Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.2006, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 14.12.2006, Blaðsíða 12
á fimm mánuóum Viðlal: Iwgils lónsson - Ljósmynd og myndvinnsla: Ellcrl Grétarsson Þrjár vinkonur úr Sandgerði hafa ákveðið að láta áralangan draum ræt- ast og eru á leið í ferðalag þar sern þær niunu fara hringinn i kringum heini- inn á finnn mánuðum. Þær Guðbjörg Reynisdóttir, Thelnta Iiögg Þorvaldsdóttir og Bergey Arna Sigurðardóttir eru 21 árs ganilar og hafa verið vinkonur frá blautu barns- beini. Allt frá því í grunnskóla hefur þær dreyint um að leggja land undir fót og ferðast urn ókunn lönd, en það var ekki fyrr en í suinar sem Thelrna og Bergey fóru að undirbúa förina. Guðbjörg ákvað svo fyrir tveimur mán- tiðum að slá til enda gefast slík tækifæri ekki á hverjum degi. í samtali við Víkurfréttir sagði Guð- björg að tímasetningin nú væri heppi- leg til að halda í þetta mikla ævintýri. „Eg er að klára skólann núna í desem- ber og stelpurnar voru búnar að klára áðtir. Svo erum við ekki með kærasta en þaö yrði örugglega mjög erfitt að fara burt í fintm mánuði. Þannig má segja að allar aðstæður bjóði upp á að fara í ferðina núna.” Ferðin hefst 6. janúar þegar þær fljúga út til Danmerkur en þaðan liggur leið þeirra til Bandaríkjanna þar sem þær verða í uin 3 vikur og koma m.a. við í Los Angeles og San Fransisco. Eftir það er flogið til Fijieyja og þaðan til Nýja Sjálands og Ástralín en þar verða þær í uni einn og hálfan mánuð. Með vorinu verða þær koninar til Asíu og staldra við í Singapúr, Tælandi og jafnvel víðar á tveggja mánaða yfirferð áður en stefnan er tekin áftur á Evrópu en þær koma til Kaupniannahafnar i lok maí i gegnum Finnland. Aðspurð sagði Guðbjörg að margir staðir á leiðinni heilluðu, en hún væri sérlega spennt fyrir að sjá Ástralíu, en hinas stelpurnar tvær hlökkuðu sér- staklega til að koma til Tælands. „Það verður annars alltaf eitthvað nýtt sem niaður finnur á hverjum stað á fram- andi slóðum sem maður sér ekki á hverjum degi.” Þrátt fyrir tilhlökkunina segir Guð- björg að ferðin muni örugglega taka á. „Við erum búnar að gera okkur grein fyrir því að þetta verður erfitt og við verðum örugglega með heimþrá dauð- ans, en við erum búnar að vera vin- konur svo lengi að við erum í raun eins og fjölskylda svo það verður vonandi ekki eins erfitt.” Þær segja stressið ekki enn farið að hreiðra um sig eftir því sem styttist í brottför, en undirbúningurinn hefur verið langur með tilheyrandi vegabréfa- áritunum og bólusetningarsprautum. Þó tilgangur ferðarinnar sé auðvitað fyrst og fremst að skcmmta sér og upp- lifa nýja hluti með góðum vinum segir Guðbjörg að hún sé viss um að margt megi læra af slíku ferðalagi. „Það er nefnilega málið að engin okkar veit nákvæmlega hvað við ætlum að gera þegar við konium heim en upp- lifunin í ferðinni opnar kannski fyrir okkur ný sjónarmið og kannski vitum við meira um hvað við viljum gera við lífið eftir það. Svo lærum við líka ef- laust að vera sjálfstæðari eftir að hafa þurft að sjá algerlega um okkur sjálfar á ferð uni heiminn.” Áhugasamir geta fylgst með þeim stöllum á ferð þeirra uni heiminn á vefsíðu þeirra, ivww. 123.is/utiblainn þar sem verður að finna dagbók og myndir frá ferðalaginu. Þá verða þær verða einnig með reglulega pistla á vef- síðu Víkurfrétta, www.vf.is. 12 VIKURFRÉTTIR í 50. TÖLUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 I 27. ÁRCANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.