Fréttablaðið - 19.08.2017, Blaðsíða 2
Veður
Minnkandi norðanátt í dag og dálítil
væta norðan heiða, en léttskýjað
sunnanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast
syðst. sjá síðu 46
Kátt í Matarhöllinni á Hlemmi
BORGARVEISLA
BRATISLAVA LISSABON PRAG LJUBLJANA BÚDAPEST VALENCIA
BRATISLAVA LISSABON PRAG
LJUBLJANA BÚDAPEST VALENCIA
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
49.995
m/morgunmat
Salan hefst á mánudaginn!
48 00 00 ÚTKALL!: :
Bandaríkin Steve Bannon, aðalráð-
gjafi Donalds Trump Bandaríkjafor-
seta, mætir ekki til vinnu á morgun.
Fjölmiðlafulltrúi forseta, Sarah
Huckabee Sanders, staðfesti í gær
að gærdagurinn hefði verið síðasti
dagur Bannons í starfi.
„Starfsmannastjórinn John Kelly
og Steve Bannon hafa komist að
þeirri sameiginlegu niðurstöðu að
þetta verði síðasti dagur Steves,“
sagði Sanders í gær og þakkaði
Bannon fyrir störf hans.
Vangaveltur höfðu verið uppi um
framtíð Bannons um nokkurt skeið.
Aðspurður í síðustu viku um fram-
tíð ráðgjafans sagði Trump: „Við
sjáum til.“
BBC greinir frá því að viðtal við
Bannon, sem American Prospect
birti í vikunni, hafi gert forsetann
foxillan. Var þar haft eftir Bannon
að hann hefði vald til að reka starfs-
menn í utanríkisþjónustunni fyrir
að grafa undan stefnu forsetans í
Norður-Kóreudeilunni. – þea
Steve Bannon
vikið úr starfi
Steve Bannon, ráðgjafi forseta.
NordicphotoS/AFp
Bannon barðist fyrir
auknum aðflutningsgjöldum
á vörur frá Kína og var mikill
talsmaður þess að setja
ferðabann á einstaklinga sem
koma frá múslimaríkjum til
Bandaríkjanna.
Eftir langa fæðingu opnar Mathöllin á Hlemmi dyr sínar í dag. Töf varð á opnun hallarinnar þar sem upphaflegar framkvæmdir voru vanmetnar. Versl-
unarmenn á Hlemmi horfa nú til framtíðar en þeir voru í óðaönn að undirbúa fyrir opnun þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði. Innblástur-
inn að Matarhöllinni er sóttur í hinar rómuðu evrópsku mathallir en tíu matarkaupmenn sameinast þar undir einu þaki. FréttABlAðið/ANtoN BriNk
náttúra Hamur karlfuglsins, annars
tveggja síðustu geirfuglanna sem voru
drepnir í Eldey þann 3. júní árið 1844,
er fundinn. Er fuglinn uppstoppaður
í Konunglega belgíska náttúrufræði-
safninu í Brussel. Frá þessu var greint
á vef Náttúruminjasafns Íslands í gær.
Fimmtán vísindamönnum, frá Dan-
mörku, Noregi, Bretlandi, Þýskalandi
og Nýja-Sjálandi, tókst að finna karl-
fuglinn með því að bera saman erfða-
efni úr vélinda karlfuglsins, sem geymt
er í Kaupmannahöfn, við erfðaefni í
fjórum uppsettum hömum á söfnum í
Þýskalandi, Bandaríkjunum og Belgíu.
Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur
hjá Náttúruminjasafninu, segir fund-
inn mikil gleðitíðindi. „Mér finnst
þetta stórfrétt. Að vísu 173 ára gömul
en stórfrétt þó!“
Leitin hefur staðið lengi yfir og bygg-
ist hún á rannsóknum Bretans Erolls
Fuller. Álfheiður segir Fuller einn
þekktasta geirfuglasérfræðing heims.
Þegar síðasta geirfuglsparið var
drepið í Eldey voru fuglarnir ekki
lengur veiddir til átu. Þeir voru heldur
eftirsóttir á meðal safnara. Talið er að
til séu um áttatíu uppstoppaðir geir-
fuglar víðs vegar um heiminn, meðal
annars einn á Íslandi.
Hamir parsins hafa þó verið týndir
afar lengi. Vitað er að hamirnir komu
með innyflunum á náttúrufræðisafnið
í Kaupmannahöfn árið 1844 en þótt
innyflin hafi verið varðveitt á safninu
hurfu hamirnir. Ári síðar voru þeir
skráðir í eigu safnara í Kaupmanna-
höfn en þangað til nú hefur ekkert
spurst til karlfuglsins. Enn bólar ekkert
á kvenfuglinum.
Þó eru vísbendingar um hvar ham
kvenfuglsins sé að finna, þó ekkert
hafi enn fengið staðfest. „Það eru vís-
bendingar um að hún sé í Cincinnati
í Bandaríkjunum. Vísindamennirnir
hafa fengið leyfi til að taka sýni úr þeim
ham. Þeir vonast til þess að þar sé
kvenfuglinn fundinn,“ segir Álfheiður.
Geirfuglinn var af ætt svartfugla og
algengur við norðanvert Atlantshaf, að
því er kemur fram á vef Náttúruminja-
safnsins. Var hann stór og eftirsóttur til
matar.
Í frétt Náttúruminjasafnsins birtist
eftirfarandi lýsing á geirfuglinum, skrif-
uð af Þorvaldi Thoroddsen og upphaf-
lega birt í Lýsingu Íslands árið 1900:
„Geirfugl var algengur við Ísland fyr
á öldum en er nú horfinn og að öllum
líkindum útdauður; seinast var hann í
Geirfuglaskerjum fyrir utan Reykjanes,
en af því fuglinn var eigi fleygur og við-
koman lítil en mikið var drepið eyddist
hann fljótt.“
thorgnyr@frettabladid.is
Síðasti karlkyns
geirfuglinn fundinn
Hamur karlfuglsins sem drepinn var í Eldey fyrir nærri tveimur öldum fannst á
náttúrufræðisafni í Brussel. Álfheiður Ingadóttir segir að um stórfrétt sé að ræða.
Kvenfuglinn er ekki fundinn en vísbendingar eru um að hann sé í Cincinnati.
Síðasti karl-
kyns geir-
fuglinn. MyNd/
koNuNglegA
BelgíSkA Nátt-
úruFræðiSAFNið
Mér finnst þetta
stórfrétt.
Að vísu 173
ára gömul en
stórfrétt þó!
Álfheiður Inga-
dóttir, líffræðingur
stjórnmál Björn Valur Gíslason,
varaformaður VG, hefur ákveðið að
gefa ekki kost á sér að nýju til varafor-
mennsku. Þetta tilkynnti hann á vef-
síðu sinni í gær. Flokksráðsfundur fer
fram um helgina, en 6. til 8. október
næstkomandi verður landsfundur
haldinn þar sem nýr varaformaður
verður kosinn.
Í pistli á vefsíðunni segir Björn
Valur að VG hafi styrkt stöðu
sína verulega frá því að ný forysta
flokksins tók við
árið 2013. „Er það
ekki síst að þakka
traustri forystu
formannsins, Katr-
ínar Jakobsdóttur,
öflugri sveit þing- og
sveitarstjórnarmanna
og sterkri málefna-
legri stöðu Vinstri
grænna,“ segir
hann. – jhh
Björn Valur fer
úr forystusveit
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
3
-D
7
4
0
1
D
8
3
-D
6
0
4
1
D
8
3
-D
4
C
8
1
D
8
3
-D
3
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K