Fréttablaðið - 19.08.2017, Blaðsíða 82
Allir græða
á veganisma
Heimurinn breytist á ógnarhraða og unga kynslóðin leiðir breytingarnar á öllum sviðum s a m f é l a g s i n s .
Matar menningin er allt önnur í dag
en fyrir áratug.
Áður var það kannski helst
„skrýtna“ frænkan eða frændinn sem
lærði í Svíþjóð á áttunda áratugnum
sem bruggaði drykkinn Kombucha
sem nú er seldur í öllum stærri mat
vöruverslunum sem sjálfsögð heilsu
bót. Og kunni að elda úr linsubaunum
og borðaði spírur. Og möndlumjólk?
Það er ekki svo langt síðan við höfð
um ekki hugmynd um að það væri
svona léttilega hægt að útbúa mjólk
úr möndlum. Á kaffihúsum í dag er
oft hægt að velja á milli margra teg
unda mjólkur úr jurtaríkinu. Mörgum
finnst sem lífsstílsbreytingarnar sem
eru að verða nú séu endurkoma
hippaáranna. Að hippakynslóðin hafi
með þrautseigju náð boðskap sínum
í gegn. Að mataræðisbreytingarnar
séu tískubóla sem fylgi tísku og lífs
stíl unga fólksins.
Það er auðvelt að hrekja slíkar
pælingar. Vegan mataræði er langt
í frá tískubóla heldur tengist djúp
stæðum breytingum á lífsstíl okkar.
Breytingum á loftslagi og umhverfi.
Óumflýjanlegum framtíðarskorti
á hráefni í heiminum vegna fólks
fjölgunar.
Kostir vegan fæðis
fyrir heilsu, umhverfi
og dýravernd eru
óumdeildir. Katrín
Sigríður Júlíu Stein-
grímsdóttir og
Hulda B. Waage eru
báðar vegan.
Vegetarian eða Vegan, Flexitarian
eða Pescetarian? Hver er munurinn?
Vegan
Jurtaætur sem borða
ekki eða nota neinar
dýraafurðir.
Lífsháttur þar
sem fólk forðast
hagnýtingu dýra og of-
beldi gagnvart þeim,
hvort sem um er að
ræða fæðu, fatnað,
skemmtun eða aðra
neyslu.
Makróbíótísk fæða
Inniheldur aðallega
heilt korn og baunir.
Hráfæðis-vegan
Borða einungis ferskt
grænmeti, ávexti, fræ
og hnetur.
Vegetarian
Grænmetisætur
(borða allar afurðir
nema kjöt og fisk).
Pescetarian
Grænmetisætur sem
borða fisk en ekki kjöt.
MJÓLK
LactoVegetarian
Grænmetisætur sem
borða mjólkurvörur
en hvorki kjöt né fisk.
OctoVegetarian
Grænmetisætur sem
borða egg en hvorki
kjöt né fisk.
Fruitarian
Ávaxtaætur (borða
hnetur, fræ, ávexti og
allt sem til fellur af
jurt án þess að hún sé
sködduð á neinn hátt).
Pollatarian
Fugla/grænmetisæta.
Borðar ekkert kjöt
nema fuglakjöt.
Flexitarian
Grænmetisæta
nánast að fullu þ.e.
borðar eiginlega alltaf
grænmeti nema ef
eitthvert sérstakt til-
efni er.
Hverjir eru uppáhaldsréttir þínir?
Ég elska vegan falafelið á Mandi og
allt með sveppum í aðalhlutverki.
Hvað færðu þér í morgunmat?
Brauð með rjómaosti sem er búinn
til úr plöntum og einhvern safa
með.
Hvað færðu þér fyrir æfingu og eftir
æfingu?
Telst tiltekt vera æfing?
Ertu með einhver skotheld ráð?
Gefðu nýjum mat tækifæri og svörtu
og rauðu hauskúpurnar á nammi
barnum eru vegan!
Katrín Júlíu Steingrímsdóttir hefur verið vegan í rúmt ár. „Það gerðist svolítið á einni
nóttu,“ segir hún. „Mér fannst bara
ekkert annað koma til greina eftir
að ég horfði á Cowspiracy, heimild
armynd um hvernig dýraræktun til
manneldis væri að eyðileggja jörð
ina okkar mun meira en samgöngur
gera. Fannst þetta bara rökréttast í
stöðunni; sleppa því að drepa dýr,
eyðileggja jörðina og líkama minn
í leiðinni.
