Fréttablaðið - 19.08.2017, Page 34

Fréttablaðið - 19.08.2017, Page 34
Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Maður á alltaf að elska. Það er svo mikið í húfi,“ segir Ása Elínardóttir af stað- festu. Hún hefur fundið fyrir því að vera pínu leiðinleg á þriðju með- göngunni. Lag hennar Always hefur hitt landsmenn í hjartastað í sumar; dillandi og þokkafullt. „Ég samdi Always til mannsins míns, Guðmundar. Lagið er um það þegar maður fer að rífast yfir fárán- legum hlutum sem skipta engu máli, eins og ruslapoka sem engin nennir með út í tunnu. Af hverju að eyða tímanum í að rífast í stað þess að elska og þakka fyrir það sem maður hefur?“ Ása á von á sínu þriðja barni í október. Hún er 28 ára og á fyrir ellefu ára dóttur og son á fjórða ári. „Ég varð ófrísk sextán ára og nýorðin sautján þegar dóttir mín fæddist. Ég elska börn og dreymdi um að eignast þau fjögur en ætlaði mér það ekki svona ung. Ég er samt fegin að það gerðist og held að maður sé tilbúinn í þann slag þegar maður lendir í honum,“ segir Ása. Hún ráðleggur unglingsstúlkum þó að bíða með barneignir fram yfir tvítugt. „Fyrst þarf maður að hlaupa af sér hornin. Ég fékk mikinn stuðning frá mömmu og var dálítið týnd orðin tvítug og stelpan þriggja ára. Þroski fyrir móðurhlutverkið fannst mér koma um 23 ára og þá sá ég alfarið um hana sjálf.“ Það er óvenjulegt að brátt þriggja barna móðir hasli sér völl og meiki það í tónlistarbransanum. „Dóttir mín er alltaf að segja við mig að hún vilji venjulega mömmu Ása naut velgengni sem fyrirsæta í París á unglingsárunum. MYND/ERNIR sem fari í lækninn eða hjúkkuna, en við vinkonur mínar segist hún hafa gaman af því að ég sé í tón- list. Ég held að fæstum ellefu ára börnum þyki mömmur sínar vera kúl. Við erum búnar að vera saman síðan ég var krakki sjálf og við erum mjög tengdar. Það er heiður að vera mamma hennar og ég er þakklát fyrir að vera á draumastað í lífinu. Það er best í heimi að búa til börn og tónlist.“ Sálufélagarnir Jin og Jang Fjórða barnið bíður betri tíma. Fyrst vill Ása gefa út plötur og sú fyrsta, Paradise of Love, er væntanleg í september. „Lögin mín fjalla gjarnan um ást- ina. Lagið Paradise of Love er annað lagið sem ég samdi og þar syng ég um leitina að hamingjunni, sem fyrir mitt leyti finnst í kærleikanum og nærveru með fólkinu mínu. Crocodile Tears er um sambandsslit. Það eru alltof margir í samböndum sem þeim líður illa í og þegar maður er í sambandi sem ekki gengur upp verður maður dofinn og getur ekki elskað.“ Ása er ástfangin af Guðmundi sem reyndi fyrst að fanga hjarta hennar þegar hún var átján. „En þá var ég í mínum heimi og vissi ekki neitt, eins og venjulega. Við hittumst svo aftur þegar ég var 23 og þá varð ekki aftur snúið. Við fluttum inn saman, nánast eftir fyrsta deit, og erum tengd sterkum böndum. Saman erum við eins og jin og jang; andstæður og bætum hvort annað upp og eigum stórt og fallegt líf saman.“ Þau Guðmundur eru dugleg að ferðast utan landsteina með börnin sín en heima finnst þeim best að vera hvort í annars faðmi. „Við erum afar tengd fjölskylda og þykir best að vera saman. Við förum út að leika með börnunum og borðum góðan mat, því ég hef yndi af eldamennsku og ætlaði í kokkinn á sínum tíma. Ég er ekki eins liðtæk í tiltektinni en Gummi er góður í henni,“ segir Ása hláturmild. Grætur ef hreyfir við fólki Ása var tvítug þegar hún tók sér gítar í hönd og hóf að kenna sjálfri sér að spila í gegnum YouTube. Ljóð samdi hún af kappi strax á unglings- árum. „Ljóðin voru um allt milli himins og jarðar. Ég samdi fyrsta ljóðið til að fá útrás fyrir tilfinningar þegar vinkona mín lenti í bílslysi í 7. bekk. Mér liggur margt á hjarta enda er lífið svo stórt. Áhrif tónlistar eru heilandi og þegar ég veit til þess að hafa hreyft við fólki með lagasmíð- um mínum get ég beinlínis grátið.