Fréttablaðið - 19.08.2017, Blaðsíða 18
Þann 16. nóvember 2017 verða
liðin 100 ár frá því að Gamla
höfnin í Reykjavík var tekin
formlega í notkun.
Faxaflóahafnir sf. hafa verið
að bjóða almenningi tvisvar
sinnum í mánuði í allt sumar
upp á gönguferðir um hafnar-
svæðið undir leiðsögn Guðjóns
Friðrikssonar sagnfræðings.
Gönguferðirnar byrja við
myndasýninguna á Miðbakka,
haldið í vesturátt og endað úti
á Granda.
Nú er komið að tveimur
síðustu gönguferðunum:
Laugardaginn 19. ágúst
kl. 14.00-15:30
Sunnudaginn 27. ágúst
kl. 14.00-15:30
Gönguferðir
í boði Faxaflóahafna
Hlökk
um til
að sjá
ykkur !
Þróttarar enduðu sigurgöngu HK í kvöldsólinni í Dalnum
Karaktersigur fyrir Köttara Þróttarar voru sjö stigum á eftir toppliði Keflavíkur í hálfleik en snéru við sínum leik á móti HK og á sama tíma misstu
Keflvíkingar niður tveggja marka forskot á móti Haukum. Þróttarar enduðu því kvöldið aðeins einu stigi frá toppnum. Viktor Helgi Benediktsson
reynir hér að stöðva Þróttarann Vilhjálm Pálmason sem var HK-ingum mjög erfiður í kvöldsólinni í Laugardalnum í gærkvöldi. Fréttablaðið/anton
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R18 s p o R t ∙ F R É t t A B L A ð i ð
sport
köRFUBoLti „Það er mjög gott að
koma heim. Deildin hér heima er
góð og mikil og góð umfjöllun um
hana. Það er fínt að koma heim
og hlaða batteríin í eitt ár,“ segir
Sigurður Gunnar Þorsteinsson en
hann skrifaði undir samning við
Grindavík fyrr í vikunni.
Sigurður hefur leikið erlendis
síðustu þrjú ár. Var fyrst eitt ár í Sví-
þjóð en síðustu tvö tímabil hefur
hann spilað í Grikklandi.
„Það var ýmislegt sem kom upp á
og þetta þróaðist í þessa átt og nú er
ég kominn aftur í Grindavík,“ segir
þessi 29 ára gamli og 205 sentimetra
hái leikmaður. Hann spilaði með
Grindavík í þrjú ár áður en hann
fór út en var þar áður hjá Keflavík
og KFÍ.
Mikil lífsreynslu
Þessi sterki strákur hefur safnað
mikilli reynslu erlendis og er
ánægður með dvölina ytra.
„Þetta var mjög skemmtilegt og ég
var í tveimur góðum deildum. Þetta
var ákveðin lífsreynsla sem maður
býr nú að. Boltinn þarna úti er tals-
vert öðruvísi en hér heima. Meira
stillt upp og skotklukkan nýtt. Ég tel
mig hafa þroskast og lært heilmikið
um körfubolta á þessum árum. Það
er ýmislegt sem maður lærir og ekki
síst hvernig maður horfir á leikinn.“
Miðherjinn hafði mestan áhuga
á því að ganga aftur í raðir Grinda-
víkur og það gekk eftir að hann
komst þangað.
„Ég gaf öðrum liðum ekki mikið
færi á mér. Mér leið alltaf vel í
Grindavík og mæli eindregið með
því að leikmenn prófi að spila þar.
Það er frábært að vera í Grindavík,“
segir Sigurður en Grindjánar eru
komnir með mjög sterkt lið og eru
líklegir til afreka á komandi vetri í
Domino’s-deildinni.
„Ég veit ekki betur en að við
stefnum að því að vinna titla. KR
verður liðið sem öll lið ætla sér að
vinna. Svo hefur landslagið mikið
breyst. Við verðum góðir sem og
Stólarnir. ÍR endaði vel í fyrra og
verður spennandi að fylgjast með
þeim í vetur.“
Verð að kyngja þessu
Þessi vinalegi risi var í æfingahópi
íslenska landsliðsins fyrir EM en
lenti í síðasta niðurskurði. Hann
kemst því ekki á EM rétt eins og
síðast er liðið fór þangað.
„Ég er fúll og brjálaður en maður
verður að kyngja því. Ég ætlaði mér
að komast út með liðinu núna og
auðvitað er ég ósáttur við ákvörðun
þjálfarans en maður skilur að hann
þarf að velja og valið er erfitt,“ segir
Sigurður þó kurteislega en hvernig
metur hann möguleika íslenska
liðsins á EM?
„Ef við horfum á pappírana þá er
alveg ljóst að þetta verður erfitt en
ég held að liðið eigi góða möguleika
á því að vinna einn til tvo leiki. Það
er talað um að það þurfi að vinna
tvo til þess að komast áfram. Ef
liðið vinnur leik snemma þá er alltaf
möguleiki að taka annan.“
Bárðdælingurinn ungi Tryggvi
Hlinason er ein ástæðan fyrir því
að Sigurður komst ekki í hópinn og
hann ber sveitadrengnum unga vel
söguna.
„Tryggvi er gríðarlega hæfileika-
ríkur og hefur bætt sig mikið. Ég hef
meira að segja séð hann taka stórt
skref. Það verður mjög spennandi
að fylgjast með honum á EM gegn
hinum stóru strákunum.“
henry@frettabladid.is
Ég er fúll og brjálaður
Sigurður Þorsteinsson er að vonum svekktur yfir að eiga ekki möguleika á því
að spila með íslenska landsliðinu á EM en hann sýnir þó ákvörðun þjálfarans
skilning. Hann segir frábært að búa í Grindavík og bíður spenntur eftir að byrja.
Sigurður mælir með því að sem flestir prófi að spila körfubolta í Grindavík.
Segir að það sé frábært. Fréttablaðið/anton brink
Í dag
11.20 Swansea - Man. Utd Sport
13.20 Hamburg - augsburg Sport 2
13.50 liverpool - C. Palace Sport
16.20 Stoke - arsenal Sport
17.00 Solheim Cup Golfstöðin
19.00 Wyndham Champ. Sport 4
Frumsýningar
16.15 burnley - Wba Sport 2
18.00 leicester - brighton Sport 2
18.30 bournem. - Watford Sport 3
18.30 So´ton - West Ham Sport
Á morgun
12.20 Huddersf. - newcastle Sport
14.50 tottenham - Chelsea Sport
15.45 Ía - ÍbV Sport 2
16.00 Solheim Cup Golfstöðin
17.00 Messan Sport
17.55 Víkingur r. - ka Sport 2
18.10 barcelona - r. betis Sport 3
19.00 Wyndham Champ. Sport 4
20.10 Deportiv. - real Mad. Sport 2
Pepsi-deild karla
16.00 Ía - ÍbV Akranes
18.00 Víkingur r. - ka Víkin
18.00 Víkingur Ó. - breiðab. Ólafsv.
inkasso-deild karla
Þór ak. - Fram 2-2
Þrottur r. - Hk 2-1
Haukar - keflavík 4-2
Efst
Keflavík 34
Þróttur 33
Fylkir 30
Haukar 30
neðst
Selfoss 21
ÍR 16
Grótta 9
Leiknir F. 7
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
3
-E
1
2
0
1
D
8
3
-D
F
E
4
1
D
8
3
-D
E
A
8
1
D
8
3
-D
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K