Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.08.2017, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 19.08.2017, Qupperneq 24
Gyða Kristjánsdóttir hleypur fyrir hópinn Vinir Elísu Margrétar, sem hleypur fyrir Leiðarljós, stuðningsmiðstöð fyrir foreldra og fjölskyldur alvar- lega langveikra barna. Gyða missti dóttur sína, Elísu Margréti, aðeins þriggja ára gamla á síðasta ári. „Stelpan mín fæddist með heila- sjúkdóm, eða myndunargalla á heila sem heitir Lissencephaly. Það eru innan við þúsund börn í heim- inum sem fæðast þannig. Ég held að maður geti ekki borið þetta saman við neitt annað, þetta var rosalegur skóli fyrir okkur og maður lítur á lífið allt öðruvísi eftir þetta,“ segir Gyða. Sjúkdómurinn olli því að vöðvar Elísu Margrétar byggðu sig ekki upp með eðlilegum hætti. Hún gat ekki setið, gengið eða haldið höfði og svo olli þetta illvígri floga- veiki, sem hafði svo áhrif á lungna- starfsemi hennar. Hún gat ekki talað og sá mjög illa. Leiðarljós reyndist Gyðu og manni hennar, Hafsteini Vilhelmssyni, vel. Pössuðu að við svæfum „Leiðarljós er það sem tekur við af Barnaspítalanum. Þessi veiku börn eru svo mikið þar, en það er ekkert sem ríkið býður upp á þegar maður útskrifast af spítalanum. Og maður þarf stuðning því barnið hættir ekkert að vera veikt. Flestir sem eignast langveikt barn hafa ekki átt langveikt barn áður. Leiðarljós var nýtt þegar við eignuðumst Elísu Margréti og þau héldu utan um okkur í öll þessi þrjú ár sem hún lifði; hjálpuðu með réttindamál, sáu okkur fyrir heimahjúkrun, pössuðu að við svæfum og að hún hefði allt sem þyrfti, tæki, tól og súrefni,“ segir Gyða, sem sækir sér enn stuðning til Leiðarljóss. „Hópurinn sem ég sæki núna heitir Litlu ljósin og er fyrir foreldra sem hafa misst börn eftir langvinn veikindi. Ég var ekki viss um að ég væri týpan sem myndi mæta í svona, en þetta er ómetan- legur stuðningur. Sem betur fer eru ekki margir sem ganga í gegnum það sem við gengum í gegnum, þessi langvarandi veikindi, þetta er allt annar veruleiki en hjá flestum. Þess vegna er algjörlega ómetanlegt að sitja í hring og manneskjan á móti þér veit nákvæmlega hvað þú ert að ganga í gegnum.“ Grátlegt að þurfi að loka Nú stendur til að loka starfsemi Leið- arljóss, en ekki hefur fengist nægi- legt fjármagn til þess að samtökin standi undir sér. Starfsemin þarf 26 milljónir árlega. Um 12 milljónir vantar upp á. Gyða segir grátlegt að þrátt fyrir loforð þáverandi heilbrigðis- rá ð h e r ra u m að halda úti starfseminni, hafi einungis h e l m i n g u r fjárins sem lofað var skil- að sér til sam- t a k a n n a . „ Þ e t t a er ekki h á v æ r h ó p u r . Þetta eru bara um 70 fjölskyldur, þá með þeim sem hafa þegar misst sín börn. Þessar fjölskyldur eiga alveg nóg með sitt. Þær eru að berjast fyrir sér og sínu barni og rétt- indum – að barnið fái rétta umönnun og það er bara til of mik- ils ætlast að vera að berjast í ríkinu á sama tíma,“ útskýrir Gyða. „En svo langar mann samt svo að gefa eitthvað til baka. Eins og með þetta hlaup. Ég er svo peppuð að hlaupa og þótt ég fái í hnén eftir fimm kíló- metra er mér alveg s a m a – é g g æ t i örugglega hlaupið 20 k í l ó m e t r a með ónýt hné fyrir þetta mál- efni!“ Elísa Margrét var fyrsta barn Gyðu og Haf- steins, en Gyða var 24 ára þegar hún fæddist. Allt gekk vel fyrstu vikurnar, þar til Elísa Margrét fór að fá stutt flog. Þegar foreldrar hennar ákváðu að fara með hana upp á spítala, sex vikna gamla, fékk barnið klukku- stundarlangt flog á leiðinni. Á spítal- anum var hún send í heilalínurit og í kjölfarið greind. Í segulómskoðun kom í ljós að heilinn var ekki eðli- legur. Sex vikna gömul hóf Elísa Margrét þannig baráttu fyrir lífi sínu. „Við vorum inni á spítala meira og minna allt fyrsta hálfa árið. Það var erfiðasti tíminn því það var svo fátt um svör. Eðlilega, það er svo lítið vitað um þetta. Við vissum ekkert um hversu lengi hún myndi lifa. Þá lærðum við að lifa í núinu. Það er eitt af því sem hún kenndi okkur. Sá lær- dómur situr fast í manni.