Víkurfréttir - 14.12.2006, Blaðsíða 54
Starfsmenn Varnarliðsins
Starfsfólk K. Steinarssonar
sölu- og þjónustuumboðs Heklu
á Suðurnesjum óskar þér
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
með þökk fyrir viðskiptin og samskiptin
á árinu sem er að líða.
E1
HEKLA
Njarðarbraut 13- Fitjum
www.heklakef.is
Nœsta blað fimmtudaginn 21. desember.
Verið tímanlega með auglýsingar!
Rikinu bar ekki
skylda til að gera
starfslokasamninga
Valgerður Sverrisdóttir,
utanríkisráðherra,
segir það ekki hlutverk
Þróunarfélags Keflavíkurflug-
vallar að koma að gerð starfs-
lokasamninga við fyrrverandi
starfsmenn Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Hún segir ríkið eða íslensku rík-
isstjórnina ekki hafa verið vinnu-
veitanda fyrrverandi íslenskra
starfsmanna VL og því hafi
ríkinu ekki borið skylda til að
standa að gerð starfslokasamn-
inga við þá, hvorki fyrr né nú.
Þetta kom fram í svörum
hennar við fyrirspurn Jóns
Gunnarssonar á Alþingi þess
efnis hvort ráðherranum fyndist
koma til greina að Þróunarfé-
lagið kæmi að gerð slíkra starfs-
lokasamninga.
Jón sagði vitað að utanríkis-
ráðuneyti íslenska ríkisins hefði
alltaf í raun borið vinnuveitenda-
ábyrgðina gagnvart starfsmönn-
unum.
„Við þekkjum að þegar varnar-
liðið hefur þverskallast við að
greiða samkvæmt samningum
eða að öðru leyti brotið á
kjörum starfsmanna hefur ut-
anríkisráðuneytinu verið stefnt.
Fjöldi dómsmála vitnar um það
að þegar upp er staðið er það ut-
anríkisráðuneytið eða íslenska
ríkið sem ber ábyrgðina gagn-
vart íslenskum starfsmönnum
varnarliðsins,“ sagði Jón Gunn-
arsson. Þingmennirnar Björgvin
G. Sigurðsson og Magnús Þór
Hafsteinsson tóku undir með
Jóni.
„íslenskir starfsmenn varn-
arliðsins voru ráðnir til starfa
samkvæmt ákvæðum varnar-
samningsins frá árinu 1951.
Varnarliðið var ekki íslensk ríkis-
stofnun og íslenskir starfsmenn
þess töldust ekki til ríkisstarfs-
manna. Þetta vita hv. þingmenn
ákaflega vel,“ sagði Valgerður
Sverrisdóttir.
„Ég held að íslenska ríkið skuldi
þessum starfsmönnum, sem
hafa eytt allri starfsævi sinni
þarna upp frá, sómasamlegri
starfslok en bandaríski herinn
var tilbúinn til að standa að,“
sagði Jón.
Reykjaneshöfn 'Rafícfn Víkurbraut 1, Reykjanesbær, sími 421 1768 Kæliþjónusta Gísla Wium
Teppahreinsun Suðurnesja Iðavöllum 3, sími 421 4143 Tannlæknastofa Kristínar Geirmunds. Hafnargata 45, Keflavík Tannlæknastofa Einars Skólavegi 10, Reykjanesbær, sími4211030
_ Fiskverkun Kristíns Guðmundssonar Básvegi 1, Reykjanesbæ, sími 421 3865 Vélsmiója Sandgerðis Vitatorgi 5, Sandgerði, Sími 4237320
S4 | VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 I 27. ÁRCANGUR
VIKURFRÉTTiR Á NETiNU ♦ www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!