Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.2006, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 06.04.2006, Blaðsíða 18
Óskum eftir að ráða bílstjóra með meirapróf og starfsmann í mulningsdeild með vinnuvélaréttindi. Upplýsingar í síma 660 7 725 og 660 7 700. ^ SEES SB VERKTAKAR PÓST&KASSINN Steinþór Jónsson skrifar: Sterk staða Reykjanesbæjar Rekstarafgangur bæjarsjóðs og samstæðu langt fram úr áætlun rátt fyrir mestu fram- kvæmdir í sögu Reykja- nesbæjar er hagnaður ársins 2005 talinn í hund- ruðum milljónum króna á síð- asti ári og er sérstök ástæða að fagna þeirri niðurstöðu. Sam kvæmt rekstrarreikn- ingi Reykja- nesbæjar fyrir árið 2005 er hagnaður sam- stæðu 384 milljónir króna eða á annað hundrað milljónum hærri en áætlun gerði ráð fyrir en um- snúningur frá fyrra ári er 595 milljónir króna. Þá er bæjar- sjóður rekinn með rúmlega 87 milljóna króna hagnaði sem er átta sinnum hærra en áætlun sama árs gerði ráð fyrir. Ábend- ingar um mikla bjartsýni í áætl- unargerð meirihlutans á síðasta ári voru því sannarlega óþarfar og í engum takti við raunveru- leikann. Fasteignaskattar lægstir í Reykjanesbæ Á sama tíma og þessi frábæra niðurstaða er staðfest í ársreikn- ingum Reykjanesbæjar berast fréttir um nýlega útreikninga frá ASÍ þar sem tekjur af fast- eignasköttum á hvern íbúa eru lægstar í Reykjanesbæ saman- borið við átta stærstu sveitar- félögin árin 2003-2006. Þetta þýðir að íbúar í Reykjanesbæ greiða lægri fasteignaskatta í krónum talið en fólk í saman- burðarsveitarfélögum og svo verður áfram. Þá er Reykjanes- bær í 1. til 3. sæti hvað varðar lægstan kostnað á hefðbundna fjölskyldugerð og stendur því vel að vígi í því sambandi. Þá er lóðarverð hér með lægsta móti og aðeins lítið brot af því sem höfuðborgarbúar þurfa að greiða. Útsvarsprósenta sveitar- félagsins er aðeins 12,7% sem er vel undir meðallagi og lægri en hjá flestum sveitarfélögum sem við berum okkur jafnan saman við. Á sama tíma erum við eina sveitarfélagið sem bjóðum frítt í strætó fyrir alla bæjarbúa og frían aðgang í sund fyrir öll börn til 15 ára aldurs. Fjölgun sundlaugargesta hefur eðlilega margfaldast síðustu mánuði og er það vel. Líklegt er að sú fjölgun aukist enn meir þegar glæsileg innisundlaug og fjölskyldugarður opnar síðar í þessum mánuði en sú fram- kvæmd er ein af þeim fjölmörgu sem lokið er við á þessu kjör- tímabili. Einnig eru skólamál- tíðir í grunnskólum bæjarins niðurgreiddar af stórum hluta þannig að verð til nemanda er með því lægsta sem þekkist hér- lendis. í upphafi kjörtímabilsins voru fjárfestingar við endurgerð Hafnargötu að mestu teknar inn í rekstarreikning bæjarfélagsins og greiðslur vegna endurreikn- ings lífeyrirskuldbindinga sömu- leiðis. I dag eru lífeyrisskuld- bindingar reiknaðar inn í áætl- anir bæjarfélagsins og því minni hætta á að áætlanir raskist eða að vanmat gjalda til fjölda ára gefi ranga mynd af raunveru- legri niðurstöðu ársreikninga. Rekstur sveitarfélaga á það sam- eiginlegt við rekstur fyrirtækja að stundum þarf að fjárfesta til að ná auknum tekjum. Sú með- vitaða ávörðun meirihlutans að leggja til aukið fjármagn í upp- hafi kjörtímabils til umhverfis- mála, uppbyggingar í atvinnu- málum og með auknu framboði lóða er því þegar farin að skila þeim góða árangri sem við reikn- uðum með á næstu árum. Uppbygging síðustu ára og eiginfjárhlutfall Öllum er ljóst að uppbygging síð- ustu ára hefur kostað mikla fjár- muni enda hafa framkvæmdir á vegum bæjarfélagsins og einka- aðila aldrei verið meiri. Engu að síður er eiginfjárhlutfall okkar hjá bæjarsjóði Reykjanesbæjar hærra nú en í árslok 2002 eða rúmlega 42% í stað 40%. Þá er eiginfjárhlutfall samstæðunnar 29% en var í árslok 2002 tæp- lega 27%. Er þessi niðurstaða at- hyglisverð í ljósi umræðu um að bæjarfélagið hafi selt allar sínar eignir. Hvar og hvernig skyldi sú fullyrðing hafði orðið til? Hverjum þú treystir best til að ráðstafa skattpeningum þínum, auka atvinnutækifæri og móta samfélagið til framtíðar er þitt að ákveða. Sú ákvörðun skiptir miklu máli. Við Sjálfstæðis- menn erum reiðubúnir að vinna áfram á sömu braut, okkar sam- félagi til framdráttar. Steinþór Jónsson bœjarfulltrúi og frambjóðandi Sjálfstœðisflokksins í komandi bœjarstjórnarkosningum ATVINNA Störf hjá IGS 2006 Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf (IGS) leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf í Fraktmiðstöð. Aldurstakmark er 19 ára, vinnuvélaréttindi eru æskileg, tölvukunnátta, almenn ökuréttindi og enskukunnátta. Boðið verður upp á sætaferðir frá fyrirfram ákveðnum stöðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Vogum og Grindavík. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Flugþjónustunnar Keflavíkurflugvelli ehf., 2. hæð í Frakmiðstöð IGS, bygging 11, 235 Keflavíkurflugvelli. Einnig er hægt að sækja um störf á vefsíðu IGS, www.igs.is. 18 IVÍKURFRÉTTIR I 14. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.