Víkurfréttir - 06.04.2006, Blaðsíða 16
Fyrstu skóflustungurnar að Orkuveri 6 í Svartsengi voru teknar s.l. föstudag á aðalfundi Hitaveitu Suðurnesja
Eyjólfsson, kerfisstjóri, Þórður Andrésson, stöðvarstjóri, Jón M. Vilhelmsson, vaktvélafræðingur, Thor Sverrissi
son, vaktvélafræðingur og Bjarni Már Jónsson, vaktvélafræðingur. Að skóflustungunum loknum var haldið út;
kvæmdir voru skoðaðar.
Aðalfundur Hitaveitu Suðurnesja hf.:
Fjölmenni var á morg-
unverðarfundi Glitnis
á Ránni í síðustu viku.
Þar stigu á stokk þau Ingólfur
Bender, forstöðumaður
greinigardeildar Glitnis, og
Aðalheiður Héðinsdóttir, for-
stjóri Kaffitárs.
í máli sínu fór Ingólfur yfir
stöðu íslenska hagkerfisins og
horfurnar framundan. Yfirskrift
framsögu hans var; „Er veislan
rétt að byrja eða er henni að
ljúka?“
Þar vísaði hann til hins mikla
uppvaxtar sem hefur verið í ís-
lensku hagkerfi undanfarin miss-
eri, en hagvöxtur á íslandi hefur
verið tvöfaldur á við það sem
gerist í OECD ríkjunum.
Niðurstaða hans var sú að veisl-
unni sé að ljúka en engu að
síður sé bjart framundan. Við
stefnum nú inn í stöðnunar-
tíma sem sé nauðsynlegur til að
vinda ofan af spennu og þenslu
sem hefur einkennt hagkerfið.
Við það skapist jafnvægi fyrir
næsta uppskot.
Að mati greiningardeildar-
innar verður hagvöxtur á næsta
ári tæplega 1%. Krónan mun
þá styrkjast aftur eftir að hafa
fallið um 15% frá áramótum og
mun halda því áfram til 2008
eða 2009. Búast má við auk-
inni verðbólgu, eða um 6%, en
verðbólgan mun þó hjaðna á
árunum 2008 og 2009.
Veislunni er þvi lokið í bili, en
engu að síður er ástæða til bjart-
sýni að mati Ingólfs þar sem
hagvaxtarhorfur séu góðar og
ekkert því til fyrirstöðu að fjörið
hefjist á ný innan fárra ára. Is-
land er nú í 6. sæti yfir þau lönd
sem hafa hæstar þjóðartekjur á
mann og segir Ingólfur að raun-
hæft sé að vonast til að ísland
verði komið í 4. sæti eftir 10 ár.
í framsögu Aðalheiðar fór hún
yfir stöðuna hjá Kaffitári sem
hefur verið í stöðugum vexti frá
stofnun árið 1990.
Fyrir um ári síðan var skipuð
stjórn fyrirtækisins en þar sitja
Hildur Petersen, formaður,
Dagný Halldórsdóttir varafor-
maður, Árni Tómasson, ritari,
Ólafur Kjartansson og Eiríkur
Hilmarsson. Á því ári sem síðan
er liðið hefur fyrirtækið náð
öllum þeim markmiðum sem
stjórnin setti sér og er ætlun
þeirra að vera sífellt í farar-
broddi. Til þess þarf að skerpa
áherslur og aðgreina sig frá
öðrum.
Með það að markmiði er komin
í gang vinna við að endurnýja
ímynd fyrirtækisins og eru uppi
hugmyndir um að stækka hús-
næði fyrirtækisins á Stapabraut
um heiming á næstunni. Aðal-
heiður sagði að sköpunarkraftur
sé það sem knýji fyrirtækið
áfram hvort sem þjóðarbúið sé
með veislu eða ekki og víst er að
framtíðin er björt hjá Kaffitári.
I lok fundar voru allir gestir
leystir út með dýrindis tertum í
boði Glitnis.
Fjölmenni á fróð-
legum morgunverð-
arfundi Glitnis
Sala á heitu vatn og raforku til VL
hefur dregist verulega saman
Sala á heitu vatni til Varnarliðsins hefur
dregist verulega saman á undanförnum
árum, eða frá því að vera hátt í 17 þúsund
mínútulítrar á ári árið 1993 niður í rúma 11
þúsund mínútulítra á síðasta ári. Að sögn Júlí-
usar Jónssonar, forstjóra Hitaveitu Suðurnesja,
mildar þessi samdráttur að einhverju leiti þær
búsifjar sem HS verður fyrir við brotthvarf Varn-
arliðsins en eins og VF hefur greint frá þá hefur
VL sagt upp samningi við Varnarliðið um kaup
á heitu vatni. Þá hefur sala á raforku til VL
einnig dregist verulega saman.
Þrátt fyrir þennan samdrátt er VL stærsti einstaki
viðskiptavinur Hitaveitu Suðurnesja. Fram hefur
komið að í samningi þeim sem í gildi er á milli
VL og HS, eru ákvæði þess efnis að ekki sé hægt
að segja honum upp fyrirvaralaust. Forsvarsmenn
HS segja að í samningnum séu skýr ákvæði sem
kveði á um að VL geti einungis dregið úr vatns-
notkun um 4% á ári. Það sé því skoðun HS að
VL verði í raun að semja sig frá samningnum.
1 bréfi sem barst frá Norfolk fyrir helgi er samn-
ingnum sagt upp með 180 daga fyrirvara, sem sé í
samræmi við ákvæði í upphaflega samningum frá
1980. Júlíus Jónsson segir að síðan þá hafi verið
gerðar 63 breytingar á samningnum.
Hitaveitan hefur svarað bréfinu frá Norfolk og
óskað eftir samningafundi um málið, þar sem ein-
föld tilkynning af þessum toga sé ófullnægjandi
miðað við gildandi samning.
Hvað raforkusöluna varðar, þá hefur hún einnig
dregist verulega saman. Árið 1992 var VL að
kaupa rúmlega 75 þúsund gígawattstundir en í
fyrra var hún innan við 60 þúsund.
HAGNAÐUR A SIÐASTA ARI
TÆPUR 1,6 NIILLJARDUR
Hagnaður síðasta árs
hjá Hitaveitu Suður-
nesja nam tæpum 1,6
milljarði sem er aukning upp
á tæpar 700 milljónir frá árinu
2004 þegar hagnaðurinn nam
tæpum 900 milljónum.
Samkvæmt rekstrarreikningi
sem kynntur var á aðalfundi HS
fyrir helgi, námu rekstrartekjur
HS tæpum 4,7 milljörðum.
Eignir félagsins eru upp á tæpa
25 milljarða og er eigið fé upp
á 13,8 milljarða, sem er 56% af
heildarfjármagni.
Aðalfundur HS samþykkti að á
árinu 2006 yrði greiddur 420
milljón kr arður til hluthafa.
Heildartekjur HS á þessu ári eru
áætlaðar ríflega 5,7 milljarðar,
samkvæmt fjárhagsáætlun og er
reiknað með að hagnaður verði
á bilinu 12 - 12,5 milljarðar.
16 I VfKURFRÉTTIR 14. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGAISIGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!