Víkurfréttir - 05.10.2006, Blaðsíða 9
Róbert Marshall tilkynnir framboð hjá Samfylkingunni í Suðurkjördæmi:
Róbert Marshall býður sig fram til forystu
Róbert Marshall, fyrrver
andi fréttamaður og
forstöðumaður NFS,
hefur tilkynnt um þátttöku
sína í prófkjöri Samfylkingar-
innar í suðurkjördæmi
sem fram fer þann 4.
nóvember. Hann
segist í samtali
við Víkurfréttir
telja bakgrunn
sinn sem lands-
byggðarmann
geta nýst suður-
nesjamönnum
vel á þingi.
„Ég er eyjamaður
sem hefur búið í
Reykjavík
14 ár en ávallt haldið góðum
tengslum við mína heimabyggð
enda Qölskylda mín þar. Ég
hef því þekkingu og reynslu af
málefnum sveitafélaganna á suð-
urnesjum. Sjálfur unnið í fiski,
í netagerð og verið á sjó.“
Hvað finnstþér brýn-
ast að ráðast í hér
á suðurnesjum?
„Skjóta uppbyggingu
í atvinnumálum eftir
nýlegt áfall. Ég tel
einsýnt að stjórnvöld
hafi brugðist þegar
brotthvarf hersins er
annars vegar. Það virðast
allir á landinu hafa
vitað það í
15 ár að
herinn
væri á
förum
og að
nauð-
synlegt
væri að
undirbúa
H viðbrögð
vegna
MM þess,
m nema
■ stjórnvöld.
f Þau föttuðu
þetta seint og
illa, eiginlega bara nú í sumar.
Þetta sýnir ábyrgðarleysi."
En hvað er rétt að
gera í stöðunni?
„Nýta möguleika bæjarfélagana
enn frekar hvað varðar uppbygg-
ingu á Leifstöð, reyna að draga
sem mest af ferðamönnum
til þeirra bæjarfélaga sem hér
eru. Það er gífurleg aukning á
komu erlendra ferðamanna um
völlinn og það eru sóknarfæri
víðar en í Bláa Lóninu þó upp-
bygging þar sé aðdáunarverð.
Ég tel nauðsynlegt að byggja
upp léttan iðnað í Helguvík
en vara við álveri þar.“
Hver vegna?
„Ég tel það of nálægt bænum.
Það er mengandi iðnaður en
öfugt við loðnuverksmiðjuna
í Helguvík sem flestir íbúar
í norðurbæ Keflavíkur hafa
fundið lyktina af í vissum
vindáttum, þá yrðu íbúar ekki
jafnmikið varir við mengun frá
Álveri. Samt yrði hún til staðar.
Hún er meira heilsuspillandi
en peningalyktin og menn
væru að búa til vandamál. Hafn-
firðingar þekkja þessa sögu
og ég vara við þeirri slóð.“
Hver eru meginstefnumálþín?
„Umhverfisvernd, stórbættar
samgöngur á Suðurlandi,
uppbyggingu atvinnulífs,
jafnréttismál og vernd
borgaralegra réttinda.“
Nú ertu að bjóða þigfram gegn
sitjandi þingmönnum, hvaða
möguleika áttugegn þeim?
„Ég lít ekki svo á að ég sé að
bjóða mig fram gegn þeim.
Ég er bara að bjóða mig fram.
Ef það er gegn einhverjum
þá er það gegn Árnunum
Mathiesen og Johnsen. Mar-
grét Frímannsdóttir hverfur af
vettvangi eftir áralangt farsælt
starf sem öflugur leiðtogi.
Það skarð er vandfyllt en ég
býð mig fram í l.til 2. sæti.
Það er svo fólkið sem velur.“
Þetta er nýr vettvangur
fyrirþig. Kanntu á hann?
„Ég starfaði í pólitík áður en
ég gerðist fréttamaður. Var
formaður ungra Alþýðubanda-
lagsmanna og barðist fyrir
sameiningu vinstri manna sem
slíkur. Tók því virkan þátt í að
búa til Samfylkinguna. Þar að
auki hef ég mikið fjallað um
stjórnmál í mínum störfum
og jafnframt því fengist við
stjórnun stéttarfélags og stórs
vinnustaðar. Ég kann þetta.“
Silver Cross til sölu
Grænn Silver Cross
barnavagn til sölu.
Verð kr. 35.000.-
Upplýsingar í
síma 861 2483.
Opnmarbátíð
tplctinn /í - 7 nhtnhav
Húsid opnar hl- 22:00
t<4
Föstudagshvöld
Vr. Mr. dentleman og Dj Qorbathov
með Dj Session ásamt
Tveim leihmönnum
Miðaverð hr. 1.800,-
Laugardagsbvöld
Dj Eyvi
Klúbbahvöld
Miðaverð hr. 1000,-
• \ • \ LoimiiV Ú ÓVdTtl ihíWOm
K ÍltÍÖ VlÖ / PQO HBltHÍT M l/t/ UVEENTEbTAtNMENT y
STÆRSTA FRÉTTA- 0G AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Grófin 8 • Sími 421 7240
VÍKURFRÉTTIR i FIMMTUDAGURINN 5. OKTÓBER 20061 9