Fréttablaðið - 19.08.2017, Page 4
Steingrímur
Birgisson
forstjóri Bíla
leigu Akureyrar
sagði við
Fréttablaðið á
miðvikudag að
kaup fyrirtækisins
á rafbílum væru ein þau verstu
í sögu þess. Það vanti hleðslu
stöðvar á Keflavíkurflugvelli og
víðar á landinu og þá sé nýtingin
á bílunum ekki nógu góð þar
sem tíma taki að hlaða þá.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
sjávarútvegs
ráðherra
var alls ekki
hress þegar
málað var yfir
sjómanninn á
Sjávarútvegshúsinu
við Skúlagötu 4. „Mér finnst þetta
bara verulega vanhugsað og enn
verra ef menn eru ekki að virða
höfundarrétt,“ sagði Þorgerður.
Hún vill nú efna til samkeppni
um nýja mynd eftir hvarf sjóarans
og mun ráðfæra sig við Samband
íslenskra myndlistarmanna (SÍM).
Benedikt
Jóhannessyni
fjármála og
efnahagsráð
herra
sinnaðist við
bílstjóra sinn í vor
með þeim afleiðing
um að sá síðarnefndi var sendur
til annarra starfa. Bílstjórinn
hafði keyrt marga ráðherra áður
en Benedikt settist í ríkisstjórn
en fjármálaráðherra vildi ekki
tjá sig um málið þegar Frétta
blaðið náði tali af honum.
Þrjú í fréttum
Sjómaðurinn,
rafbílar og
ósætti við
ráðherra
Tölur Vikunnar 13.8.2017-19.8.2017
40
milljónir sterlings-
punda er upp-
hæðin sem enska
knattspyrnuliðið
Everton greiddi
Swansea
fyrir Gylfa
Sigurðsson,
samkvæmt
heimildum
Frétta-
blaðsins.
20,7
kíló af kókaíni
voru haldlögð
á Keflavíkur-
flugvelli á
fyrstu sjö
mánuðum
ársins.
Magnið
er á við
það
sem toll-
verðir fundu fjögur
ár þar á undan til samans.
40%
aukning var
í fraktflugi
Icelandair Cargo
í júlí saman-
borið við sama
mánuð 2016.
125
milljarðar er verðmið-
inn á 58% hlut Kaup-
þings í Arion banka.
41
dagur leið milli
ríkisstjórnarfunda í
sumar. Áhöld eru um
hvort það sé lengsta
frí ríkisstjórnar Ís-
lands í sögunni.
83%
framhaldsskólanema
nota snjallsíma undir
stýri. Notkun eykst
með hækkandi aldri.30%
samdráttur
hefur orðið í
sölu íslenska
pappírsfram-
leiðandans
Papco síðan
Costco opnaði í
Garðabæ í maí.
neyTendur Fleiri vörur úr verð
samanburði Fréttablaðsins frá því í
maí hafa hækkað í verði en lækkað
samkvæmt nýrri verðathugun blaðs
ins. Verðkönnun Fréttablaðsins í gær
sýnir að sviptingar hafa orðið á verði
í Costco síðan verslunin var opnuð,
bæði til hækkunar og lækkunar.
Mest er hækkunin 34% á gosi en
mesta lækkunin er rúm 25% á pylsu
máltíð. Af verðkönnun Fréttablaðsins
að dæma virðast keppinautar í ein
hverjum tilfellum hafa brugðist við
samkeppninni frá Costco og lækkað
verð.
Af þeim níu vörum sem Frétta
blaðið hafði verðsamanburð á frá
því í maí höfðu fjórar hækkað í verði,
þrjár lækkað í verði og verð tveggja
haldist óbreytt. Sex þessara vara
birtust í könnun blaðsins þann 24.
maí þar sem verð í Costco var borið
saman við verð annarra verslana á
sömu vörum.
Nú, tæplega þremur mánuðum
eftir opnun verslunarinnar sem skók
íslenskt samfélag, lék Fréttablaðinu
forvitni á að vita hvernig verð hefði
þróast.
Sjá má að Bónus hefur á tímabilinu
lækkað verð á vörum úr fyrri saman
burði. Verð á stykkinu af lítilli dós af
Pepsi Max hefur lækkað úr 78 kr. í
69 kr. en hún er þó enn 22 krónum
dýrari en í Costco, þrátt fyrir að þar
hafi verðið hækkað um rúm 34% á
tímabilinu. Taka ber fram að í fyrri
könnun blaðsins var verð á Pepsi Max
kannað en í gær var aðeins hið sam
bærilega Diet Pepsi til í versluninni.
Þá ber að hafa í huga að gosdrykkur
inn er seldur í 24 stykkja pakkningum
í Costco.
Sviptingar á vöruverði Costco
og keppinautar bregðast við
Verðkönnun Fréttablaðsins sýnir að fleiri vörur hjá Costco hafa hækkað í verði en lækkað síðan versl-
unin var opnuð í maí. Samanburður sýnir að keppinautar hafa sumir brugðist við komu Costco með
verðlækkunum. Costco hefur þó líka hnyklað verðlagsvöðva sína og lækkað verð á síðustu mánuðum.
