Víkurfréttir - 14.12.2006, Blaðsíða 26
DAGNÝ GlSLADÓTTIR SKRIFAR BÓK UM BRUNANN f SKILDI FYRIR RÚMUM 70 ÁRUM
Skjöldur árið 1920.
Mynd: Byggðasafn Roykjanesbæjar
þekkja
Bruninn í Skildi árið 1935 er viðfangsefni Dag-
nýjar Gísladóttur í bók sem hún er að skrifa
og stefnir á að gefa út á komandi ári. Hinn
sorglegi atburður þegar þegar eldur varð Iaus í sam-
komuhúsi ungmennafélagsins á jóladansleik fyrir 70
árum, kostaði níu mannslíf og fjölmargir hlutu alvar-
leg brunasár.
Dagný starfar sem kynningarstjóri hjá Reykjanesbæ
og skrifar bókina í tómstundum sínum. Bókina byggir
hún upp á frásögnum fólks sem upplifði harmleikinn
þennan örlagaríka dag. Dagný segir sögulegan áhuga og
skyldurækni til að varðveita söguna hafa rekið hana til
hefja ritun bókarinnar.
Atburður sem tengist mörgum
„Þessi atburður hefur alltaf verið mér hugleikinn. Mér
hefur líka fundist vera lítið til um þennan atburð á blaði
og kynslóðir sem síðar komu því ekki mikið vitað um
hann. Það fólk sem var á barnsaldri á þessum tíma er í
dag orðið aldrað, margir eru ekki lengur á meðal okkar
og þeim fer því fækkandi sem eru til frásagnar. Það
knúði mig til að skrásetja þennan atburð því mér fxnnst
mikilvægt að við þekkjum sögu okkar hér í bæjarfélag-
inu,“ segir Dagný aðspurð um tiiurð verksins.
Bókina byggir Dagný að mestu upp á samtölum sínum
við þá sem upplifðu atburðinn og biður hún fólk, sem
hún hefur ekki náð tali af, að hafa samband. Einnig
styðst hún við þær heimildir sem til eru um atburðinn.
„Þegar ég fór að leita eftir þessum samtölum varð ég
þess vel áskynja hvað þessi atburður tengist mörgum.
Mjög margir könnuðust við eða tengdust einhverjum
sem voru á þessum jóladansleik fyrir 70 árum. Sem
kann að skýra hvers vegna það hefur ekki mikið verið
talað um þetta. Keflavík var bara lítið þorp á þessum
tíma og því hefur þetta verið ofsalega erfiður atburður
og viðkæmt að fjalla um,“ segir Dagný.
Minningunni verði búin betri umgjörð
Á grunni samkomuhússins Skjaldar stendur nú minnis-
varði um þá sem létust í brunanum. Dagný segist hafa
áhuga á því að búa honum fallegri umgjörð.
„Ef ég sel þessa bók eitthvað að ráði hefði ég áhuga að
að nýta peningana til þess. Mér hefur fundist vanta
fallegri urngörð eða garð í kringum minnisvarðan svo
þessum atburði sé sýnd tilhlýðileg virðing," segir Dagný.
Aðspurð segist hún hafa byrjað að skrifa bókina fyrir
einu ári síðan. „Ég er að skrifa hana meðfram vinnu og
heimili, þannig að þetta tekur sinn tíma. Einnig ákvað
ég að vera ekkert að flýta mér neitt sérstaklega heldur
gefa mér góðan tíma og vanda mig því þetta er vand-
meðfarið og viðkvæmt umfjöllunarefni," segir Dagný.
Bókina ætlar hún að gefa út á næsta ári en ekki er
komin sérstök tímasetning ennþá. Dagný gefur bók-
ina út á eigin vegum og hefur fengið til þess styrki frá
velunnurum en betur má ef duga skal því prentkostn-
aður er hár. Ennþá vantar nokkuð upp á til að mæta
honum.
Bókin er hugsuð sem minningabók og verður fólki
gefinn kostur á að rita nöfn sín í bókina til minningar
um þennan atburð og þá sem fórust. Dagný segir verkið
ekki nijög viðamikið miðað við margt annað en hún
reiknar með að bókin verði um 200 síður.
„Ég lít á þetta sem mitt framlag inn í þennan hluta sög-
unnar. Ég hef alltaf séð þetta fyrir mér sem fyrsta bindi
í ritröð í þeirri von að fleiri myndu taka sig til og fjalla
um sögu þessa svæðis. Við eigum ríka sögu hér á svæð-
inu en höfúm kannski ekki verið nógu dugleg að skrá-
setja hana eða gera aðgengilegri,“ segir Dagný.
IVÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 I 27. ARCANCUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
26