Fréttablaðið - 19.08.2017, Síða 36

Fréttablaðið - 19.08.2017, Síða 36
Okkur var boðið að taka þátt í Young Nordic Jazz Comets sem fram fór í Umeå í Svíþjóð í október sem var mjög skemmti­ legt. Við fengum frábæra dóma og góðar blaða­ umsagnir. Elín Albertsdóttir elin@365.is Anna Gréta er ekki óvön því að koma fram þótt ung sé að árum. Hún verður 23 ára næsta miðvikudag. Hún stundar nám við konunglega tónlistar­ háskólann í Stokkhólmi og fer utan í byrjun næsta mánaðar. Anna Gréta hlaut titilinn bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2015 og frændi hennar, Sölvi, fékk sama titil ári síðar. Saman hafa þau unnið við eigin tónsmíðar sem þau flytja nú á hringferð sinni um landið. Í fyrrakvöld komu þau fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og í gærkvöldi voru þau á Hvamms­ tanga. Síðan heldur ferðin áfram um Norður­ og Austurland. „Við endum þessa tónleikaferð í Hann­ esarholti næsta laugardag,“ segir Anna Gréta. „Það er einstaklega skemmtilegt að leika tónlist þar, flygillinn æðislegur og hljómurinn svo fallegur,“ bætir hún við. „Okkur finnst rosalega skemmti­ legt að ferðast um landið. Við erum eingöngu með frumsamið efni sem við höfum samið í sitt hvoru lagi eða saman. Útsetningar hafa sömuleiðis verið í okkar höndum. Þetta eru spunaútgáfur í djass­ útsetningu undir einhverjum þjóðlagaáhrifum. Sölvi er saxófón­ leikari og ég spila á píanó,“ útskýrir Anna Gréta. Frændsystkini á ferð Þau frændsystkinin vissu alltaf um hæfileika hvort annars. Þau fóru þó ekki að spila saman fyrr en þau hófu nám í Tónlistarskóla FÍH. Ég var 17 ára og hann 15. Við vorum saman í hljómsveit sem nefndist Gaukshreiðrið og tókum meðal annars þátt í Nótunni, uppskeru­ hátíð tónlistarskóla. Síðan höfum við tekið þátt í hinum og þessum verkefnum. Ég er í framhaldsnámi í Stokkhólmi og hann í Berlín. Fyrir ári ákváðum við að stofna dúett og halda eigin tónleika. Okkur var boðið að taka þátt í Young Nordic Jazz Comets sem fram fór í Umeå í Svíþjóð í október sem var mjög skemmtilegt. Við fengum frábæra dóma og góðar blaðaumsagnir,“ segir Anna Gréta sem er mikill hlaupari. Hún hefur hlaupið hálft maraþon en ákvað að sleppa því núna. „Ég hleyp til að hreinsa hausinn en er ekkert sérstaklega öguð núna.“ Það er mikill tónlistaráhugi í fjölskyldu Önnu. Faðir hennar er Sigurður Flosason saxófónleikari. Þau feðgin hafa oft leikið saman, meðal annars á Freyjujazzi í Lista­ safni Íslands í apríl. Þar tóku þau fyrir tónsmíðar kvenna á borð við Joni Mitchell og Cörlu Bley. Djassinn alla daga Það er ekki algengt að Íslendingar leggi fyrir sig djasspíanónám. Anna Gréta segir að hún hafi byrjað í klassísku píanónámi þegar hún var átta ára. „Þá hafði ég engan áhuga á djassi þótt pabbi minn væri á kafi í honum. Þegar ég var fjórtán ára uppgötvaði ég að klassíkin ætti eiginlega ekki samleið með mér. Þá fór ég að spila meira eftir eyranu, spila popplög og lög sem mér þóttu skemmtileg. Síðan fór ég í FÍH og þar kynntist ég djassinum fyrir alvöru og féll fyrir honum. Það er algjör lúxus að læra og starfa við það sem manni finnst skemmtilegast að gera. Núna er ég á kafi í djassinum og það eru margir áhrifavaldar sem ég lít til. Til dæmis er Keith Jarrett í miklu uppáhaldi um þessar mundir,“ segir Anna Gréta. Anna Gréta og Stína Ágústs­ dóttir söngkona hafa unnið mikið saman í Svíþjóð þar sem þær eru báðar búsettar. Þær hafa verið með tónleika þar sem flutt er meðal annars djössuð útgáfa af lögum Bjarkar Guðmundsdóttur. Tónleik­ unum hefur verið mjög vel tekið af Svíum. „Við Stína höfum unnið mikið saman og það hefur verið sérstaklega ánægjulegt. Þetta hafa verið alls konar verkefni, bæði hér heima og úti. Við munum örugg­ lega halda því áfram í vetur.“ Næg verkefni Fyrir utan tónlistina hefur Anna Gréta gaman af því að elda góðan mat og prófa nýja rétti. „Ég bý til alls konar grænmetisrétti og elda fisk ef hann er í boði. Það er ekki auðvelt að fá ferskan fisk í Stokkhólmi,“ segir Anna sem hefur sömuleiðis áhuga á líkams­ rækt, sérstaklega hlaupum og jóga. „Stundum finnst mér æðislegt að slappa bara af og njóta lífsins.“ Hún segist kunna vel við sig í Svíþjóð. „Stokkhólmur er æðisleg borg og skólinn minn er frábær. Það er gott að búa í Svíþjóð og ég hef ekki hug á að flytja heim eftir námið. Ég hef verið að skapa mér tengslanet í tónlistinni og hef víða komið fram með bigbandi auk alls kyns tilfallandi verkefna sem hafa komið upp í hendurnar á mér. Ég er þegar bókuð á nokkra tónleika í september og október. Meðal annars verð ég á Djasshátíðinni í Stokkhólmi,“ segir Anna Gréta og bætir við að hún hafi einnig tekið að sér kennsluverkefni á Álands­ eyjum í október. „Það bíða mín því nokkur ferðalög,“ segir hún. „Ég hef verið heppin, það er alltaf nóg að gera í tónlistinni.“ Þeir sem vilja hlusta á frændsyst­ kinin leika tónlistina sína geta séð hvar þau eru á landinu með því að kalla upp á Facebook: Tónleikar Önnu og Sölva. Féll kylliflöt fyrir djassinum Anna Gréta Sigurðardóttir hefur mikið að gera í djasstónlistinni þótt ung sé að árum. MYND/MAGNuS ANDerSeN Frændsystkinin Anna Gréta og Sölvi ferðast um landið með eigin tónlist. MYND/HANS VerA Hinn snjalli djasspíanisti Anna Gréta Sigurðardóttir ferðast nú um landið ásamt frænda sínum, Sölva Kolbeins- syni. Þessir ungu tónlistarmenn flytja eigin djass undir þjóðlagaáhrifum. 4 KYNNINGArBLAÐ FÓLK 1 9 . áG ú S t 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 1 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 4 -3 A 0 0 1 D 8 4 -3 8 C 4 1 D 8 4 -3 7 8 8 1 D 8 4 -3 6 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.