“ Eftir þriggja ára baráttu Elísu Margrétar lést hún á síðasta ári. „Þá lofaði ég henni að væla aldrei yfir einhverju sem ætti ekki rétt á sér og á þeim tímapunkti fannst mér ekk- ert þess virði að væla yfir. Þótt það sé í mannlegu eðli að tuða stundum yfir smámunum, þá hugsa ég alltaf til hennar þegar ég geri það. Barátta hennar var svo miklu meira en það.“ Sorg og gleði eru systur Örfáum mánuðum áður en Elísa Margrét lést fengu þau Gyða og Hafsteinn þó gleðifréttir, þegar þeim var tilkynnt að þau ættu von á lítilli stelpu. „Þetta er erfitt að útskýra en mér fannst svo gott það sem Vigfús Bjarni [Alberts- son], prestur á Barnaspítalanum, sagði við okkur. Það var nokkrum dögum áður en Elísa Margrét dó og við vissum í hvað stefndi, þá sagði hann: „Þið verðið að muna að gleði og sorg eru systur. Það er hægt að gleðjast og syrgja á sama tíma.“ Þessi orð hafa rúllað í gegnum hausinn á mér á hverjum degi. Það er söknuður á hverjum degi, hann mun aldrei lagast en maður lærir að lifa með því og það er akkúrat systir sorgarinnar, gleðin, sem hjálpar manni í gegnum það,“ útskýrir Elísa. „2016 er árið sem við missum Elísu Margréti og fjórum mánuðum seinna eignumst við stelpuna okkar, sem við skírðum Líf.“ Gyða segir minninguna um Elísu Margréti ótrúlega góða. „Og allt sem hún kenndi okkur er svo dýr- mætt. Og ekki bara okkur, heldur svo mörgum í kringum sig. Hún átti ótrúlega marga vini og snerti líf svo margra.“ Hleypur í minningu dóttur sinnar Elísa Margrét kenndi for- eldrum sínum að lifa í núinu. Ég held að maður geti ekki borið þetta saman við neitt annað, þetta var rosalegur skóli fyrir okkur. Eiginkona Leifs Grétarssonar, Lára Sif Christiansen, lenti í alvarlegu hjólaslysi á dögun- um og lamaðist fyrir neðan brjóst. Leifur er áheitakóngur Reykjavíkur- maraþonsins í ár, og hleypur ásamt fjölmennum hópi fólks, vinum og vandamönnum Láru, til að safna fyrir endurhæfingu á bandarískum spítala í Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum. „Líf okkar breyttist bara á auga- bragði. Heimurinn hrundi í ein- hverja daga, sérstaklega auðvitað hjá henni. Ég veit ekki hvernig ég get lýst því öðruvísi,“ segir Leifur um slysið sem eiginkona hans, sem starfar sem flugmaður hjá Ice- landair, lenti í fyrir tæpum þremur mánuðum þegar hún datt á fjalla- hjóli í Öskjuhlíð. Þar var hún ásamt hópi vinnufélaga sem hittist reglu- lega til að hjóla þar. „Hún dettur bara og lendir fáránlega. Hún var ekki á neinni ferð, en dettur ein- hvern veginn fram fyrir hjólið og lendir ofarlega á bakinu. Hryggurinn brotnaði og hún lamaðist um leið. Hún segist bara hafa fundið það strax,“ lýsir Leifur og bætir við að engan sem var með Láru í för hafi órað fyrir því að á v e r k a r n i r y r ð u s v o a l v a r l e g i r . „Fólkið sem sá þetta hugs- aði með sér, af hverju er hún ekki staðin upp? Þetta er eiginlega alveg ótrú- legt, eins oft o g m a ð u r hefur dottið á æ v i n n i . “ Sjúkrabíll var kallaður til og Lára var lögð inn á spítala þar sem hún fór í aðgerð samdægurs. „Aðgerðin gekk vel, hryggurinn var brotinn en var réttur við. En þarna varð alveg ljóst að hún myndi bera varanlegan skaða,“ útskýrir Leifur. „Svo daginn eftir var bara dagur eitt í endur- hæfingu.“ Þolinmæði mesta áskorunin Leifur og Lára hafa verið saman í tæp sjö ár, en fylgst að síðan í gagn- fræðaskóla og alltaf átt náinn vin- skap. Þau eru bæði fædd 1988 og úr Garðabænum. Leifur lýsir Láru sem ævintýramanneskju og fyrirmynd, sem getur allt sem hún ætlar sér. „ M a r k - mið Láru er klárlega að ganga aftur. Hún ætlar ekkert að sætta sig við það að hún sé lömuð. Við vitum alveg að l í k u r n a r eru á móti okkur, en það er svo lítið vitað um mænu- skaða, hvort þú nærð bata eða hvenær. Þú þarft bara að æfa og æfa og svo kannski eftir hálft ár, eða ár, færðu e i n h v e r j a hreyfigetu. En svo getur það n á t t ú r u l e g a orðið að fólk æfi og æfi og ekkert gerist. Þá Lára tekur sjálf þátt í skemmtiskokk- inu ásamt móður sinni. Lára Sif ætlar sér aftur á fætur aftur á lappir, en ekki að koma þér út í hjólastól.