Katrín dvaldi í sveit fyrstu mánuð
ina eftir að hún varð vegan þar sem
úrvalið var lítið. Hún hafði ekki færi á
búðarferð nema einu sinni í mánuði.
„Nauðsynjar gat ég þó keypt. Á
þessum tíma fylgdist ég ekki mikið
með þróun mála í Reykjavík. Ég
kom aftur suður til Reykjavíkur
þremur mánuðum síðar þar sem
úrvalið var svipað og það er núna.
Það gefur þó augaleið að áður en
ég varð vegan var úrvalið mun
minna en núna. Ætli ég hafi ekki
bara hitt á réttan tíma ef svo má
orða það.“
Veitingakeðjur hafa tekið við sér
Henni finnst úrval veganfæðis mega
batna.
„Það þarf að batna sums staðar.
Flestir staðir og þá helst veitinga
keðjur hafa tekið mikið við sér og
bjóða upp á annað en franskar og
kál. Það eru samt enn þá staðir sem
eru fastir þar.“
Katrín segir ungt fólk upplýst og
nota í meiri mæli netið til upplýs
ingaöflunar. Það geri að verkum að
það velji frekar vegan lífsstíl.
„Ungt fólk er eflaust sá aldurshópur
sem notar internetið hvað mest í upp
lýsinga og afþreyingarskyni. Í dag er
fullt af kvikmyndum, fræðigreinum
o.fl. sem fjalla um matarvenjur, dýra
vernd og fleira sem snertir þá á veg
anisma. Ég held að fjölda þeirra megi
rekja til þess að þau hafi rekist á slíkt
efni og tekið það til sín.“
Katrín nefnir að veg
anismi sé ekki laus við
skaðleg umhverfisáhrif
en sé þó mikilvægt tæki í
baráttunni gegn loftlags
breytingum.
„Veganismi er ekki galla
laus hvað umhverfisvernd
varðar, þetta er t.a.m ekki
plastlaus lífsstíll og það er
ekki beint eins og ég sé með
baunaræktun í garðinum
mínum. En hann tekur hins
vegar stærstu orsök hlýn
unar jarðar, dýraræktun, út
úr jöfnunni. Ég myndi halda
að það hefði ágætis þýðingu.
Fyrir mér hefur þetta ein
falda þýðingu; hlustaðu
á skynsemina og leggðu
þrjóskuna til hliðar í smá
stund. Allir geta grætt á
veganisma.“
Fólk hættir fljótt að suða
Sumir velja að borða ákveðnar
dýraafurðir en borða mest
megnis grænmetisfæði. Eru pescet
arian og octovegetarian og svo fram
vegis. Þá velja sumir að borða bara
ávexti eða hráfæði. Finnst Katrínu fólk
upplýstara en áður og reyna að velja
að borða dýraafurðir í hófi?
„Já, og vissulega er alltaf jákvætt
þegar fólk upplýsist aðeins og reynir
að huga betur að þeim mat sem það
borðar. Sumir þurfa eitt skref í einu á
meðan aðrir stökkva beint út í laug
ina. Við erum öll misjöfn og vonandi
festist fólk ekki á miðri leið og ákveð
ur að stoppa þar.“
Fólk reynir stundum að sannfæra
hana um annan lífsstíl og telur hana
varla geta fengið öll nauðsynleg nær
ingarefni úr fæðunni.
„Oftast hlæ ég bara og bendi þeim á
hvers vegna það sem þau hafa að segja
um t.d. vítamínskort sé bull – enda fæ
ég öll þau vítamín sem ég þarf í fæð
unni minni. Oft hættir fólk að suða í
manni eftir tvö eða þrjú skipti.“
Sleppir þú líka dýraafurðum þegar
kemur að fatnaði og húsgögnum og
slíku?
„Já, en ég henti samt engu sem ég
átti fyrir. Það hefði verið heimskulegt
og ekkert sérstaklega skynsamlegt að
henda út góðum hlutum á meðan þeir
eru enn þá nothæfir. Hef ekkert keypt
síðan ég varð vegan sem inniheldur
dýraafurðir.“
Hverjir eru uppáhaldsréttir þínir?
