Víkurfréttir - 14.12.2006, Blaðsíða 60
Aþessu hálfa ári sem
liðið er hefur Sif fengið
að upplifa margvísleg
ævintýri og má með sanni
segja að það hafi verið við-
burðaríkur tími.
Fyrsta ferð hennar var til Borg
englanna, Los Angeles þar sem
hún tók þátt í Miss Universe
ásamt fegurðardrottningum víðs
vegar að úr heiminum.
Sif sagðist hafa notið ferðarinnar
þrátt fyrir annríkið. „Það var
mjög gaman og við fengum að
hitta fólk og upplifa hluti sem
maður hefði annars ekki fengið
að gera. Við fórum yfirleitt á
fætur kl. 7 á morgnana og svo
tók við stíf dagskrá. Það voru
fyrst einhverjar uppákomur
eða æfingar og svo fengum
við kannski tvo fría tírna eftir
hádegi en sá tími fór yfirleitt
í að búa okkur undir kvöldið
þar sem var yfirleitt einhver
skemmtun eða kvöldverður og
þar voru aðallega styrktaraðilar
keppninnar."
En var þá enginn tími til að
sóla sig eða fara í búðir?
„Nei, við máttum ekki fara af
hæðinni á hótelinu, ekki einu
sinni niður í lobbý. Ef við gátum
kríað það út að fara til að kaupa
sér blöð eða eitthvað til að lesa
þurftum við að fara með fylgd-
arkonu með okkur, en þetta var
rnikil upplifun og mjög gaman.“
Sif fór alein út í keppnina en
móðir hennar og stjúpfaðir
voru úti síðustu dagana. „Við
fengum samt ekkert að hittast
nema klukkutíma eitt kvöld og
svo korter annað kvöld, fyrir
keppnina. Eftir keppnina gátum
við svo verið aðeins saman áður
en við fórum heim.“
í keppninni sjálfri komst Sif
ekki áfram í tuttugu manna úr-
slit en 87 stúlkur kepptu í keppn-
inni. Hún sagði andann meðal
stúlknanna hafa almennt verið
betri en hún bjóst við.
„Ég var búin að heyra svo mikið
af sögum um að þetta væri svo
mikil keppni að ég var hissa á
því hvað hinar stelpurnar og
fólk í kringum keppnina var
almennilegt yfirhöfuð. Sumar
voru auðvitað þarna til að vinna
og ætluðu sér ekkert annað en
sigur.“ Aðspurð sagði Sif að
keppnisskapið hafi borgað sig
fyrir sumar. „Sú sem vann gerði
allt til að vinna og eins nokkrar
fleiri, en tvær af þeim sem voru
í topp fimm voru mjög fínar
stelpur sem tóku þessu létt.“
Eftir Miss Universe ævintýrið
fékk Sif frí í nokkrar vikur áður
en hún hélt út til Finnlands þar
sem hún keppti í Ungfrú Skand-
inavía og Eystrasalt. Þetta var
í fyrsta skipti sem Eystarasalts-
löndin voru með í keppninni og
fór lokakvöldið fram á skemmti-
ferðaskipi á milli Helsinki og
Tallin þar sem 11 stúlkur keppt-
ust um að hreppa hnossið.
Þar var Sif ekki nema í fimm
daga og sagði að þar hafi verið
allt annar andi en í LA. „Við
vorum fáar og einhvernvegin
var þetta mikið minna stress
Suðurnesin hafa getið af sérfjölmargar fegurðardrottningar sem hafa
náð góðum árangri jafnt hér heima og erlendis. Sú nýjasta í þeim hópi
er Sif Aradóttir sem var sæmd titlinum Ungfrú ísland síðasta sumar
eftir að hafa unnið Fegurðarsamkeppni Suðurnesja.
baki
aö
ar
60 IVÍKURFRETTIR I 50. TÖLUBLAÐ ■ JOLABLAÐIÐ 2006 I 27. ARGANCUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!