Víkurfréttir - 23.03.2006, Síða 39
Keflavík - ísland - Alheimurinn eða Mamma Þín!
GLÆSILEG SÝNING!
Samstarfsverkefni Leikfélags
Keflavíkur og Vox Arena (leikfé-
lagFS). Frumsýnt í Frumleikhús-
inu föstudaginn 17.mars.
vernig er hinn týpíski
Keflvíkingur? Er allt
fallega fólkið í Grinda-
vík? Hvernig hófst rígurinn
milli Keflavíkur og Njarð-
víkur? Er hægt að finna Voga
á landakortinu? Er allt fullt
af fíflum í Njarðvík? Veist þú
hvernig Keflavík varð til?
Öllum þessum spurningum
og fleirum til er svarað á sviði
Frumleikhúss Keflavíkur í glæ-
nýju leikverki. Leikfélag Kefla-
víkur og Vox Arena frumsýndu
síðustu helgi glænýtt leikverk
sem ber heitið Keflavík - ísland
- Alheimurinn eða Mamma
Þín! Þetta er í annað sinn sem
þessi félög stíga saman á svið
en í fyrra skiptið var það söng-
leikurinn Grettir sem varð fýrir
valinu. I þetta sinn er leikritið
hugarsmíð leikhópsins og er
handritið unnið af þeim í sam-
vinnu við leikstjórann Sigurð
Eyberg, en einnig er tónlistin
í verkinu frumsamin og gefur
verkinu skemmtilegan svip. I
verkinu er fjallað um bæjarfé-
lögin okkar á Suðurnesjum og
hið litríka mannlíf sem hér er.
Slegið er upp kómískri mynd
af bæjarlífinu og ættu allir að
finna sjálfa sig í verkinu. Segja
má að þetta sé einskonar revía
unga fólksins.
Leikarar sem eru 17 talsins
koma úr röðum beggja leikfé-
laga og hefur Frumleikhúsið
iðað af lífi síðustu vikur, enda
mikil vinna sem felst í því að
semja og skrifa handrit frá
grunni og hnoða það saman í
heilsteypta leiksýningu. Sviðs-
myndin er hönnuð af Sigurði Ey-
berg og Kristínu Rúnarsdóttur
en leikhópurinn hefur svo tekið
höndum saman og aðstoðað við
uppsetningu leikmyndarinnar.
1 áhugaleikfélögum veltur allt
á dugnaði þeirra sem að verk-
inu standa og í Mamma Þín!
er samvinna leikhópsins til fýr-
irmyndar. Nú er undirbúning-
urinn á lokastigi og fátt annað
eftir en að draga tjaldið frá! Við
skorum á bæjarbúa að bregða
undir sig betri fætinum og skella
sér á skemmtilega sýningu í leik-
húsinu sem er stolt okkar allra.
Mamma Þín! er leikrit um
okkur öll, leikrit um Keflavík,
leikrit um Island, leikrit um al-
heiminn. Mamma Þín! er sýn-
ing sem enginn sannur suður-
nesjamaður ætti að láta fram hjá
sér fara.
Troðfullt var á fyrstu tvær sýn-
ingarnar og hefur sýningin
hlotið frábærar viðtökur þeirra
sem hafa lagt leið sína í leik-
húsið. Komið í leikhús og þá
sannfærist þið um að Keflavík
- Island - Alheimurinn eða
Mamma Þín! er sjón sem er
sögu ríkari. Sjáumst í Frumleik-
húsinu.
Miðapantanir eru í síma 421-
2540 frá kl.18:00 á sýningar-
dögum, eða í símsvara 684-4009
aðra daga.. Næstu sýningar eru:
3. sýning föstudaginn 24.mars
kl.20:00
4. sýning laugardaginn 25.mars
kl.20:00
5. sýning sunnudaginn 26.mars
kl.20:00
Einnig er hægt að nálgast upp-
lýsingar á vef leikfélagsins www.
Ik.is.
Haföu samband vfö okkur!
Átt þú rétt á bílaleigubíl
vegna tryggingatjóns?
Álfatjöm, Njarðvík
Glæsilegt 194m2 einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Húsið er í byggingu og afhendist fullbúið að utan með grófjaf-
naðri lóð og búið verður að skipta um jarðveg undir bílastæði. Að
innan afhendist húsið rúmlega fokhelt. Húsið er teiknað af Pálmari
Kristmundssyni arkitekt. Nánari uppl. á skrifstofu
Lækjarmót 17, Sandgerði
Tæplega 137m2, fimm herb.
nýtt parhús ásamt 28m2 innbyg-
gðum bílskúr. Húsið mun skilast
fullklárað að utan sem innan,
hellulögð stétt og tyrfð lóð.
Fasteignasalan Stuðlaberg
kynnir glæsileg 160m2 steypt
parhús við Þrastartjörn í
Tjamarhverfi, eignimar skilast
fullbúnar að utan og fokheld
að innan.
Smaratun 46, Keflavik
Um 115m2, 4 herb. neðri hæð
í tvíbýli ásamt 43m2 bílskúr.
Snyrtileg og góð
eign. sérinngangur.
Holabraut 16,
Góð 4 herb. íbúð á efri hæð í
tvíbýli með sérinngang ásamt
33m2 bílskúr. Eignin er mikið
endurnýjuð t.d. flestir gluggar,
skolp og vatnslagnir.
STUÐLABERG
FASTEIGNASALA
Guðlaugur H. Guðlaugsson löggiltur fasteigna- og skipasali
Sölumenn: Halldór Magnússon og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Hafnargötu 29,2. hæð, Keflavík • Sími 420 4000 • fax 420 4009 • studlaberg.is
Svölutjöm 1-11, Njarðvík
Glæsileg 171m2 raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsin em í byggingu og afhendast
fullbúin að utan með tyrftri lóð og hellulagðu plani. Að innan afhendast húsin fokheld.
Húsin em teiknuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt.
Fífumói 11, Njarðvik
Góð 99m2, 3 herb. íbúð á 1.
hæð í fjórbýli með sérinngangi.
Fallegar eikar innréttingar,
hurðar og skápar. Parket og
flísar em á gólfum og hita.
Hjallvegur 5, Njarðvík
Um 82m2, 3 herb. íbúð á 3. hæð
í fjölbýli. Tvö rúmgóð herbergi
með parketi á gólfi, stofa með
parketi á gólfi.Björt og góð íbúð.
10.900.000,-
ixcivjaiuui U7-/ i, jauu^ciui
Glæsilegt 156m2 parhús í byg-
gingu með innbyggðum bílskúr.
Eignin skilast fullbúin að utan
með tyrfðri lóð og steyptu plani,
fokheld að innan.
Afhending 1. ágúst.
Klapparstígur 9, Njarðvík
Um 79m2, 3 herb. íbúð á 1.
hæð í tvíbýli. Húsið er klætt
að utan með bámjámi, búið er
að endurnýja neyslulagnir og
ofnalagnir.
Heiðarból 8, Keflavík
3 herb. íbúð á 2. hæð. Parket og
flísar em á gólfum. Baðherbergi
er flísalegt bæði gólf og veggir og
baðkar með sturtu. íbúðin getur
verið laus fljótlega.
Hringbraut 72, Keflvík
Um 72m2 íbúð á 1. hæð í fjölbýli.
Parket á gólfi í stofu, eldhúsi og
herb., möguleiki er að útbúa
annað herb.
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABlAÐiÐ Á SUÐURNESJUM
VIKURFRÉTTIR : FIMMTUDAGURINN23.MARS2006 39