Fréttablaðið - 19.08.2017, Blaðsíða 8
ReykjavíkuRboRg Sjálfstæðismenn
í borgarstjórn eru ósáttir við hug-
myndir um að verja eigi 250 millj-
ónum króna í uppbyggingu á Raf-
stöðvarvegi 4. Segja þeir eðlilegra
að ráðast í bráðaviðgerðir á húsnæði
grunnskóla og leikskóla en að verja
fé í þetta.
Borgarráð samþykkti á fimmtu-
daginn tillögu þess efnis að auglýst
verði eftir samstarfsaðila um þróun
Toppstöðvarinnar í Elliðaárdal. Í
greinargerð með tillögunni segir að
gert sé ráð fyrir að lagðar verði 250
milljónir í viðgerðir á húsinu. „Sú
upphæð mun að öllum líkindum
einungis duga til þess að bæta ytra
byrði en umtalsvert meiri fjárfest-
ingu þarf til þess að koma húsinu í
góð framtíðarnot,“ segir í greinar-
gerð með tillögunni. Því þyrfti sam-
starfsaðili sjálfur að fjármagna fram-
kvæmdir umfram framkvæmdir
borgarinnar sem þarf til að búa
húsið undir nýja starfsemi. Áður
hafði verið ákveðið að rífa húsið,
en þeim áætlunum hefur nú verið
breytt.
„Við óskum líka eftir upplýsing-
um um hver niðurrifskostnaðurinn
gæti orðið. En mér finnst ólík-
legt að þetta hús verði rifið. Út frá
byggingarlegu sjónarmiði er þetta
merkilegt hús, er mér sagt. Þetta
er stálgrindarhús sem er hnoðað.
Einhvers konar Marshallaðstoðar-
hús,“ segir Halldór Halldórsson,
oddviti Sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn. Þess vegna sé eðlilegast að
fá rekstraraðila sem geti að fullu
skilað viðhaldspeningunum til baka
í leigu eða einhverju svipuð formi.
„En við hlaupum ekki í viðgerðir á
þessu húsi fyrir 250 milljónir þegar
þörfin er svona brýn í leikskólum og
grunnskólum,“ bætir Halldór við.
Björn Blöndal, formaður borgar-
ráðs, segir að þrátt fyrir bókunina
hafi Sjálfstæðismenn samþykkt
tillöguna í atkvæðagreiðslu. „Ég er
alveg sammála því að maður verður
alltaf að hugsa þetta, hvar á maður
að nota peningana. En þau láta líta
út eins og við séum ekkert að gera
í viðhaldi í leikskólum og grunn-
skólum. Það er mesta kjaftæði,“
segir Björn og bætir við að í ár sé
fimm milljörðum varið í nýbygg-
ingar, viðbyggingar og endurgerð
skólalóða. Hann bætir því jafnframt
við að ekki verði lagðir peningar í
viðhald á Toppstöðinni fyrr en það
liggur ljóst fyrir hvaða hugmyndir
mögulegir samstarfsaðilar koma
með. jonhakon@frettabladid.is
250 milljóna
króna viðgerð
á Toppstöðinni
Borgarráð hefur samþykkt tillögu um að leggja 250
milljónir í viðgerð á Toppstöðinni. Sjálfstæðismenn
vilja að féð fari í brýnar viðgerðir á skólahúsnæði.
Reist árið 1946
Hús Toppstöðvarinnar að Raf-
stöðvarvegi 4 var reist árið 1946.
Samkvæmt upplýsingum sem
Borgarsögusafn hefur tekið
saman var húsið tekið í notkun
árið 1948 og hafði það hlutverk
að sinna toppálagspunktum í
raforkuþörf og hitaveitu og dregur
nafn sitt af því hlutverki. Með til-
komu Búrfellsvirkjunar árið 1969
minnkaði notkun Toppstöðvar-
innar en hún var endanlega
lögð af árið 1981. Árið 2008 tók
samnefnt frumkvöðlasetur hluta
hússins undir sína starfsemi.
Toppstöðin við Rafstöðvarveg 4 var reist árið 1946. Á sínum tíma stóð til að
rífa húsið en þeim áætlunum hefur nú verið breytt. FRéTTablaðið/EyþóR
Þau láta líta út eins
og við séum ekkert
að gera í viðhaldi í leik-
skólum og grunnskólum.
Það er mesta
kjaftæði.
Björn Blöndal, for-
maður borgarráðs
Eldborg — 2. hæð
15:00 Fjölskyldutónleikar með
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðar afhentir frá kl 11:00
í miðasölu Hörpu, frítt inn
meðan húsrúm leyfir
17:00 Rómeó & Júlía með
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðar afhentir frá kl 11:00
í miðasölu Hörpu, frítt inn
meðan húsrúm leyfir
19:30 Stórsveit Reykjavíkur
Norðurljós — 2. hæð
14:00 Súkkulaðikökuópera
Guja Sandholt
14:45 Reykjavík Classics
Sumartónleikaröð í Hörpu
15:15 Perlur íslenskra sönglaga
Rótgróin tónleikaröð í Hörpu
16:00 Frönsk kaffihúsalög
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
og Bergþór Pálsson ásamt
Kjartani Valdemarssyni
17:00 Óperuakademía unga
fólksins — Hormónar,
himnaríki og heitar ástir
Kaldalón — 1. hæð
13:00 Blúshátíð í Reykjavík
14:30 Stage Network Europe
Ungmennahljómsveitir
frá Hollandi og Frakklandi
16:00 Færeysk tónlistaratriði
Danny & the Veetos,
Guðrið Hansdóttir og
Stanley Samuelsen
Kolabrautin — 4. hæð
15:00 Múlakvintettinn
Opin rými
14:40 Maxímús Músíkús og
— 16:00 vinkona hans Petítla
Pírúetta heilsa börnunum
Flói — 1. hæð
13:00 Nemendatónleikar
Tónlistarhátíð unga fólksins
14:30 Litháenskir þjóðdansar
og þjóðlög
16:00 Háskóladansinn
sýnir og kennir dansa
Hörpuhorn — 2. hæð
13:00 Íslenska óperan
Búningasýning
13:30 Blásarahópur
Tónlistarhátíð unga fólksins
14:05 Vinir Jónsa syngja
til minningar um
Jón Stefánsson
14:30 Þyrnirós — Ballerínur frá
Klassíska listdansskólanum
15:30 Sönghópurinn Spectrum
16:05 Þyrnirós — Ballerínur frá
Klassíska listdansskólanum
16:30 Strengjasveit
Tónlistarhátíð unga fólksins
Norðurbryggja — 1. hæð
13:00 Íslenska óperan
— 17:00 Hattar fyrir krakka
14:00 Töfrahurð
— 17:00 Hljóðfærasmiðja og föndur
Hörputorg
13:00 Cadillac klúbburinn
sýnir glæsikerrur
K1 og K2 — kjallari
10:00 Opið verður
— 18:00 í Expó skálann
12:00 Portrait — Innsetning
— 15:00 Ingibjargar Friðriksdóttur
12:00 Om–kvörnin — Innsetning
— 18:00 Péturs Eggertssonar
Gjörningur kl. 14:00
harpa.is/menningarnott #harpa
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L a u g a R D a g u R8 f R é t t i R ∙ f R é t t a b L a ð i ð
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
4
-1
2
8
0
1
D
8
4
-1
1
4
4
1
D
8
4
-1
0
0
8
1
D
8
4
-0
E
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K