Fréttablaðið - 19.08.2017, Blaðsíða 34
Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457
Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Maður á alltaf að elska. Það er svo mikið í húfi,“ segir Ása Elínardóttir af stað-
festu. Hún hefur fundið fyrir því að
vera pínu leiðinleg á þriðju með-
göngunni. Lag hennar Always hefur
hitt landsmenn í hjartastað í sumar;
dillandi og þokkafullt.
„Ég samdi Always til mannsins
míns, Guðmundar. Lagið er um það
þegar maður fer að rífast yfir fárán-
legum hlutum sem skipta engu máli,
eins og ruslapoka sem engin nennir
með út í tunnu. Af hverju að eyða
tímanum í að rífast í stað þess að
elska og þakka fyrir það sem maður
hefur?“
Ása á von á sínu þriðja barni í
október. Hún er 28 ára og á fyrir
ellefu ára dóttur og son á fjórða ári.
„Ég varð ófrísk sextán ára og
nýorðin sautján þegar dóttir mín
fæddist. Ég elska börn og dreymdi
um að eignast þau fjögur en ætlaði
mér það ekki svona ung. Ég er samt
fegin að það gerðist og held að
maður sé tilbúinn í þann slag þegar
maður lendir í honum,“ segir Ása.
Hún ráðleggur unglingsstúlkum
þó að bíða með barneignir fram
yfir tvítugt. „Fyrst þarf maður að
hlaupa af sér hornin. Ég fékk mikinn
stuðning frá mömmu og var dálítið
týnd orðin tvítug og stelpan þriggja
ára. Þroski fyrir móðurhlutverkið
fannst mér koma um 23 ára og þá sá
ég alfarið um hana sjálf.“
Það er óvenjulegt að brátt þriggja
barna móðir hasli sér völl og meiki
það í tónlistarbransanum.
„Dóttir mín er alltaf að segja við
mig að hún vilji venjulega mömmu Ása naut velgengni sem fyrirsæta í París á unglingsárunum. MYND/ERNIR
sem fari í lækninn eða hjúkkuna,
en við vinkonur mínar segist hún
hafa gaman af því að ég sé í tón-
list. Ég held að fæstum ellefu ára
börnum þyki mömmur sínar vera
kúl. Við erum búnar að vera saman
síðan ég var krakki sjálf og við erum
mjög tengdar. Það er heiður að vera
mamma hennar og ég er þakklát
fyrir að vera á draumastað í lífinu.
Það er best í heimi að búa til börn og
tónlist.“
Sálufélagarnir Jin og Jang
Fjórða barnið bíður betri tíma. Fyrst
vill Ása gefa út plötur og sú fyrsta,
Paradise of Love, er væntanleg í
september.
„Lögin mín fjalla gjarnan um ást-
ina. Lagið Paradise of Love er annað
lagið sem ég samdi og þar syng ég
um leitina að hamingjunni, sem
fyrir mitt leyti finnst í kærleikanum
og nærveru með fólkinu mínu.
Crocodile Tears er um sambandsslit.
Það eru alltof margir í samböndum
sem þeim líður illa í og þegar maður
er í sambandi sem ekki gengur upp
verður maður dofinn og getur ekki
elskað.“
Ása er ástfangin af Guðmundi
sem reyndi fyrst að fanga hjarta
hennar þegar hún var átján.
„En þá var ég í mínum heimi og
vissi ekki neitt, eins og venjulega.
Við hittumst svo aftur þegar ég var
23 og þá varð ekki aftur snúið. Við
fluttum inn saman, nánast eftir
fyrsta deit, og erum tengd sterkum
böndum. Saman erum við eins og
jin og jang; andstæður og bætum
hvort annað upp og eigum stórt og
fallegt líf saman.“
Þau Guðmundur eru dugleg að
ferðast utan landsteina með börnin
sín en heima finnst þeim best að
vera hvort í annars faðmi.
„Við erum afar tengd fjölskylda og
þykir best að vera saman. Við förum
út að leika með börnunum og
borðum góðan mat, því ég hef yndi
af eldamennsku og ætlaði í kokkinn
á sínum tíma. Ég er ekki eins liðtæk
í tiltektinni en Gummi er góður í
henni,“ segir Ása hláturmild.
Grætur ef hreyfir við fólki
Ása var tvítug þegar hún tók sér
gítar í hönd og hóf að kenna sjálfri
sér að spila í gegnum YouTube. Ljóð
samdi hún af kappi strax á unglings-
árum.
„Ljóðin voru um allt milli himins
og jarðar. Ég samdi fyrsta ljóðið til
að fá útrás fyrir tilfinningar þegar
vinkona mín lenti í bílslysi í 7. bekk.
Mér liggur margt á hjarta enda er
lífið svo stórt. Áhrif tónlistar eru
heilandi og þegar ég veit til þess að
hafa hreyft við fólki með lagasmíð-
um mínum get ég beinlínis grátið.“
Þegar Ása var komin með gítar
í hönd smullu lög og textar saman
hjá henni.
„Ég komst að því að ég get samið
lög eftir pöntun. Ég hafði enga
hæfileika sem barn, var aldrei góð í
neinu og með enga menntun í tón-
list, svo mín vöggugjöf hefur verið
að geta samið lög eins og ekkert
sé. Og þá hugsaði ég með mér að
annaðhvort færi ég í háskólanám og
rústaði því, eða ég rústaði þessum
tónlistarferli. Það hefur gengið
vonum framar og fyrir það er ég
afar þakklát. Það er ekki sjálfgefið
því svo mikið er til af góðri tónlist,“
segir Ása hamingjusöm.
