Víkurfréttir - 05.10.2006, Blaðsíða 14
Keflvíkivjgar gerðu snemma atlögu að KRrinarlcínu dg
ljóst að þeir höfðu fundið fjöliná að nýju e!ft|i dapran
lokasprett t Landsbankadeildinni. Á 21. mínutu leiks-
ins áttu,:Ke|lvíkingar hornspyrnu, boltinn kom fyrir
marlúð, Þórarinn Kristjánsson skallaði boltann dýpra
inn í teiginn og fann þar kollinn á Guðjóni Árna sem
áframsendi knöttinn í netið og kom Keflvíkingum í
1-0. Sókn Keflavjkur hélt áfram og á 30. mínútu kotn
annáðíbátt'k leiksms. Boltinn barst þá aftur inn í teig
og áframsendi Guðjón Árni boltann á Baldur Sigurðs-
son sem þrumaði laiettinum upp í þaknetið og fagn-
aði afjmiklum ákafa. Htí^fámalegur dagur hjá hægri
bakverðinum Guðjóni Árna, mark og stoðsending.
Á tíma virtist aðeins eitt lið vera inni á vellinum, svo
mikil var yfirferð Keflavíkur að KR sá vart til sólar í
leiknum og þegar dómari leiksins flautaði til leiksloka
stóð ekki á fagnaðarlátunum.
•k leiksins. Boltinn barst þá aftur inn í teig
[stóðviðlöförðið;
I Þórarinn Kristjánsson stóð við geflð ■
■ loforð og gott betur. Þórarinn hét >
. því að henda takkaskónum sínum .
: upp í stúku til áhorfenda en hann J
1 kom reyndar með tvenn skópör í leik- 1
1 inn gegn KR. Þegar flautað var til *
I leiksloka gaf Þórarinn bæði skópörin I
I frá sér við mikinn fögnuð þeirra sem I
I skóna hlutu. I
| Alls eru það þrenn skópör sem Þór- |
I arinn hefur gefið frá sér en hann lék |
I þennan leik fyrst árið 2004 gegn KA ■
■ þegar Keflavík varð bikarmeistari. .
. „Leikurinn á laugardag var mjög svip-
J aður leiknum gegn KA, í báðum leikj- 1
1 unum komust við í 2-0 í fyrri hálfleik *
• og botninn datt úr leik þessara liða I
I þegar þau þurftu að fara að sækja,“ I
I sagði Þórarinn sem fór í speglun á hné I
| á þriðjudag. „Hnéð var búið að angra |
| mig síðan í apríl en í spegluninni kom |
I i ljós að það hefur átt sér stað brjóskeyð- ■
■ ing og því er staðan aðeins verri en ég >
■ taldi,“ sagði Þórarinn en sagðist myndu .
vera dulegur í lyftingasalnum í vetur og
J koma sterkur inn á næstu leiktíð. „Ef 1
1 við höldum sama hóp og nú, bætum að- 1
• eins við okkur, þá gætum við stefnt á ís- I
I landsmeistaratitilinn á næstu leiktíð.”“ I
L________________
Fjórði bikarmeistaratitill Keflavikur kom í hús
sl. laugardag þegar Keflavík kafsigldi KR 2-0
ú Laugardalsvelli. Allar aðstæður vprii hinar
bestu á leiknum, Pumasveitin í feiknafjöri, fjöl-
margir áhorfendur og klassabolti frá Keflvíkingunt
gerðu daginn ógleymanlegan. Baldur Sigurðsson og:
Guðjón Árni Antoníusson gerðu mörk leiksins en
þau hefðu hæglega getað verið fleiri miðað við yfir-
burði Keflavíkur.
Bakvörðurinn Guðjón
Árni Antoníusson fór
mikinn í bikarúrslita-
leiknum en hann gerði fyrsta
mark Keflavíkur og lagði upp
annað markið með stoðsend-
ingu á Baldur Sigurðsson.
Markið var fyrsta bikarmark
Guðjóns og gat ekki komið á
betri tíma.
„Það var magnað að vinna
bikarinn og ekki leiðinlegt að
skora í leiknum,“ sagði Guð-
jón sem gæti vel hugsað sér að
fara framar á völlinn í framtíð-
inni. „1 yngri flokkunum var ég
alltaf á miðjunni og fór annað
slagið fram en ég kann ágæt-
lega við mig í bakverðinum og
við erum vel mannaðir framar-
lega á vellinum. Þegar maður
er bakvörður þá má maður
sækja annað slagið og þá er
sætt að skora," sagði Guðjón.
Eftir því sem leið á tímabilið
fækkaði í leikmannahóp Kefla-
víkur, erlendir leikmenn voru
sendir heim í kippum og hóp-
urinn þynntist verulega. Engu
að síður voru Keflvíkingar að
leika besta boltann á landinu
um tíma í sumar en Guðjón við-
urkenndi að bæta þyrfti við hóp-
inn fyrir næstu leiktíð ásamt því
að halda sama mannskap. „Við
lendum oft í því að fylla skörð
lykilmanna sem fara frá okkur
og það hefur riðlað uppbygging-
unni hjá okkur. Nú þurfum við
að tileinka okkur meiri stöðug-
leika sem lið,” sagði Guðjón sem
sjálfur myndi þó ekki slá hend-
inni á móti atvinnumennsku.
„Hugurinn stefnir reyndar svo-
lítið út, hvort sem það er í at-
vinnumennsku eða stunda knatt-
spyrnuna með námi, að öðrum
kosti er það bara Keflavík sem
kemur til greina hjá mér,“ sagði
Guðjón bikarhetja Keflavíkur.
VIKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is* LESTU NÝJA5TA SPORTIÐ DAGLEGA!