Vara 23. maí 18. ágúst Breyting í %
Costco Pepsi Max/Diet 33 cl 35 kr. (Max) 47 kr. (Diet) 34,2%
Bónus Pepsi Max 33 cl 78 kr. 69 kr. -11,5%
Costco SS sinnep, 350 g 299 kr. 329 kr. 10,3%
Bónus SS sinnep, 350 g 335 kr. 329 kr. -1,8%
Costco Panodil hot, 500 mg, 10 bréf 929 kr. 929 kr. Óbreytt
Lyf og heilsa Panodil hot, 500 mg, 10 bréf 1.459 kr. 1.184 kr. -18,8%
Costco Pylsa og gos 400 kr. 299 kr. -25,2%
Bæjarins bestu Pysla og gos 700 kr. 700 kr. Óbreytt
Costco Bose Soundlink mini hátalari 21.499 kr. 19.499 kr. -9,3%
Elko Bose Soundlink mini hátalari 19.995 kr. 23.995 kr. 20,0%
Costco Levi’s 501 gallabuxur 6.399 kr. 5.899 kr. -7,8%
Levi’s búðin Kringlunni Levi’s 501 gallabuxur 11.990 kr. 11.990 kr. Óbreytt
annað í Costco 28. maí 18. ágúst Breyting í %
Jarðarber, Driscoll’s, 907 g 1.149 kr. 1.149 kr. Óbreytt
Kirsuber, 1 kg 1.299 kr. 1.399 kr. 7,7%
Philips 55" UHD 6200 series sjónvarp 99.999 kr. 104.999 kr. 5,0%
✿ Svona hefur verðið breyst hjá Costco og keppinautum
Bónus hefur jafnað Costco í verði
á SS pylsusinnepi eftir 10% hækkun
hjá Costco og tæplega 2% lækkun hjá
Bónus. Í báðum verslunum kostar
flaskan nú 329 krónur en áður mun
aði 36 krónum Costco í vil.
Verulegur verðmunur var á Panodil
Hotverkjalyfi hjá Costco og Lyfjum og
heilsu í fyrri könnun. Lyfið kostar enn
929 krónur í Costco en Lyf og heilsa
hefur lækkað verð sitt um tæp 19%,
úr 1.459 krónum í 1.184 kr.
Eftir að hafa skákað Costco í verði
á tilteknum Bosehátalara í fyrri
könnun Fréttablaðsins hefur dæmið
snúist við hjá Elko. Costco lækkaði
verð sitt um 9,3% á meðan verð Elko
hækkaði um 20% á sama tíma. Er
græjan nú tæplega 4.500 krónum
dýrari í Elko.
Levi’s 501 gallabuxur sem kostuðu
6.399 kr. í Costco í maí kosta í dag
5.899 kr. og hefur verðið því lækkað
um 7,8% á meðan Levi‘s búðin í
Kringlunni hefur haldið verði sínu á
sömu vöru óbreyttu, eða 11.990 kr.
Fréttablaðið skoðaði einnig verð á
þremur öðrum vörum sem ekki voru
í fyrri samanburði blaðsins. Tvær
þeirra hafa hækkað í verði. Kíló af
hinum vinsælu kirsuberjum hefur
hækkað um 7,7% og 55" Philips UHD
snjallsjónvarp um 5%. Driscoll's
jarðar berin sívinsælu hafa staðið í
stað.
mikael@frettabladid.is
Frá kr.
198.795
m/hálfu fæði &
drykk m/mat
BENIDORM
12. september í 21 nótt
Netverð á mann frá kr. 198.795 m.v. 2 í herbergi.Hotel Melia Benidorm
Eldri borgarar
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir á
sk
ilja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra.
Samfélag Ríkisstjórnin samþykkti í
gær tillögu Benedikts Jóhannesson
ar, fjármála og efnahagsráðherra,
um að ívilnun með niðurfellingu
áfengisgjalds gagnvart æðstu stofn
unum ríkisins verði afnumin frá og
með 1. október. Nú njóta ívilnunar
embætti forseta Íslands, Alþingi,
ráðuneyti og embætti biskups
Íslands. Heimildin hefur verið háð
því að þær vörur séu notaðar til risnu
á vegum embættanna og að kaupin
séu færð í bókhald og greidd af þeim.
Þetta kemur fram á vef fjármála og
efnahagsráðuneytisins.
Þau rök sem lágu til grundvallar
því að æðstu stofnunum ríkisins og
þjóðkirkjunni var veitt þessi ívilnun
voru fyrst og fremst af fjárhagslegum
toga, en áfengiskaupafríðindi fela í
sér ívilnun sem jafna má til skatta
styrks úr ríkissjóði.
„Þessar reglur voru barn síns tíma
og mér þótti við hæfi að færa þær
til nútímans og gera kostnað vegna
áfengiskaupa gagnsærri. Eitt á yfir
alla að ganga í þessu sem öðru. Ekki
er gert ráð fyrir að bæta ráðuneyt
unum þetta með auknu fjármagni,“
segir Benedikt á síðunni. Markvisst
hefur verið unnið að því á undan
förnum árum að fækka skattastyrkj
um. Meðal röksemda fyrir því er að
auka á almennt jafnræði, gagnsæi
og festu í fjárstjórn. Heildareftirgjöf
áfengisgjalda til þeirra sem nutu
niðurfellingar þeirra, annarra en
erlendra sendiráða og alþjóðastofn
ana, sem gera það lögum samkvæmt,
nam á síðastliðnu ári 10,5 milljónum
króna. - bb
Biskup missir skattaafslátt af áfengi
Agnes M.
Sigurðar-
dóttir biskup
FréttAblAðið/
SteFán
1 9 . á g ú S T 2 0 1 7 l a u g a r d a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
3
-E
B
0
0
1
D
8
3
-E
9
C
4
1
D
8
3
-E
8
8
8
1
D
8
3
-E
7
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K