteins- son, Gunnar Örn Arnarson, Birkir Már Jónsson og Hilmar Pétur Sigurðs- son. Aðrir verðlaunahafar ÍRB á IM 50 2006. Davíð Hildiberg Aðalsteinsson: Brons í 50m baksundi, silfur í 200m bak, og brons í lOOm bak. Gunnar Örn Arnarson: Brons í 200 bringu. Helena Ósk fvarsdóttir: Brons í 200m bringusundi og silfur í lOOm bringusundi. Hilmar Pétur Sigurðsson: Brons í 400m skriðsundi Jóna Helena Bjarnadóttir: Brons í 800m skriðsundi. Marín Hrund Jónsdóttir: Brons í 400m fjórsundi og 200m flugsundi. Sigurður Freyr Ástþórsson: Brons í 200m flugsundi. Karlasveit fRB í 4 x 200m skrið- sundi: Bronsverðlaun, sveitina skipuðu Davíð Hildiberg Aðal- steinsson, Gunnar Örn Ólafsson, Birkir Már Jónsson og Hilmar Pét- ur Sigurðsson. Karlasveit ÍRB í 4 x lOOm skrið- sundi: Bronsverðlaun, sveitina skipuðu Davíð Hildiberg Aðal- steinsson, Gunnar Örn Ólafsson, Birkir Már Jónsson og Hilmar Pét- ur Sigurðsson. ÍÞRÓTTASfÐUR VÍKURFRÉTTA ERU í BOÐI LANDSBANKANS ATVINNA Við leitum eftir duglegu og kraftmiklu starfsfólki í hlutastarf, og á kvöldin og um helgar. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á KFC í Reykjanesbæ. Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli óskar eftir að ráða kvenmann í afleysingastarf flugöryggisvarðar á flugvallarsvið. Starfssvið: Meginhlutverk flugöryggisvarðar er daglegt eftirlit og vöktun á flug- þjónustusvæði Keflavíkurflugvallar. Unnið er á tvískiptum 12 tíma vöktum. Hæfnis- og menntunarkröfur: Grunnskólapróf auka tveggja ára framhaldsskóla eða sambærilegri menntun. Góð þekking á flugtengdri starfsemi. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á íslenskri og enskri tungu. Viðkomandi þarf að vera góður í mannlegum samskiptum. Hafi sjálfstæði í vinnubrögðum. Ökuréttindi til aksturs bifreiðar allt að 5t heildarþyngd. Óflekkað mannorð. Góð sjón. Viðkomandi þarf að undirgangast námskeið hjá öryggissviði og standast verklegt og skriflegt próf að því loknu. Launakjör: Laun samkvæmt viðeigandi kjarasamningi starfsmanna ríkissins. Upplýsingar: Frekari upplýsingar um starfið veitir Arngrímur Guðmundsson í síma 425 0623 eða í arngrimur@kefairport.is Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvelli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Umsóknarfrestur er til 31. mars 2006. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. VIKURf RfTTIR I IhRÓTTASÍDUR I 35

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.