Fréttablaðið - 19.08.2017, Síða 6

Fréttablaðið - 19.08.2017, Síða 6
Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . EN N EM M / S IA • N M 83 07 9 Frá kr. 197.895 m/morgunmat & hálfu fæði skv. ferðalýsingu Netverð á mann frá kr.197.895 m.v. 2 í herbergi. Innifalið: Flug, skattar, gisting í 6 nætur á Hotel Paradis Plage Surf Yoga & Spa Resort 4* m/hálfu fæði og 3 í nætur á Hótel Royal Atlas Agadir 4*+ m/morgunmat. Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns. Einstök 9 nátta ferð þar sem farþegum gefst kostur á að njóta lífsins á einstaklega fallegum hótelum sem standa við strandlengju Marokkó. Á hótelunum er frábær aðstaða til að næra sál og líkama í fullkominni slökun, dekri og vellíðan - allt eftir því hvað hver og einn kýs. Flogið er beint til Agadir í Marokkó og dvalið fyrstu 6 næturnar á Paradis Plage Surf Yoga & Spa Resort og síðustu 3 næturnar á Hotel Royal Atlas Agadir. Á Paradise Plage Surf Yoga & Spa 4* er kjörið að njóta lífsins og alls hins besta sem hótelið hefur uppá að bjóða í mat, drykk og afþreyingu. Á Paradise Plage er boðið upp á jóga, nudd, tyrknesk böð og ýmsar heilsu- og nuddmeðferðir. Fyrir þá sem vilja sörfa en eru óvanir þá er hér í boði brimbrettakennsla. Unnt er að bæta við bókun á ferðinni dásamlegum 5 daga afþreyingarpökkum: Jóga með 5x90 mín. jógatímum. Jóga & Dekur með 5x75 mín. jógatímum, 2 arabískum böðum, 1 kornmaska og 2 slökunarnuddum 25/50 mín. Brimbrettaskóli með 5x90 mín. brimbrettatímum. Brimbretti & Jóga með 5x90 mín. brimbretta- og jógatímum. Brimbretti, jóga og dekur með 5x90 mín. brimbretta- og jógatímum ásamt 2 arabískum ilmolíuböðum, 2 arabískum gufuböðum og 2x25 mín. nuddum. Síðari hluta ferðarinnar er dvalið á Royal Atlas Agadir 4*+ í Agadir, sem er stærsti sólstrandarstaður Marokkó. Í Agadir er að finna gullna strandlengju eins langt og augað eygir en á þessum fallega stað skín sólin um 300 daga á ári. LÍKAMI & SÁL Í MAROKKÓ Jóga - Vellíðan - Sörf 6. nóvember í 9 nætur Frá kr. 197.895 m/morgunmat & hálfu fæði skv. ferðalýsingu – fáðu meira út úr fríinu BRIMBRETTI & JÓGA 23.000/mann JÓGA 12.500/mann ALLUR PAKKINN 36.000/mann JÓGA & DEKUR 23.000/mann PARADIS PLAGE ROYAL ATLAS Vinnumarkaður Átta starfsmönn- um Matís var sagt upp störfum í síðasta mánuði þegar útlit var fyrir mikinn rekstrarvanda hjá opinbera hlutafélaginu. Forstjóri Matís segir styrkingu krónunnar og verkefna- skort hafa leitt til nauðsynlegra hag- ræðingaraðgerða svo fyrirtækið yrði ekki rekið með tapi á árinu. „Uppsagnirnar í júlí voru einfald- lega út af rekstrarstöðunni. Annars vegar höfum við þurft að glíma við hækkun launa, eins og á almennum vinnumarkaði. Styrking krónunnar í þeim verkefnum sem við vorum komin með hefur áhrif en verulegur partur af okkar verkefnum hefur komið úr erlendum samkeppnissjóð- um. Við höfðum sett út nokkra öngla en færri bitu á en gert var ráð fyrir,“ segir Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, í samtali við Fréttablaðið. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins ríkir mikil óánægja á meðal starfsmanna Matís vegna þess hvern- ig staðið var að hagræðingaraðgerð- unum. Að sögn Sveins gæti þurft að skera enn frekar niður í ferðakostn- aði starfsmanna og innkaupum á aðföngum. Um 120 manns vinna hjá Matís sem veitir ráðgjöf og þjónustu til fyrirtækja í sjávarútvegi og land- búnaði í verkefnum eins og matvæla- öryggi, erfðatækni, umhverfismálum, vöruþróun og fleira. „Við ákváðum að taka á þessum málum strax en núna eru engar áætlanir um frekari uppsagnir. Þær í júlí tengdust starfsfólki af ýmsum sviðum og með mismunandi starfs- aldur. Það var horft á ýmsa þætti í starfseminni þegar þessar ákvarðanir voru teknar,“ segir Sveinn. Matís er að stærstum hluta rekið fyrir sjálfsaflafé og alþjóðlegu rann- sóknarverkefnin hafa verið grunnur- inn að vexti þess. Rétt um fjórðungur af heildarfjármögnun fyrirtækisins er í gegnum þjónustusamning við atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið. „Það er óvenju lágt í alþjóðlegum samanburði eða þegar við miðum okkur við álíka fyrirtæki og stofn- anir. Okkar fjármögnun er að stórum hluta úr samkeppnissjóðum sem er í eðli sínu tiltölulega óviss fjármögn- un.“ haraldur@frettabladid.is Verkefnaskortur leiddi til uppsagna hjá Matís Útlit var fyrir mikinn rekstrarvanda hjá Matís en átta starfsmönnum var sagt upp störfum í júlí. Verkefnum fyrirtækisins hefur fækkað og styrking krónunnar og hækkun launa höfðu áhrif. Mikil óánægja ríkir meðal starfsmanna Matís. Minntust fórnarlamba í Finnlandi Höfuðstöðvar Matís. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við höfðum sett út nokkra öngla en færri bitu á en gert var ráð fyrir. Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís Finnar minntust í gærkvöldi þeirra tveggja sem voru myrtir í hnífsstunguárás á Puutori-torgi og Markaðs- torginu í finnsku borginni Turku í gær. Sex voru jafnframt særðir áður en lögregla skaut árásarmann í fótinn og handtók hann. Lögregla tilkynnti í kjölfarið að leit stæði yfir að fleiri árásarmönnum. NoRdIcpHoTos/AFp 1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L a u g a r D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 3 -F E C 0 1 D 8 3 -F D 8 4 1 D 8 3 -F C 4 8 1 D 8 3 -F B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.