Víkurfréttir - 06.04.2006, Blaðsíða 13
Samdráttur í sorpeyðingu
með brotthvarfi hersins
Nokkur samdráttur
verður á starfsemi
Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja með brotthvarfi
Bandaríkjahers frá Miðnes-
heiði. Með þessu sést enn einn
þátturinn sem brotthvarf hers-
ins hefur bein áhrif á, en á
síðasta ári skilaði Varnarliðið
um 3000 tonnum til vinnslu í
SS. Til samanburðar má geta
þess að tekið er við um 18.000
tonnum á ársgrundvelli.
Guðjón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri sorpeyðingar-
stöðvarinnar, sagði í samtali við
Víkurfréttir að þó að erfitt væri
að missa stóran viðskiptavin
væri hann ekki áhyggjufullur
yflr framtíðinni.
„Varnarliðið greiddi okkur ein-
greiðslu eftir síðustu samninga
vegna þess að þeir vildu ekki
semja við okkur til langs tíma
og verður tekjutapið þess vegna
ekki eins mikið. Sorp frá Vell-
inum hefur líka verið að minnka
mikið undanfarin ár og er þetta
þess vegna ekki eins mikið áfall
fyrir okkur. Á móti því kemur
að síðustu ár hafa umsvif við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar stór-
aukist auk þess sem íbúum á
svæðinu íjölgar stöðugt.“
Einnig má þess geta að minna
sorp verður flutt frá SS eftir
brotthvarf Bandaríkjamanna,
en þaðan fer bæði endurvinnan-
legt sorp og brennanlegt sorp
sem brennslustöðin nær ekki að
anna. Endurvinnanlegt sorp er
þó í meirihluta.
Óska eftir vönum vélamönnum og
verkamönnum íjarövinnu,
mikil vinna framundan.
Upplýsingar í síma 824 1060.
A. PÁLSSON
Sími 824 1060
Hefopnað
skrifstofu að Hólmgarði 2 í Keflavík
► Ársreikningar
* Færsla bókhalds
► Launavinnsla
• Skattframtöl einstaklinga
► Skattframtöl fyrirtækja
► Stofnun fyrirtækja
• Rekstraráætlanir
* Viðskiptaáætlanir
VIÐSKIPTALAU SNIR SF.
Jón P. Jóhannsson viðskiptafræðingur
Hólmgarði 2
Sími 420 9000
E
GARjPtUR
Gangstettir oggo
í Garði 2006
Garður kynnir hér fyrirhugaðar framkvæmdir á árinu.
Malbikaðar verða Borgartún, Sóltún, Ártún,
Bjarkartún og Birkitún.
Klæddar verða götur og heimkeyrslur í Útgarði að lóðarmörkum.
Yfirlitsmynd af framkvæmdinni er til sýnis á skrifstofu Garðs og
eru íbúar hvattir til að kynna sér uppdráttinn fyrir 6. maí 2006.
Bæjarbúar geta samið við verktaka vilji
þeirmalbika innkeyrslu innan lóðarhjá sér.
Bæjarstjóri
Skilafrestur auglýsinga til kl. 17 á mánudag! Síminn er4210000
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIKURFRETTIR I FIMMTUDAGURINN 6. APRÍL 20061 1B