“ Snortinn yfir samhug Leifur segist snortinn yfir því hversu margir hafi lagt málefninu lið. Hann hafi ákveðið að hlaupa hálfmara- þon, sett sér háleitt markmið, millj- ón. Síðan hafi rúmlega hundrað manns bæst við og viljað hlaupa fyrir Láru. Sjálfur hafði Leifur safnað rúmlega tveimur og hálfri milljón, þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær. „Okkur datt ekki í hug að við myndum ná að safna svona miklu. Allur þessi samhugur, maður á eig- inlega ekki til orð. Vinnustaðurinn minn, þau vilja allt fyrir mig gera og flugmannastéttin er rosalega þétt- ur félagsskapur. Það er svona það jákvæða sem maður tekur með sér út úr þessu, hvað maður á ótrúlega góða að.“ Lára kemur til með að liggja inni á Grensás þar til þau fara út í endur- hæfinguna í næstu viku, og Leifur segir henni hafa liðið vel þar. Starfs- fólkið fái toppeinkunn. „Ég bý þar með henni, ég er eiginlega ekkert á heimilinu okkar og Lára hefur ekkert komið heim síðan slysið varð. Við ákváðum líka strax að selja íbúðina okkar í miðbænum, því að það er langur og erfiður stigi upp í hana. Við vorum líka á jeppa, sem við seldum og skiptum í fólksbíl, svo hún kæm- ist sjálf í og úr bílnum. Við ætlum að gera þetta allt saman vel og láta þetta ganga upp. Við erum lausnamiðað fólk og höldum áfram að vera það. Það þarf að laga lífið að breyttum aðstæðum og við tæklum það bara.“ Leifur segir Láru fulla eftirvænt- ingar að komast út í endurhæfing- una. „Hún er grjóthörð. Mögnuð eiginlega. Hún á auðvitað stundir þar sem þetta verður allt rosalega erfitt og yfirþyrmandi, en hún er ekki að fara að sætta sig við stöðuna eins og hún er. Hún ætlar að berjast fyrir því að ná bata.“ þarf hausinn að vera í lagi og það er kannski mesta áskorunin að hafa þolinmæði. Þegar þú lendir í svona aðstæðum fara hugsanir þínar á verstu staðina. Við, fólkið í kringum hana, viljum fyrst og fremst hjálpa henni andlega – og það er rosalegur baráttuhugur í henni. Ég held hún sé komin yfir erfiðasta hjallann. Það er líka svo stutt frá slysi. Það veit eng- inn hvað gerist, þannig séð.“ Samfélag sem hjálpar Leifur segir ekki marga unga ein- staklinga á Íslandi með mænuskaða. Hins vegar sé mikill samhugur hjá þeim. Þannig hafi fólk sem hefur lent í mænuskaða strax sett sig í samband við Láru þegar það heyrði af slysinu. „Þetta er alveg ótrú- legt. Þetta er samfélag af fólki sem hjálpar hvert öðru. Strax vikuna á eftir var fólk að bjóðast til að koma, miðla af sinni reynslu og bjóða fram alla aðstoð sem hægt er að veita. Og líka einhverjir aðrir en læknar, ég held að Láru hafi fundist það gott. Þú hlustar betur á fólk sem hefur upplifað þetta.” Lára er í sjúkraþjálfun tvisvar á dag á Grensás, þar sem hún liggur inni, þar fyrir utan tekur hún tvær til þrjár aukaæfingar á dag, þar sem Leifur eða pabbi Láru aðstoða hana. „Það er ekki hægt að kaupa sér lækningu við þessu. Við gerum okkur öll grein fyrir því. En við erum að safna fjár- munum til þess að geta keypt bestu meðferð sem völ er á. Eftir að hafa ráðfært okkur við marga var okkur bent á Craig Hospital í Denver, og við erum á leiðinni þangað í næstu viku. Þetta er ein besta endurhæf- ingarstöð í heimi. Þeir hafa alls konar tæki, aðferðir og þekkingu til þess að reyna að vekja taugakerfið aftur. Það er auðvitað ekkert gulltryggt í þeim efnum, en þú reynir þitt besta. Annars eigum við bara eftir að líta til baka og hugsa, hvað ef?“ segir Leifur. „Þarna úti er fókusinn á að koma þér hún er ekki að fara að sætta sig við stöðuna eins og hún er núna. hún ætlar að berjast fyrir því að ná bata. 1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R24 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 4 -1 C 6 0 1 D 8 4 -1 B 2 4 1 D 8 4 -1 9 E 8 1 D 8 4 -1 8 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.