Fréttablaðið - 19.08.2017, Blaðsíða 36
Okkur var boðið
að taka þátt í
Young Nordic Jazz
Comets sem fram fór í
Umeå í Svíþjóð í október
sem var mjög skemmti
legt. Við fengum frábæra
dóma og góðar blaða
umsagnir.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Anna Gréta er ekki óvön því að koma fram þótt ung sé að árum. Hún verður 23 ára
næsta miðvikudag. Hún stundar
nám við konunglega tónlistar
háskólann í Stokkhólmi og fer utan
í byrjun næsta mánaðar. Anna
Gréta hlaut titilinn bjartasta vonin
á Íslensku tónlistarverðlaununum
2015 og frændi hennar, Sölvi, fékk
sama titil ári síðar. Saman hafa
þau unnið við eigin tónsmíðar sem
þau flytja nú á hringferð sinni um
landið. Í fyrrakvöld komu þau fram
í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og
í gærkvöldi voru þau á Hvamms
tanga. Síðan heldur ferðin áfram
um Norður og Austurland. „Við
endum þessa tónleikaferð í Hann
esarholti næsta laugardag,“ segir
Anna Gréta. „Það er einstaklega
skemmtilegt að leika tónlist þar,
flygillinn æðislegur og hljómurinn
svo fallegur,“ bætir hún við.
„Okkur finnst rosalega skemmti
legt að ferðast um landið. Við erum
eingöngu með frumsamið efni
sem við höfum samið í sitt hvoru
lagi eða saman. Útsetningar hafa
sömuleiðis verið í okkar höndum.
Þetta eru spunaútgáfur í djass
útsetningu undir einhverjum
þjóðlagaáhrifum. Sölvi er saxófón
leikari og ég spila á píanó,“ útskýrir
Anna Gréta.
Frændsystkini á ferð
Þau frændsystkinin vissu alltaf um
hæfileika hvort annars. Þau fóru
þó ekki að spila saman fyrr en þau
hófu nám í Tónlistarskóla FÍH. Ég
var 17 ára og hann 15. Við vorum
saman í hljómsveit sem nefndist
Gaukshreiðrið og tókum meðal
annars þátt í Nótunni, uppskeru
hátíð tónlistarskóla. Síðan höfum
við tekið þátt í hinum og þessum
verkefnum. Ég er í framhaldsnámi í
Stokkhólmi og hann í Berlín. Fyrir
ári ákváðum við að stofna dúett
og halda eigin tónleika. Okkur var
boðið að taka þátt í Young Nordic
Jazz Comets sem fram fór í Umeå
í Svíþjóð í október sem var mjög
skemmtilegt. Við fengum frábæra
dóma og góðar blaðaumsagnir,“
segir Anna Gréta sem er mikill
hlaupari. Hún hefur hlaupið hálft
maraþon en ákvað að sleppa því
núna. „Ég hleyp til að hreinsa
hausinn en er ekkert sérstaklega
öguð núna.“
Það er mikill tónlistaráhugi í
fjölskyldu Önnu. Faðir hennar er
Sigurður Flosason saxófónleikari.
Þau feðgin hafa oft leikið saman,
meðal annars á Freyjujazzi í Lista
safni Íslands í apríl. Þar tóku þau
fyrir tónsmíðar kvenna á borð við
Joni Mitchell og Cörlu Bley.
Djassinn alla daga
Það er ekki algengt að Íslendingar
leggi fyrir sig djasspíanónám. Anna
Gréta segir að hún hafi byrjað í
klassísku píanónámi þegar hún var
átta ára. „Þá hafði ég engan áhuga
á djassi þótt pabbi minn væri á
kafi í honum. Þegar ég var fjórtán
ára uppgötvaði ég að klassíkin
ætti eiginlega ekki samleið með
mér. Þá fór ég að spila meira eftir
eyranu, spila popplög og lög sem
mér þóttu skemmtileg. Síðan fór ég
í FÍH og þar kynntist ég djassinum
fyrir alvöru og féll fyrir honum.
Það er algjör lúxus að læra og
starfa við það sem manni finnst
skemmtilegast að gera. Núna er
ég á kafi í djassinum og það eru
margir áhrifavaldar sem ég lít til.
Til dæmis er Keith Jarrett í miklu
uppáhaldi um þessar mundir,“
segir Anna Gréta.
Anna Gréta og Stína Ágústs
dóttir söngkona hafa unnið mikið
saman í Svíþjóð þar sem þær eru
báðar búsettar. Þær hafa verið með
tónleika þar sem flutt er meðal
annars djössuð útgáfa af lögum
Bjarkar Guðmundsdóttur. Tónleik
unum hefur verið mjög vel tekið
af Svíum. „Við Stína höfum unnið
mikið saman og það hefur verið
sérstaklega ánægjulegt. Þetta hafa
verið alls konar verkefni, bæði hér
heima og úti. Við munum örugg
lega halda því áfram í vetur.“
Næg verkefni
Fyrir utan tónlistina hefur Anna
Gréta gaman af því að elda góðan
mat og prófa nýja rétti. „Ég bý
til alls konar grænmetisrétti og
elda fisk ef hann er í boði. Það
er ekki auðvelt að fá ferskan fisk
í Stokkhólmi,“ segir Anna sem
hefur sömuleiðis áhuga á líkams
rækt, sérstaklega hlaupum og jóga.
„Stundum finnst mér æðislegt að
slappa bara af og njóta lífsins.“
Hún segist kunna vel við sig í
Svíþjóð. „Stokkhólmur er æðisleg
borg og skólinn minn er frábær.
Það er gott að búa í Svíþjóð og ég
hef ekki hug á að flytja heim eftir
námið. Ég hef verið að skapa mér
tengslanet í tónlistinni og hef víða
komið fram með bigbandi auk alls
kyns tilfallandi verkefna sem hafa
komið upp í hendurnar á mér. Ég
er þegar bókuð á nokkra tónleika
í september og október. Meðal
annars verð ég á Djasshátíðinni í
Stokkhólmi,“ segir Anna Gréta og
bætir við að hún hafi einnig tekið
að sér kennsluverkefni á Álands
eyjum í október. „Það bíða mín því
nokkur ferðalög,“ segir hún. „Ég hef
verið heppin, það er alltaf nóg að
gera í tónlistinni.“
Þeir sem vilja hlusta á frændsyst
kinin leika tónlistina sína geta séð
hvar þau eru á landinu með því að
kalla upp á Facebook: Tónleikar
Önnu og Sölva.
Féll kylliflöt fyrir djassinum
Anna Gréta Sigurðardóttir hefur mikið að gera í djasstónlistinni þótt ung sé að árum. MYND/MAGNuS ANDerSeN
Frændsystkinin
Anna Gréta og
Sölvi ferðast
um landið með
eigin tónlist.
MYND/HANS VerA
Hinn snjalli djasspíanisti Anna Gréta
Sigurðardóttir ferðast nú um landið
ásamt frænda sínum, Sölva Kolbeins-
syni. Þessir ungu tónlistarmenn flytja
eigin djass undir þjóðlagaáhrifum.
4 KYNNINGArBLAÐ FÓLK 1 9 . áG ú S t 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
4
-3
A
0
0
1
D
8
4
-3
8
C
4
1
D
8
4
-3
7
8
8
1
D
8
4
-3
6
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K