„Ég er svo einföld að þetta er erfið
spurning. Réttir eða ekki en svona
þrennt uppáhalds matarkyns er
hafragrautur, bláberjasmoothie
inn minn og kombuchað sem ég fæ
hjá Gló.“
Hvað færðu þér í morgunmat?
„Hafragraut og bláberjasmoothie,
hvort tveggja eða annaðhvort.“
Hvað færðu þér fyrir æfingu og eftir
æfingu?
„Fyrir seinnipartsæfingu passa ég
að borða mat sem hefur flókin kol
vetni eins og baunir, sætar kartöflur
eða quinoa og vel af grænmeti.
Fyrir morgunæfingarnar borða
ég ekkert en er alltaf með vatn.
Eftir æfingu fæ ég mér mat sem hefur
einföld kolvetni, eins og ávöxt.“
Hulda B. Waage hefur verið vegan í rúm þrjú ár. Hún byrjaði þó að sniðganga
kjöt á unglingsárum. „Ég prófaði
held ég allar útgáfur á „grænmetis
rófinu,“ segir Hulda. „Þegar öllu er
á botninn hvolft þá er ég mjög við
kvæm sál og má ekkert aumt sjá.
Ég gæti aldrei endað líf nokkurs og
mér verður illt við tilhugsunina um
að einhverjum líði illa,“ segir Hulda
spurð um ástæður þess að hún varð
vegan.
Henni finnst úrval í verslunum
af sérvöru og þjónusta á veitinga
stöðum hafa batnað til muna. „Fleiri
og fleiri ákveða að sniðganga dýra
afurðir. Við erum að stefna í rétta
átt. Það þurfa bara fleiri að kveikja
á perunni. Úrvalið er mjög gott, sér
staklega á höfuðborgarsvæðinu. Það
má allt bæta. Nú eru til staðgenglar
fyrir alla fæðu að ég held. Algjör
lúxus en á sama tíma kannski svo
lítill óþarfi.“
Hulda segir vegan mataræði ekki
erfitt. „Það verður seint talið erfitt
að vilja lifa á ákveðinn hátt, erfiði
er bara viðhorf.“
Sífellt fleiri kjósa að vera vegan í
dag, sérstaklega yngra fólk. Hvers
vegna heldur þú að það sé?
„Ég hugsa að umræðan sé meiri
og því auðveldara að afla sér upp
lýsinga. Mjög gott að ungt fólk hafi
aðgang að upplýsingum og hafi
vitneskju til þess að geta mótað sína
neyslu.“
Hulda segir margar stefnur í
gangi hvað varðar veganisma. Það
sem sé einkennandi fyrir þennan
hóp sé aukin meðvitund. Henni
finnst oft vanta meiri vilja í að
breyta til batnaðar. „Mér finnst
vanta svolítið í fólk almennt að
það geri hluti og lifi á ákveðinn hátt
með það eina að vopni að það vill
og ætlar. Ég heyri svo oft fólk segja
„mig langar svo að gera/vera …“
en svo virðist það ekki nægja til
þess að bara gera hlutina. Það
stoppar allt á að það sé svo erfitt.
Það er erfitt að missa útlim eða
berjast við sjúkdóm en það er ekki
erfitt að gera það sem hjartað segir
manni,“ segir Hulda.
Hulda B. Waage
kraftlyfingakona
Katrín Sigríður Júlíu
Steingrímsdóttir
nemi
Kombucha
Kombucha er gerjaður drykkur,
gerður úr grænu tei, hrásykri og
lifandi gerlum sem eru kallaðir
kombucha „SCOBY“ (for sym-
biotic culture of bacteria and
yeast). Þessi nýlenda vex saman
í drykknum á meðan gerjunin á
sér stað og er talin hjálpa fólki að
öðlast betri þarmaflóru.
Cowspiracy
Cowspiracy: The Sustainabi-
lity Secret er heimildarmynd
sem fjallar um dýraframleiðslu
og afleiðingar hennar. Fjallað
er um ótal skaðleg áhrif dýra-
framleiðslu, til dæmis skógar og
regnskógaeyðingu, vatnssóun
og losun gróðurhúsalofttegunda
sem fylgja dýraframleiðslu.
Ekki erfitt að gera það sem hjartað segir manni
Rökrétt að vera vegan
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R34 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
3
-E
1
2
0
1
D
8
3
-D
F
E
4
1
D
8
3
-D
E
A
8
1
D
8
3
-D
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K