“ Þegar Ása var komin með gítar í hönd smullu lög og textar saman hjá henni. „Ég komst að því að ég get samið lög eftir pöntun. Ég hafði enga hæfileika sem barn, var aldrei góð í neinu og með enga menntun í tón- list, svo mín vöggugjöf hefur verið að geta samið lög eins og ekkert sé. Og þá hugsaði ég með mér að annaðhvort færi ég í háskólanám og rústaði því, eða ég rústaði þessum tónlistarferli. Það hefur gengið vonum framar og fyrir það er ég afar þakklát. Það er ekki sjálfgefið því svo mikið er til af góðri tónlist,“ segir Ása hamingjusöm. Henni líður vel á sviði og er þrí- bókuð í dag, á Menningarnótt. Fyrst í Dillon-garðinum klukkan 15, svo á Menningarnótt X-ins í portinu á bak við Bar 11 klukkan 17 og í Garð- partíi Bylgjunnar í Hljómskálagarð- inum í kvöld. „Dagurinn verður samfellt partí og ég hlakka mikið til þótt það verði púsl að hlaupa á milli ólétt,“ segir hún hlæjandi. „Í fyrstu var ég smeyk við tilhugsunina um að koma fram því ég hafði verið í spilun í útvarpi áður en ég steig fyrst á svið í maí. Þann dag náði ég ekki andanum fyrir spenningi en eftirleikurinn var auðveldur. Nú hlakka ég alltaf til og er ekkert stressuð, enda hví ætti ég að vera óstyrk eða feimin? Þetta er mín tónlist og það getur enginn sungið hana eins og ég geri. Mér finnst bara heiður að fá að syngja eigin tónlist og að aðrir leggi við hlustir.“ Það voru Johnny Cash og frú hans, June Carter, sem gáfu Ásu hugrekki til að springa út sem söng- fugl. „Það er fortíðarþrá í takti mínum og tónum. Ég hlustaði mikið á Johnny Cash og June um tvítugt. Hann syngur ekki beint vel og það gaf mér kjark til að syngja sjálf. Mér fannst söngrödd mín alltaf skrýtin en uppgötvaði að röddin er mitt hljóðfæri sem mér ber að nýta og fagna eins og hún er.“ Lyf við ADHD breyttu lífinu Ása segir gefandi að umbreyta til- finningum í tónlist. „Ég var flækt barn, með mikinn athyglisbrest. Gekk illa í skóla, tengdi illa við hina krakkana og dvaldi oft í eigin heimi. Á ungl- ingsárunum fór það að vera erfitt því ég hafði engin tök á náminu og gat ekki einbeitt mér,“ segir Ása sem á fullorðinsaldri, eða fyrir um tveimur árum, fékk loks lyf við athyglisbrestinum. „Það breytti lífi mínu. Loksins náði ég að skilgreina sjálfa mig og fór að semja tónlist. Mér finnst miður þegar lyf við ADHD eru töluð niður, hefði ég verið sett á lyf sem barn hefði það gert svo mikið fyrir mig. Ég gat aldrei verið í hópíþrótt- um og var alltaf fyrir neðan í öllu og því óskaplega týnd og kvíðin.“ Að upplagi er Ása glaðlynd og kát en hún segir að sér hafi oft liðið illa á uppvaxtarárunum. „Það er aldrei gott að vera ungl- ingsstúlka með brotna sjálfsmynd; uppfull af vanmetakennd. Allir voru betri en ég í öllu og mín lausn var að gefa skít í allt nám þegar ég var á unglingastigi grunnskólans. Ég hafði sannarlega lagt mig alla fram og gert mitt besta, en kennarinn sagði jafnharðan að það væri ekki nógu gott,“ segir Ása, og fór að vinna í fiski og við módelstörf þar til hún varð ófrísk sextán ára. „Ég tók þátt í fyrirsætukeppni á fjórtánda árinu og fór í kjölfarið til Parísar þar sem ég vann fyrir Wella og fleiri merki. Mér þótti það ekkert merkilegt. Mér gekk vel en fannst bransinn innihaldslaus og kúplaði mig út eftir tvö ár við módelstörf. Enn í dag er ég fegin að ég entist ekki í þeim bransa því fjórtán ára hefur maður ekki nógu sterk bein í hann.“ Nýjasta lag Ásu heitir Broken Wings og er komið á Spotify. Mynd- band er væntanlegt á næstu dögum. „Ég samdi lagið þegar vinkonu minni leið illa. Það er sárt að finna til vanmáttar þegar kemur að vanlíðan annarra og geta ekki tekið sorgina frá þeim. Í myndbandinu lokast stelpa inni í húsi, sem ég tengi við eigin athyglisbrest. Mitt ADHD er þannig að ég lokast inni í eigin heimi og það er erfitt að ná í mig. Þá er eins og ég hafi lokað mig af en það er ekki raunin. Ég er bara læst inni. Þannig er athyglisbrestur; einhverfukeimur þar sem maður lokast inni í eigin hugarfangelsi.“ Hægt er að fylgjast með Ásu á Facebook og SnapChat undir Asaelinar. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi Vörunúmer: 35946-0000 Danmörk kr 9.460* Svíþjóð kr 8.766* *skv. skráningu Isl.bank og Levi.com 16.08.17 8.990 HettupeySa 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 1 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 4 -2 6 4 0 1 D 8 4 -2 5 0 4 1 D 8 4 -2 3 C 8 1 D 8 4 -2 2 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.