Henni líður vel á sviði og er þrí-
bókuð í dag, á Menningarnótt. Fyrst
í Dillon-garðinum klukkan 15, svo
á Menningarnótt X-ins í portinu á
bak við Bar 11 klukkan 17 og í Garð-
partíi Bylgjunnar í Hljómskálagarð-
inum í kvöld.
„Dagurinn verður samfellt partí
og ég hlakka mikið til þótt það verði
púsl að hlaupa á milli ólétt,“ segir
hún hlæjandi. „Í fyrstu var ég smeyk
við tilhugsunina um að koma fram
því ég hafði verið í spilun í útvarpi
áður en ég steig fyrst á svið í maí.
Þann dag náði ég ekki andanum
fyrir spenningi en eftirleikurinn var
auðveldur. Nú hlakka ég alltaf til
og er ekkert stressuð, enda hví ætti
ég að vera óstyrk eða feimin? Þetta
er mín tónlist og það getur enginn
sungið hana eins og ég geri. Mér
finnst bara heiður að fá að syngja
eigin tónlist og að aðrir leggi við
hlustir.“
Það voru Johnny Cash og frú
hans, June Carter, sem gáfu Ásu
hugrekki til að springa út sem söng-
fugl.
„Það er fortíðarþrá í takti mínum
og tónum. Ég hlustaði mikið á
Johnny Cash og June um tvítugt.
Hann syngur ekki beint vel og það
gaf mér kjark til að syngja sjálf. Mér
fannst söngrödd mín alltaf skrýtin
en uppgötvaði að röddin er mitt
hljóðfæri sem mér ber að nýta og
fagna eins og hún er.“
Lyf við ADHD breyttu lífinu
Ása segir gefandi að umbreyta til-
finningum í tónlist.
„Ég var flækt barn, með mikinn
athyglisbrest. Gekk illa í skóla,
tengdi illa við hina krakkana og
dvaldi oft í eigin heimi. Á ungl-
ingsárunum fór það að vera erfitt
því ég hafði engin tök á náminu
og gat ekki einbeitt mér,“ segir Ása
sem á fullorðinsaldri, eða fyrir um
tveimur árum, fékk loks lyf við
athyglisbrestinum.
„Það breytti lífi mínu. Loksins
náði ég að skilgreina sjálfa mig og
fór að semja tónlist. Mér finnst
miður þegar lyf við ADHD eru töluð
niður, hefði ég verið sett á lyf sem
barn hefði það gert svo mikið fyrir
mig. Ég gat aldrei verið í hópíþrótt-
um og var alltaf fyrir neðan í öllu og
því óskaplega týnd og kvíðin.“
Að upplagi er Ása glaðlynd og kát
en hún segir að sér hafi oft liðið illa
á uppvaxtarárunum.
„Það er aldrei gott að vera ungl-
ingsstúlka með brotna sjálfsmynd;
uppfull af vanmetakennd. Allir voru
betri en ég í öllu og mín lausn var
að gefa skít í allt nám þegar ég var á
unglingastigi grunnskólans. Ég hafði
sannarlega lagt mig alla fram og
gert mitt besta, en kennarinn sagði
jafnharðan að það væri ekki nógu
gott,“ segir Ása, og fór að vinna í fiski
og við módelstörf þar til hún varð
ófrísk sextán ára.
„Ég tók þátt í fyrirsætukeppni á
fjórtánda árinu og fór í kjölfarið til
Parísar þar sem ég vann fyrir Wella
og fleiri merki. Mér þótti það ekkert
merkilegt. Mér gekk vel en fannst
bransinn innihaldslaus og kúplaði
mig út eftir tvö ár við módelstörf.
Enn í dag er ég fegin að ég entist ekki
í þeim bransa því fjórtán ára hefur
maður ekki nógu sterk bein í hann.“
Nýjasta lag Ásu heitir Broken
Wings og er komið á Spotify. Mynd-
band er væntanlegt á næstu dögum.
„Ég samdi lagið þegar vinkonu
minni leið illa. Það er sárt að finna til
vanmáttar þegar kemur að vanlíðan
annarra og geta ekki tekið sorgina
frá þeim. Í myndbandinu lokast
stelpa inni í húsi, sem ég tengi við
eigin athyglisbrest. Mitt ADHD er
þannig að ég lokast inni í eigin heimi
og það er erfitt að ná í mig. Þá er eins
og ég hafi lokað mig af en það er ekki
raunin. Ég er bara læst inni. Þannig
er athyglisbrestur; einhverfukeimur
þar sem maður lokast inni í eigin
hugarfangelsi.“
Hægt er að fylgjast með Ásu á
Facebook og SnapChat undir
Asaelinar.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
Vörunúmer: 35946-0000
Danmörk kr 9.460*
Svíþjóð kr 8.766*
*skv. skráningu Isl.bank og Levi.com 16.08.17
8.990
HettupeySa
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
4
-2
6
4
0
1
D
8
4
-2
5
0
4
1
D
8
4
-2
3
C
8
1
D
8
4
-2
2
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K